Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Einar Guðmundsson í Búvís hóf sinn viðskiptaferil með innflutningi á harmónikum.
Einar Guðmundsson í Búvís hóf sinn viðskiptaferil með innflutningi á harmónikum.
Mynd / ál
Viðtal 15. september 2026

Selur harmónikur og landbúnaðartæki

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Margir bændur kannast eflaust við Einar Guðmundsson sem er annar eigenda fyrirtækisins Búvís á Akureyri, en það sérhæfir sig í sölu á landbúnaðartækjum, rúlluplasti, áburði og rekstrarvörum. Hans fyrstu skref í viðskiptalífinu voru hins vegar í tengslum við innflutning og sölu á harmónikum.

„Þetta fer ágætlega saman, en ég er búinn að selja harmónikur í miklu lengri tíma en landbúnaðarvörur,“ segir Einar í samtali. Hann útskýrir að hann hafi frá unglingsárum haft mikinn áhuga á harmónikuleik og stofnaði hann fyrirtækið EG-Tóna árið 1983 í kringum innflutning á nýjum harmónikum, aukahlutum fyrir hljóðfærin og sölu á notuðum harmónikum innanlands. Enn fremur hefur hann flutt inn geisladiska með harmónikuleik og gefið út harmónikutónlist undir merkjum EG-Tóna.

Færri harmónikuleikarar en aukin færni

„Starfsemi EG-Tóna er mest í bílskúrnum heima, en svo hef ég líka verið virkur á harmónikumótum þar sem ég mæti með lager af harmónikum og geisladiskum sem ég sel. Það er ekki mikið upp úr þessu að hafa, en þetta er áhugamál og ég hef gaman af þessu og því hef ég ílengst í þessum rekstri,“ segir Einar.

Hann bendir á að harmónikuleikurum hafi fækkað miðað við það sem áður var, en á móti megi segja að í seinni tíð hafi komið á sjónarsviðið fleiri einstaklingar sem hafi sótt formlega menntun í harmónikuleik og farið í framhaldsnám erlendis. „Þeim harmónikuleikurum sem spila fyrir dansi og slíkt hefur fækkað. Þónokkur hluti af harmónikuleikurum eru eldra fólk, en núna eru að koma inn margir yngri hljóðfæraleikarar sem eru sprenglærðir í erlendum háskólum. Harmónikan er enn þá vinsæl hjá nemendum í tónlistarskólum og hljóðfærið á framtíð fyrir sér þar sem hún nýtist í nær allar tegundir tónlistar,“ segir Einar.

EG-Tónar leiddu af sér Búvís

„Ein af ástæðunum fyrir því að ég stofnaði Búvís er að ég seldi harmónikur,“ segir Einar. „Gunnar bróður og aðra bændur í hans sveit vantaði tæki sem heitir afrúllari. Þeir vissu að úti í heimi væru til betri gerðir en þær sem boðið var upp á hér á landi og spurðu hvort ég gæti ekki skoðað þetta fyrir þá. Ég gæti nú allt eins flutt inn afrúllara eins og harmónikur.

Ég skrifaði fullt af bréfum sem ég sendi framleiðendum úti og fann góðan afrúllara fyrir rest. En ég fékk líka fullt af svarbréfum frá fyrirtækjum sem sögðust ekki eiga afrúllara, en bentu mér á önnur landbúnaðartæki sem þau framleiddu. Ég sá að í þessu leyndust tækifæri og stofnaði ég Búvís skömmu síðar, en fyrirtækið fagnar 20 ára afmæli í ár. Núna erum við mjög stór aðili í rúlluplasti og áburði ásamt því að vera með vélar og tæki og ýmsar rekstrarvörur.

Þessi viðskipti hafa lítið skarast, en ég er með EG-Tóna alveg sér. Þó hafa margir bændur spilað á nikkur í gegnum tíðina þannig að nokkrir viðskiptavinir eru þeir sömu hjá báðum fyrirtækjum.“

Ítalskar harmónikur bestar

„Í dag er ekki flutt eins mikið inn af nýjum harmónikum eins og fyrir tuttugu árum,“ segir Einar. „Það er vegna þess að menn deyja frá hljóðfærunum og það er til mikið af góðum notuðum nikkum á landinu. Stór hluti af starfsemi EG-Tóna er því að selja notaðar harmónikur í umboðssölu.

Ég flyt eingöngu inn nýjar harmónikur og þær koma allar frá Ítalíu, en þaðan koma bestu harmónikur í heimi. Ég flutti á tímabili inn aðeins síðri harmónikur frá Tékkóslóvakíu og ódýrar nikkur frá Kína. Einhverra hluta vegna hafa Ítalir náð mjög góðum tökum á framleiðslu harmónika og þær eru nánast allar framleiddar í sama bænum, Castelfidardo. Rétt hjá þessum bæ bjó Paolo Soprani, sem fann upp Stradella bassakerfið, sem er mest notað í dag, og hóf hann framleiðslu á harmónikum sem smitaði út frá sér í þessum bæ.“

Hóf tónlistarnám í Þistilfirði

„Ég hef ekki farið í mikið nám í harmónikuleik, en lærði í þrjá vetur sem unglingur á harmóniku hjá Jóhanni Jósefssyni í Ormarslóni í Þistilfirði,“ segir Einar. „Síðan tók ég smá kúrs hjá Tatu Kantomaa og Braga Hlíðberg. Ég spilaði fyrst á píanóharmóniku og skipti svo og spila í dag á takkanikku.

Píanóharmónikur standa fullkomlega fyrir sínu, sérstaklega ef þú ert vanur því að spila á píanó eða píanónikku. Ef þú ert hins vegar að byrja að læra frá grunni þá myndi ég ráðleggja fólki að nota takkanikkur, því að þá ertu með miklu meira tónsvið undir hendinni. Ef þú ætlar að halda áfram í framhaldsnám og vilt læra á melódíubassa er ekki spurning að vera með takkanikku til þess að vera með sama kerfi fyrir báðar hendur,“ segir Einar.

Skylt efni: Akureyri | Búvís | harmonikur

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...