Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Sauðfjársæðingar og hrútafundir
Mynd / RML
Á faglegum nótum 28. nóvember 2018

Sauðfjársæðingar og hrútafundir

Höfundur: Eyþór Einarsson ábyrgðarmaður í sauðfjárrækt, ee@rml.is
Ný hrútaskrá mun brátt líta dagsins ljós. Það rit hefur að geyma upplýsingar um þann hrútaflota sem sæðingastöðvarnar bjóða í vetur.  Þar er að finna öflugt lið úrvalshrúta,  gamlar hetjur í bland við framtíðar stjörnur.  Á stöðvunum verða í vetur 44 hrútar.  Af þeim eru 28 hyrndir, 12 kollóttir, 2 feldfjárhrútar og 2 forystuhrútar. Í heildina komu inn 16 nýir hrútar í haust.  
 
 
Kynbótamat það sem fylgir hrútunum er byggt á nýjustu gögnum fyrir hvern eiginleika.  Mat á mjólkurlagni er því byggt á uppgjöri skýrslurhaldsins frá haustinu 2017.  Frjósemismatið byggir á niðurstöðum frá því í vor og skrokkgæðamatið er glóðvolgt en það tekur tillit til gagna frá nýliðnu hausti.  Þeir stöðvahrútar sem nú standa efstir í kynbótamati fyrir holdfyllingarmat með 123 stig eru þeir Durtur 16-994 frá Hesti og Dúlli 17-813 frá Miðdalsgröf sem er nýr hrútur á stöð.  Ef horft er til einkunnar fyrir skrokkgæði, þar sem gerð og fita hafa jafnt vægi eru þrír hrútar sem  eru efstir með 117 stig.  Það eru Fáfnir 16-995 frá Mýrum 2, Mávur 15-990 frá Mávahlíð og Tvistur 14-988 frá Hríshóli.  Fyrir frjósemi dætra stendur Klettur 13-962 frá Borgarfelli á toppnum  með 120 stig og fyrir mjólkurlagni er Blær 11-979 frá Kambi/Gróustöðum hæstur með 123 stig.  Nánar má skoða þetta í hrútaskrá eða inn í Fjárvís.is.  
 
 
Hrútaskrá og hrútafundir
 
Útgáfu hrútaskrár verður að vanda fylgt eftir með hrútafundum búnaðarsambandanna um allt land.  Þeir fundir hafa verið fjölsóttir og vonandi verða þeir það áfram.  Yfirlit yfir fundina má sjá í meðfylgjandi töflu. Áætlað er að fyrstu fundir verði haldnir miðvikudaginn 21. nóvember.  Hvet ég sauðfjárbændur til að gefa ekkert eftir í kynbótastarfinu þótt á móti blási í greininni.
 
Bændur verði duglegir að prófa 
 
Það er ekki síður áríðandi nú en stundum áður, að framleiðslugripirnir hafi virkilega getu til að skila miklum og verðmætum afurðum. Mælt er með að bændur noti í bland gömlu höfðingja stöðvanna, sem flestir eru mikið reyndir úrvalsgripir og þá nýju spennandi hrúta sem nú hafa bæst við. En mikilvægt er fyrir ræktunarstarfið að bændur séu duglegir að prófa sem flesta af nýju hrútunum þannig að þeir fái sem jafnasta og besta notkun.
Lokanir vegna viðhaldsvinnu
Fréttir 26. ágúst 2026

Lokanir vegna viðhaldsvinnu

Núna er unnið að viðgerðum á brúni sem liggur yfir Jökulsá á Fjöllum við Hringve...

Íslenskt handverk í hávegum
Fréttir 22. ágúst 2026

Íslenskt handverk í hávegum

Safnasafnið, ein af perlum Eyjafjarðar, var stofnað þann 17. febrúar 1995 af hjó...

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar
Fréttir 21. ágúst 2026

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar

Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt áfangaskýrsluna Greining vegna endurskoðunar st...

Beint frá býli dagurinn um helgina
Fréttir 20. ágúst 2026

Beint frá býli dagurinn um helgina

Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn 23. ágúst. Þetta er fjórða ár...

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO
Fréttir 20. ágúst 2026

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis h...

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg
Fréttir 20. ágúst 2026

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg

Njálufélagið undirbýr nýja og glæsilega útgáfu Njálu með haustinu en fyrirhugaðu...

Dagskrá Ullarvikunnar gleður
Fréttir 18. ágúst 2026

Dagskrá Ullarvikunnar gleður

Ullarvika verður haldin á Suðurlandi dagana 27. september til 3. október í haust...

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar

Fjarðabyggð undirbýr nú næsta áfanga jarðhita- leitar á Fáskrúðsfirði, en áforma...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f