Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Tengivagn hlaðinn trjám sat fastur á ótryggum veginum.
Tengivagn hlaðinn trjám sat fastur á ótryggum veginum.
Mynd / Eygló Björk Ólafsdóttir
Fréttir 5. maí 2026

Sátu fastir með timburfarm

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Vegir sem liggja upp að býlum á Héraði bera sumir ekki flutning á timbri úr skógunum.

Grisjun skóganna á Héraði er mikilvæg fyrir framgang vaxtar í skóginum og vinnslu á efninu. Brú og vegir sem veita aðgengi að Vallanesi bera ekki timburflutninga.

Þungatakmarkanir eru bara plástur

Starfsmenn fyrirtækisins Tandrabretti þurftu að skilja tengivagn fullan af trjábolum eftir á vegi við félagsheimilið Iðavelli á leið sinni úr Vallanesi á Eskifjörð þar sem fyrirtækið er með viðarvinnslu. Vegurinn var því tímabundið lokaður.

Til að komast af veginum frá Vallanesi og út á nærliggjandi upp- héraðsveg 931 þarf að fara yfir gamla brú og hvort tveggja vegurinn og brúin bera ekki þá þungu flutninga sem skógrækt á svæðinu krefst.

Vandamálið er þekkt á fleiri bæjum á Héraði, gjarnan á vegum sem tveir til þrír bæir deila. Í Vallanesi er stór skógur sem nytjar eru af og slíkir flutningar reglulegir. Ótækt er að þeir geti bara átt sér stað þegar frost er í jörðu eða skraufþurrt.

„Ég hef skrifað Vegagerðinni á hverju ári en fæ engin svör önnur en um fjármagnsskort og að annað gangi fyrir. Á meðan drabbast vegirnir niður,“ segir Eymundur Magnússon, bóndi í Vallanesi, um veginn sem er svokallaður héraðsvegur. „Vegagerðin hefur stundum sett þungatakmarkanir á þessa vegi en það er bara plástur, en ekki lækning, en það var ekki svo núna.“ Hann segir líka ótækt að efni komist ekki til vinnslu, ekki gangi að hún sé efnislaus.

Áhrif á ferðaþjónustuna

„Vegurinn er með versta móti núna, þetta er drullusvað frá vegamótunum og út að Iðavöllum, burðarlagið er einfaldlega farið,“ segir Eymundur um núverandi stöðu. „Þetta er bagalegt hér hjá okkur í Vallanesi, við erum að fá kvartanir í bókunarkerfinu um að vegurinn upp að bænum sé ónýtur, fólk er að spyrja sig hvort það sé á réttri leið. Við fáum um 10.000 gesti á ári þótt við séum vel falið leyndarmál.“

Eymundur veit af fleiri bændum á Austurlandi sem standa frammi fyrir sama vanda, til dæmis á Útnyrðingsstöðum og úti á Héraði.

„Ég hef ákveðið að sjá tækifæri í þessu og planta bara salati í veginn, þetta er flottur jarðvegur,“ segir Eymundur að lokum og glottir í kampinn. 

Skylt efni: Skógrækt | Vegamál

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...