Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Laxeldi á landi í Þorlákshöfn.
Laxeldi á landi í Þorlákshöfn.
Mynd / ál
Fréttir 5. ágúst 2026

Samráðshópur um lífrænan úrgang

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Umhverfis-, orku- og loftslagsráð- herra hefur skipað starfshóp um meðhöndlun lífræns úrgangs. Meginhlutverk hópsins er að móta skynsamar og rekstrarhæfar ráðstöfunarleiðir fyrir lífrænan úrgang.

Áhersla hópsins skal vera á fiskeldis- og svínamykju en magn fiskeldismykju mun samkvæmt framleiðsluspám stærstu fyrir- tækjanna í greininni tífaldast á næstu fimm árum.

Heppilegir farvegir skoðaðir

Hópnum er gert að starfa samhliða öðrum sem var skipaður í mars 2022 um fráveitur til að efla samráð og samvinnu í fráveitumálum og greina möguleika á nýtingu seyru. Tilskipun þess hóps var endurnýjuð í desember síðastliðnum.

Kröfur nýrrar fráveitutilskipunar Evrópusambandsins (ESB) munu hafa í för með sér frekari áskoranir hér á landi. Krafan nær meðal annars til vaxandi búgreinar landeldis á Íslandi en auknu magni fiskeldismykju þarf að koma í viðeigandi farvegi. Heppilegur farvegur fyrir svínamykju er einnig til skoðunar. Í skipunarbréfi ráðherra, Jóhanns Páls Jóhannssonar, í hópinn segir að ljóst sé að byggja þurfi upp aukna innviði hér á landi til meðhöndlunar á lífrænum úrgangi.

„Þetta er mikilvægt skref til að koma innviðauppbyggingu af stað,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. „Skortur á innviðum fyrir meðhöndlun lífrænna hliðarstrauma úr matvælaframleiðslu er bæði aðkallandi áskorun og tækifæri. Verkefnið er flókið og krefst samstillts átaks margra aðila til að ná raunhæfum árangri.“

Möguleikar í innviðauppbyggingu

Nýskipuðum hópi er falið að vinna töluleg gögn um upprunastað og magn fiskeldis- og svínamykju auk annars lífræns úrgangs. Honum er falið að skoða kosti og annmarka á ráðstöfun þessara efna út frá verkefnum sem þegar hafa verið unnin og teikna upp mögulegar sviðsmyndir um innviðauppbyggingu. Þá er hópnum gert að leggja fram tillögur er lúta að hindrunum, hvernig megi koma þeim úr vegi og liðka fyrir uppbyggingu viðeigandi ráðstöfunarleiða umræddra efna. Skýrslu skal skila til ráðherra 15. nóvember.

Ekki kemur fram í skipuninni hvort miðað sé að því að umræddur úrgangur geti nýst sem áburður til lífrænt vottaðrar ræktunar. Í stöðuskjali um bætta nýtingu lífbrjótanlegra efna sem unnin er af EFLU fyrir matvælaráðuneytið árið 2023, kemur fram um nýtingu fiskeldismykju til landbúnaðar að vert sé „að fylgjast grannt með magni þungmálma og lyfjaleifa í seyrunni sem geta í sumum tilvikum safnast upp í jarðvegi“. Sæti í hópnum eiga bæði aðilar tilnefndir af Bændasamtökum Íslands og Samtökum fyrirtækja í landbúnaði. Fyrsti fundur hópsins er áætlaður í júlí.

Skylt efni: lífrænn útgangur

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...