Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Sameinuðu þjóðirnar vara  við sýklalyfjaónæmi
Fréttir 18. júní 2026

Sameinuðu þjóðirnar vara við sýklalyfjaónæmi

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Sameinuðu þjóðirnar vara við því að notkun sýklalyfja í búfénaði gæti aukist um þriðjung á heimsvísu á næstu fimmtán árum ef ríki setji ekki skýrar reglugerðir.

Þetta kemur fram í skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem kom út fyrstu vikuna í júní. Aukin notkun sýklalyfja í búfénaði eykur líkurnar á sýklalyfjaónæmi dýra og manna sem leiðir til þess að erfitt getur reynst að meðhöndla sýkingar sem og sýklalyfjaónæmar bakterírur geta borist beint og óbeint á milli manna og dýra og umhverfis.

Í skýrslunni kemur fram að ef núverandi þróun heldur áfram muni sýklalyfjanotkun í búfénaði ná 143.481 tonnum á heimsvísu árið 2040. Þetta sýnir 29,5% aukningu frá 2019 og fer vel fram úr síðasta hámarki sem náði 118.600 tonnum árið 2013.

Sýklalyf sem vaxtarhvatar

Þessar áhyggjur stafa ekki einungis af notkun sýklalyfja við sjúkdómum. Í sumum löndum þekkist að nota sýklalyf og önnur örverueyðandi lyf sem vaxtarhvata (e. Antibiotic Growth Promoter) til að hraða á þyngdaraukningu dýra eða stuðla að hagkvæmri nýtingu á fóðri. Þetta viðgengst enn víðs vegar um heiminn. Evrópusambandið bannaði notkun sýklalyfja sem vaxtarhvata í matvælaframsleiðslu aðildarlanda árið 2006 og frá 2023 hafa hertar reglugerðir tekið gildi um innflutning matvæla sem nota sýklalyf sem vaxtarhvata. Frá og með september 2026 tekur gildi nýr listi landa sem mega flytja inn dýraafurðir í Evrópusambandið. Lönd sem geta ekki sýnt fram á ræktun og framleiðslu dýraafurða án sýklalyfjavaxtarhvata munu ekki fá tilskilin leyfi.

Forvarnir og eftirlit

Aukið sýklalyfjaónæmi á heimsvísu hefur áhrif á fæðuöryggi, lýðheilsu, lífsviðurværi og hagkerfi. Til að komast hjá þessari þróun er mikilvægt að setja reglugerðir, hafa gott eftirlit með matvælaframleiðslu, upplýsa bændur og matvælaframleiðendur um áhættur sýklalyfjaónæmis og leggja áherslu á hagkvæmar aðferðir sem snúa að heilsu og fóðrun búfénaðar. Samkvæmt skýrslunni er mikilvægt að nálgast vandamálið frá mismunandi hliðum. Bændur sem huga vel að aðstöðu minnka líkurnar á því að þörf sé fyrir sýklalyf og matvælaframleiðendur sem grípa til aðgerða til að stuðla að ábyrgri sýklalyfjanotkun geta komið í veg fyrir fjárhagstjón vegna sjúkdómsfaraldra og smita í dýraafurðum. Sterkar forvarnaaðgerðir og sterkt net dýralæknaþjónustu koma einnig í veg fyrir sýklalyfjaónæmi.

Með lægsta móti á Íslandi

Á heimasíðu Matvælastofnunar kemur fram að sýklalyfjanotkun í dýrum er með lægsta móti á Íslandi í samanburði við önnur Evrópulönd en þó sé svigrúm til að gera enn betur. Mast hefur gefið út fræðsluefni á íslensku um hvað bændur og dýraeigendur geti gert í baráttunni við sýklalyfjaónæmi.

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir
Fréttir 16. september 2026

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir

Metfjöldi nemenda er skráður í Háskólann á Bifröst í haust. Þetta er annað árið ...

Bændur mótmæla hertum reglum
Fréttir 16. september 2026

Bændur mótmæla hertum reglum

Hundruð danskra bænda mótmæltu fyrir utan þinghúsið í Kaupmannahöfn á þriðjudag ...

Fullorðnum refum fjölgar í Hornafirði
Fréttir 16. september 2026

Fullorðnum refum fjölgar í Hornafirði

Atvinnu- og menningarmálanefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar áréttaði á síðasta ...

3.700 fermetra fjós byggt í Bjólu
Fréttir 15. september 2026

3.700 fermetra fjós byggt í Bjólu

Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að undangenginni umræðu í skipulag...

Losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði jókst
Fréttir 15. september 2026

Losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði jókst

Hagstofa Íslands hefur birt bráðabirgðaniðurstöður sínar um losun gróðurhúsaloft...

Hætta framleiðslu á hamsatólg, tólg og útikertum
Fréttir 15. september 2026

Hætta framleiðslu á hamsatólg, tólg og útikertum

Stóruvellir efh. í Bárðardal hafa framleitt tólg, hamsatólg, hangiflot og útiker...

Lífræni dagurinn haldinn í Kringlunni í ár
Fréttir 15. september 2026

Lífræni dagurinn haldinn í Kringlunni í ár

Lífræni dagurinn verður haldinn í Kringlunni laugardaginn 19. september frá kluk...

Hvaðan kemur hvítlaukurinn?
Fréttir 15. september 2026

Hvaðan kemur hvítlaukurinn?

Áður en að hvítlaukurinn hefur ratað úr kjörbúðinni á eldhúsborðið hefur hann of...