Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Langflest hross eru flutt út til Þýskalands og á það bæði við um hesta til undaneldis sem og reiðhesta.
Langflest hross eru flutt út til Þýskalands og á það bæði við um hesta til undaneldis sem og reiðhesta.
Mynd / Marek Piwnicki
Á faglegum nótum 5. maí 2026

Samdráttur í útflutningi á hrossum

Höfundur: Harpa Ólafsdóttir

Árið 2025 voru flutt út samtals 1.204 hross samkvæmt gögnum Hagstofunnar sem eru mun færri hross en árin á undan. Ef horft er yfir tímabilið 2017 til 2025 má sjá að útflutningur á hrossum sveiflast nokkuð milli ára. Eftir gríðarlegan kipp í aukningu á útflutningi hrossa árið 2021 hefur útflutningur hefur minnkað stöðugt síðan þá og er nú rétt undir þeim fjölda sem flutt var inn 2017.

Samkvæmt greiningu Hagstofunnar heldur fækkun á útflutningi hrossa áfram en árið 2025 voru samtals flutt út 1.204 hross, þar af 494 reiðhestar og 579 hreinræktaðir hestar til undaneldis. Mesta fækkunin er á hreinræktuðum hestum til undaneldis en árið 2017 nam fjöldinn 710 hestum. Útflutningur á reiðhestum fjórfaldaðist frá 2017 til 2021 en þrátt fyrir stöðuga fækkun frá árinu 2021 voru þó fluttir út fleiri reiðhestar árið 2025 en árið 2017 þegar fluttir voru inn 393 reiðhestar. Árið 2021 skar sig úr en það ár var veruleg aukning í útflutningi hrossa en þá voru fluttir út tæplega 1700 reiðhestar og 1330 hestar til undaneldis.

Það er hins vegar áhugavert að greina þróun gengisvísitölunnar fyrir þetta tímabil frá 2017 til 2025, þar sem krónan veiktist samhliða fjölgun á útflutningi hrossa frá 2017 til 2021 en styrktist á sama tíma og útflutningur minnkaði frá 2021 til 2025.

Langflest hross eru flutt út til Þýskalands og á það bæði við um hesta til undaneldis sem og reiðhesta. Þannig var 37% af hestum til undaneldis flutt til Þýskalands árið 2025. Um 22% af útflutningi var til Norðurlandanna, þ.e. Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs, 8% til Sviss og 7% til Austurríkis. Þá var veruleg fjölgun á útflutningi hesta til undaneldis til Belgíu, þar sem útflutningur nam 14% árið 2025. En einnig var 6% hesta til undaneldis flutt út til Bandaríkjanna.

Uppgefið útflutningsvirði á hrossum samkvæmt gögnum Hagstofunnar er nokkuð mismunandi eftir löndum. Fyrir árið 2025 var meðalútflutningsverð (fob) á hestum til undaneldis um 1.700.000 kr. og 922.000 kr. á reiðhestum. Sé hins vegar horft til einstakra landa, þá var meðalútflutningsverð á hestum til undaneldis á bilinu 2.100.000 kr. til 2.500.000 kr. til Svíþjóðar, Sviss, Belgíu og Bandaríkjanna en einungis um 1.200.000 kr. til Þýskalands og 1.400.000 kr. til Austurríkis.

Það sama gildir einnig um verðmun á reiðhestum eftir löndum. Þannig var meðalútflutningsverð á reiðhestum fyrir árið 2025 til Þýskalands, Austurríkis, Belgíu og Danmerkur á bilinu 700.000 kr. til 850.000 kr. á sama tíma og verðbilið til Svíþjóðar, Sviss og Bandaríkjanna nam 1.100.000 kr. til 1.500.000 kr.

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis
Fréttir 17. september 2026

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBhÍ) og NABU Climate Fund hafa undirritað samstarfs...

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð
Fréttir 17. september 2026

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar heimsótti nýlega tvær konur í ...

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi
Fréttir 17. september 2026

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi

Skógræktarfélag Íslands útnefnir tré ársins 2026 við formlega og hátíðlega athöf...

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir
Fréttir 16. september 2026

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir

Metfjöldi nemenda er skráður í Háskólann á Bifröst í haust. Þetta er annað árið ...

Bændur mótmæla hertum reglum
Fréttir 16. september 2026

Bændur mótmæla hertum reglum

Hundruð danskra bænda mótmæltu fyrir utan þinghúsið í Kaupmannahöfn á þriðjudag ...

Fullorðnum refum fjölgar í Hornafirði
Fréttir 16. september 2026

Fullorðnum refum fjölgar í Hornafirði

Atvinnu- og menningarmálanefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar áréttaði á síðasta ...