Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
Safnahúsið í Neskaupstað: Safnahúsið í Neskaupstað er eitt af söfnunum en flest söfnin fá um 800 gesti á ári.
Safnahúsið í Neskaupstað: Safnahúsið í Neskaupstað er eitt af söfnunum en flest söfnin fá um 800 gesti á ári.
Mynd / aðsend
Fréttir 5. febrúar 2026

Sama verð inn á söfnin fjögur í sveitarfélaginu

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Í Fjarðabyggð eru fjögur söfn en þau eru Frakkar á Íslandsmiðum, Íslenska stríðsárasafnið, Sjóminjasafn Austurlands og Safnahúsið í Neskaupstað. Fram að þessu hefur þurft að greiða aðgangseyri inn á hvert safn en nýlega varð sú breyting á að nú er eitt samræmt verð inn á öll fjögur söfnin og miði á eitt safn gildir á þau öll. Nú fá líka öll börn gjaldfrjálsan aðgang að söfnunum og námsmenn.

„Við erum um þessar mundir að vinna í mjög spennandi verkefni sem snýst um að samræma og sameina söfnin sem Menningarstofa leiðir. Að vera með eitt gjald fyrir allar sýningar er hluti af þessari vinnu og gerir gestum auðveldara að heimsækja fleiri en eitt safn og átta sig á því hversu margt er í boði. Viðtökurnar hafa verið rosalega góðar því við sáum strax aukningu í aðsókn á sumaropnunum 2025 eftir breytinguna, sem sýnir að þetta er klárlega að skila sér og gera söfnin aðgengilegri og sýnilegri, segir Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar. Aðgangurinn kostar 2.400 krónur.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...