Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ríkarð Ríkarðsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun.
Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ríkarð Ríkarðsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun.
Mynd / ANR
Fréttir 14. apríl 2021

Sækja á sjálfbær fjárfestingaverkefni til Íslands

Höfundur: smh

Í síðasta mánuði undirritaði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og ný­sköpunarráðherra sam­starfs­samning um tvö verkefni, Græna dregilinn og Græna iðngarða, sem bæði hafa það að markmiði að efla „græna nýfjárfestingu“ í atvinnulífinu.

Í tilkynningu úr atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu kemur fram að Græni dregillinn sé samstarfsverkefni atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins (ANR) og Íslandsstofu, sem sé mótað í samráði við atvinnuþróunarfélög allra landshluta. Markmiðið með honum er að bæta þjónustu og umhverfi nýfjárfestingaverkefna og gera ferla samfelldari, einfaldari og skilvirkari – frá hugmynd að rekstri. Með verkefninu er stefnumótun stjórnvalda fylgt eftir á sviði útflutnings, nýsköpunar og orkumála; til aukinnar verðmætasköpunar og fjölgunar starfa með sjálfbærum hætti.

Sjálfbær fjárfestingaverkefni til Íslands

„Einn af hvötum verkefnisins er samkeppnisstaða Íslands gagnvart nágrannaríkjum sem lagt hafa mikla áherslu á að laða til sín eftirsóknarverð fjárfestingaverkefni með áherslu á sjálfbærni, oft með góðum árangri. Að verkefninu koma, auk ANR, Íslandsstofu og atvinnuþróunarfélaganna, Samband íslenskra sveitarfélaga og fulltrúar ráðuneyta og lykilstofnana sem koma að ferli fjárfestingaverkefna.

Stýrihópur verkefnisins hefur það hlutverk að skila stjórnvöldum tillögum að umbótum og halda sameiginlega utan um samræmda upplýsingagjöf og þjónustu við verkefni sem falla undir Græna dregillinn.

Græni dregillinn leggur áherslu á að undirbúa atvinnusvæði svo þar sé hægt að fullnýta auðlindastrauma og efla hringrásarhagkerfið. Þar er vísað til þess að ýmislegt fellur til í rekstri eins fyrirtækis, sem getur nýst sem hráefni annars fyrirtækis. Um leið er stefnt að því að einfalda fjárfestingarferla og markaðssetja tækifæri víða um land á markvissan hátt,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Grænir iðngarðar á Bakka við Húsavík

Í undirbúningi er að reisa græna iðngarða á Bakka við Húsavík, sem er samstarfsverkefni Norðurþings, ANR, Íslandsstofu og Lands­virkjunar og tengist hugmyndafræðilega verkefninu um Græna dregilinn.

Gert er ráð fyrir að greining á samkeppnisstöðu Íslands og almennum skilyrðum til uppbyggingar grænna iðngarða nýtist öllum áhugasömum aðilum. Samkvæmt verkáætlun fyrir grænu iðngarðana á almenn skýrsla um tækifæri á sviði grænna iðngarða, meðal annars með hliðsjón af þróuninni í öðrum löndum, að vera tilbúin fyrir lok júní. Einnig yfirlit yfir rekstrarumhverfi, fjármögnunarmöguleika, ferla og lagaramma um græna iðngarða og tillögur til stjórnvalda um umbótaverkefni – auk forkönnunar á aðstæðum og tækifærum á Bakka við Húsavík fyrir grænan iðngarð. 

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...