Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Ræktun á iðnaðarhampi er orðin stór atvinnugrein í Kanada og víðar um heim.
Ræktun á iðnaðarhampi er orðin stór atvinnugrein í Kanada og víðar um heim.
Fréttir 22. apríl 2020

Ræktun iðnaðarhamps verður heimiluð með skilyrðum

Höfundur: Vilmundur Hansen

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis­ráðherra hefur með breytingu á reglugerð nr. 233/2001 veitt Lyfjastofnun undanþáguheimild með stoð í 2. gr. laga um ávana- og fíkniefni sem gerir inn­flutning, meðferð og vörslu fræja til ræktunar iðnaðarhamps mögulega.


Heimildin er háð skilyrðum og takmörkunum svo tryggt sé að ekki verði fluttar inn eða ræktaðar plöntur sem innihalda vímuefnið THC í nýtanlegu magni, eða að hámarki 0,2%.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Mikill áhugi fyrir ræktun

Vaxandi áhugi er fyrir ræktun iðnaðarhamps hér á landi til að nota í ýmsum iðnaði, t.d. við framleiðslu húsgagna og sem byggingarefni en talið er að iðnaðarhampur geti komið í staðinn fyrir ýmis efni sem ógna umhverfinu, eins og t.d. plasts.

Iðnaðarhampur er ein tegund kannabis en planta með því heiti er ýmsum kunn sem vímugjafi.

Vímuvaldurinn í kannabis er virka innihaldsefnið THC sem auk þess að valda vímu er ávanabindandi. Iðnaðarhampur, þ.e. þau yrki kannabisplöntunnar sem ræktuð eru til iðnaðarframleiðslu, eru aftur á móti frábrugðin hefðbundnum yrkjum plöntunnar þar sem þau innihalda lítið sem ekkert af THC.

Leyft gegn skilyrðum í Svíþjóð og Danmörku

Sé litið til regluverks annarra þjóða varðandi ræktun iðnaðarhamps þá er ræktun á tilteknum yrkjum sem innihalda minna en 0,2% af THC heimil að uppfylltum tilteknum skilyrðum í Svíþjóð og Danmörku. Svo er aftur á móti ekki í Noregi en þar eru þessi mál til skoðunar um þessar mundir.

Fellur undir styrkjakerfi ESB

Innan Evrópusambandsins hefur ræktun á iðnaðarhampi verið hluti af styrkjakerfi ESB frá árinu 2000.

Reglugerðarbreyting aðeins tímabundin ráðstöfun

Svandís Svavarsdóttir heil­brigðis­­ráðherra leggur áherslu á að reglugerðarbreytingin sé tímabundin ráðstöfun: „Ávana- og fíkniefnalöggjöfin hefur skýr markmið og tilgang sem fellur augljóslega að málefnasviðum heil­brigðisráðuneytisins. Það gerir sú ræktun sem hér um ræðir hins vegar ekki, að því gefnu að hún stangist ekki á við inntak og markmið þessara sömu laga,“ segir ráðherra. Hún segir því nauðsynlegt að skipa starfshóp til að koma þessum málum í farveg, ekki síst til að skýra lagagrundvöllinn og ábyrgð þeirra stofnana sem þurfa að koma að framkvæmdinni þegar kemur að leyfisveitingum og eftirliti með ræktun iðnaðarhamps.

Þurfa að vinna saman

„Heilbrigðisráðuneytið og atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið þurfa að vinna þetta saman ásamt þeim stofnunum ráðuneytanna þar sem nauðsynleg þekking er fyrir hendi,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sem stefnir að því að skipa slíkan starfshóp sem fyrst.

Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum og tekur gildi við birtingu, eigi síðar en 21. apríl næstkomandi.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...