Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Kvennasamband Eyjafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin á Kristnesspítala vegna skorts á nauðsynlegu viðhaldi og úrbótum um áraraðir.
Kvennasamband Eyjafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin á Kristnesspítala vegna skorts á nauðsynlegu viðhaldi og úrbótum um áraraðir.
Mynd / mhh
Fréttir 18. maí 2026

Óttast að Kristnesspítala verði lokað

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Um 280 konur í Kvennasambandi Eyjafjarðar óttast mjög að Kristnesspítala í Eyjafirði verði lokað vegna lélegs ástands spítalans og mikils skorts á viðhaldi.

Kristnesspítali var stofnaður árið 1927 en spítalinn var byggður í þeim tilgangi að einangra og meðhöndla berklasjúklinga en hlutverk hans hefur breyst mikið í gegnum árin. Á aðalfundi Kvennasambands Eyjafjarðar, sem var nýlega haldinn á Ólafsfirði, var samþykkt sérstök ályktun um Kristnesspítala.

„Ástæðan er fyrst og fremst sú að það er verulegt áhyggjuefni hjá okkur ef starfsemin leggst niður, ekki bara sem vinnustaður heldur sem mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir Birgit Schov, formaður sambandsins, og bætir við: „Það var 100 prósent samstaða um ályktunina á fundinum enda höfum við og samfélagið allt miklar áhyggjur af stöðunni á Kristnesi.“

Í ályktuninni segir m.a. orðrétt: „Endurhæfingardeildin á Kristnesspítala gegnir lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustu fyrir íbúa Norðurlands og víðar. Þar fer fram mikilvæg þjónusta við einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri endurhæfingu að halda eftir veikindi, slys eða skurðaðgerðir. Núverandi ástand húsnæðis og skortur á viðhaldi ógna þessari starfsemi með alvarlegum hætti. Sambandið telur brýnt að gripið verði tafarlaust til aðgerða til að tryggja öruggt og viðunandi umhverfi fyrir sjúklinga og starfsfólk.“

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...