Með nýju diplómanámi vill Landbúnaðarháskóli Íslands bjóða fólki með góðan grunn í hestamennsku stutt og markvisst nám í tamningum.
Með nýju diplómanámi vill Landbúnaðarháskóli Íslands bjóða fólki með góðan grunn í hestamennsku stutt og markvisst nám í tamningum.
Mynd / LBHÍ
Viðtal 20. maí 2026

Nýtt diplómanám í tamningum á Hvanneyri

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Landbúnaðarháskóli Íslands hyggst bjóða upp á nýtt diplómanám í tamningum til að bregðast við þörf á stuttu og markvissu námi í greininni. Áhersla verður lög á verklega þjálfun sem er byggð á sterkum faglegum grunni.

Námið verður eitt skólaár að meðtöldu verknámi og er það hugsað fyrir fólk sem þegar hefur góðan grunn í hestamennsku en vill sérhæfa sig í tamningu hesta með það fyrir augum að starfa í greininni. Linda Rún Pétursdóttir yfirkennari og Helgi Eyleifur Þorvaldsson námsbrautarstjóri segja í samtali að skólinn hafi orðið var við þörf á styttra námi fyrir þá sem vilja sérhæfa sig í tamningum. 

Linda Rún Pétursdóttir yfirkennari.

Mikil áhersla á verklega færni

„Fólk er í minna mæli tilbúið að skuldbinda sig í þriggja til fimm ára nám,“ segir Helgi og bendir á að slíkar breytingar sjáist einnig erlendis. Uppsetning námsbrautarinnar bjóði jafnframt upp á talsverðan sveigjanleika þar sem nemendur eru ekki skuldbundnir til þess að klára bæði haust- og vorönn. Hins vegar þurfi að ljúka öllu náminu til að fá diplómagráðu, en hluti þess geti engu að síður nýst sem undirbúningur fyrir frekara nám. „Við erum meira að hugsa um fólk sem vill geta starfað við tamningar eða reka tamningastöð,“ segir Linda og tekur fram að slíkt hafi ekki verið jafnaðgengilegt í núverandi námsleiðum.  „Nemendur verða í hesthúsinu alla daga,“ segir Linda og leggur áherslu á að verkleg kennsla verði fyrirferðarmikil í náminu. Samhliða þessu fá nemendur fræðilega kennslu í meðal annars líffræði, heilsufræði og atferli hrossa. Einnig verður sérstök áhersla lögð á knapaþjálfun og líkamsvitund. „Til að vera góður tamningamaður þarftu að hafa gott jafnvægi,“ segir Linda og bætir við að nemendur fái einstaklingsmiðaða þjálfun til að bæta sig sem knapar og auka skilning á samspili manns og hests.

Helgi Eyleifur Þorvaldsson námsbrautarstjóri.

Að mati Helga er þessi samsetning lykilatriði. „Þetta er ekki bara byggt á tilfinningu heldur viljum við líka tengja þetta við rannsóknir og greiningu,“ segir hann og nefnir að notast verði við tæknilausnir til að greina hreyfingar og viðbrögð hesta, sem geti bætt kennslu og þjálfun. Akademíski rannsóknarhlutinn verður leiddur af dr. Sigríði Björnsdóttur, prófessor í hestafræði við LbhÍ, og með því fléttast rannsóknir í hestafræði saman við nýju námsbrautina. „Við viljum bæði mennta góða tamningamenn og byggja upp þekkingu sem nýtist til framtíðar,“ segir Helgi.  

Frá fortamningum til þjálfunar

Námið skiptist í nokkra áfanga sem fylgja þróun hests frá fyrstu snertingu til markvissrar þjálfunar. „Við byrjum á fortamningum þar sem við venjum hross við manninn og grunnmeðferð,“ segir Linda og útskýrir að síðan taki við frumtamning og áfangar í þjálfun unghrossa. Nemendur vinna með nokkur hross á sama tíma og læra að meta stöðu þeirra, en þeim eru úthlutuð ótamin trippi. „Þau þurfa að geta greint hvort hross sé tilbúið að halda áfram eða þurfi meiri tíma,“ segir Linda og bendir á að þetta sé mikilvæg færni sem ekki sé hægt að kenna með einföldum reglum.

Hún leggur áherslu á að hverju trippi verði mætt á eigin forsendum. „Við erum ekki að vinna með mótorhjól,“ segir hún og bætir við að nemendur þurfi að læra að lesa í atferli hrossa og aðlaga aðferðir að hverju tilviki.

Helgi tekur undir þetta og segir námið geta haft áhrif á þróun greinarinnar. „Við þurfum meira af menntuðu fólki í tamningum,“ segir hann og bætir við að aukin þekking geti skilað betri árangri og meiri velferð fyrir hrossin. Þrátt fyrir að námið sé stutt er gert ráð fyrir að það geti nýst sem grunnur að frekara námi og bendir Helgi á að unnið sé að því að tengja diplómuna betur við hestafræði. Benedikt Líndal, Randi Holaker, Haukur Bjarnason og Magnús Lárusson munu koma að náminu sem stundakennarar eða ráðgjafar. 

Skylt efni: Hestar | dýratamningar | LbhÍ

Landnámssetrið 20 ára
Fréttir 20. maí 2026

Landnámssetrið 20 ára

Miðvikudaginn 13. maí eru 20 ár liðin frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi o...

Afréttamálafélags Flóa og Skeiða – fyrstu heiðursfélagarnir heiðraðir
Fréttir 20. maí 2026

Afréttamálafélags Flóa og Skeiða – fyrstu heiðursfélagarnir heiðraðir

Afréttamálafélag Flóa og Skeiða, sem er 73 ára gamalt félag, gerði á aðalfundi s...

Norðurslóðir hitna hraðast
Fréttir 19. maí 2026

Norðurslóðir hitna hraðast

Evrópa er sú heimsálfa sem hitnar hraðast og hitabylgjur teygja sig úr Miðjarðar...

Norðmenn geti ekki reitt  sig eingöngu á fisk
Fréttir 19. maí 2026

Norðmenn geti ekki reitt sig eingöngu á fisk

Þrátt fyrir að Noregur sé ein stærsta fiskveiðiþjóð heims er þjóðin ekki í þeirr...

Sláturfélagið byggir nýtt stórgripasláturhús
Fréttir 19. maí 2026

Sláturfélagið byggir nýtt stórgripasláturhús

Sláturfélag Suðurlands (SS) hefur ákveðið að byggja nýtt stórgripasláturhús við ...

Umhverfisviðurkenning veitt fyrir framúrskarandi störf
Fréttir 19. maí 2026

Umhverfisviðurkenning veitt fyrir framúrskarandi störf

Fyrirtækin Humble og Krónan hlutu á dögunum Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu um...

Verðlaunuð fyrir kynbótahrút
Fréttir 19. maí 2026

Verðlaunuð fyrir kynbótahrút

Fanney Ólöf Lárusdóttir og Sverrir Gíslason á bænum Kirkjubæjarklaustri II fengu...

Danir glíma við gamlar syndir  í vatnsverndarmálum
Fréttir 19. maí 2026

Danir glíma við gamlar syndir í vatnsverndarmálum

Vatnsverndarmál voru mikið til umræðu fyrir síðustu þingkosningar í Danmörku, en...