Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Nemendur í Garðyrkjuskólanum á Reykjum hafa sent Ingu Sæland menntamálaráðherra bréf þar sem þess er krafist að ástand skólastarfsins verði lagað.
Nemendur í Garðyrkjuskólanum á Reykjum hafa sent Ingu Sæland menntamálaráðherra bréf þar sem þess er krafist að ástand skólastarfsins verði lagað.
Mynd / HKr
Fréttir 5. maí 2026

Nemendur krefjast úrbóta

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

− Biðla til ráðherra um að ástand skólastarfs verði lagað

Nemendur við Garðyrkjuskólann á Reykjum hafa sent Ingu Sæland menntamálaráðherra bréf þar sem krafist er úrbóta á stöðu garðyrkjunámsins, sem þeir telja að standi völtum fótum.

Fram kemur að grípa þurfi inn í, ekki seinna en strax. „Þegar Garðyrkjuskólinn á Reykjum var færður frá Landbúnaðarháskóla Íslands undir hatt Fjölbrautaskóla Suðurlands fylgdu loforð um rekstrarfé sem átti að samsvara umfangi námsins. Vissulega er rekstrarféð eitthvað, en alls ekki það sem lofað var og alls ekki í samræmi við umfang námsins,“ segir í bréfinu.

Verknámshús slysagildra

Í bréfinu er stöðunni í skólanum lýst eins og hún blasir við nemendum. Þar segir að verknáms- hús skrúðgarðyrkjunnar, gamalt gróðurhús sem nota átti til bráðabirgða fyrir 20 árum, sé orðið slysagildra og oft þurfi að fresta kennslu vegna hættu á að gluggar fjúki úr og lendi á fólki.

Þá eru nemendur uggandi yfir því að ekki sé öruggt að nýir kennarar verði ráðnir til starfa í haust í stað tveggja kennara sem hætta í vor vegna aldurs.

Sjálfstæður skóli

„Atvinnulífið vill sjá skólann verða sjálfstæðan, enda er skólinn okkar fyrir alla landsmenn. Við eigum litla samleið með Fjölbrautaskólanum sem er stofnun ætluð fyrir ungt fólk á Suðurlandi, og býður ekki upp á fjarnám eins og Garðyrkjuskólinn gerir.

Ekki eru nema 4 ár síðan við stóðum síðast á krossgötum og vissum ekki hvert framhaldið yrði. Þá var okkur bjargað út úr Landbúnaðarháskólanum og skellt undir FSU með loforðum um að allt yrði betra. Staðan hefur lítið breyst síðan þá og það er afskaplega sárt.

Því biðjum við þig, menntamálaráðherra, þig sem stendur vörð um menntamál landsins, að grípa í taumana áður en allt fer í skrúfuna og rétta Garðyrkjuskólann við svo við getum haldið áfram að auðga landið okkar með þekkingu og fagmennsku í farteskinu,“ segir enn fremur í bréfinu.

Sex námsbrautir

Nemendurnir segja að Garðyrkjuskólinn á Reykjum mennti garðyrkjufólk á sex námsbrautum. Þeir nemendur sem útskrifast frá skólanum séu vel í stakk búnir til að tryggja framtíð garðyrkju á Íslandi.

Þetta séu garðyrkjufræðingar, af brautum ylræktar annars vegar og lífrænnar ræktunar hins vegar, sem vinna að því að tryggja fæðuöryggi í landinu með ræktun matvæla. Nemendur af braut garð- og skógarplöntuframleiðslu læri ræktun hvers konar plantna sem gagnist meðal annars vegna skuldbindinga landsins í loftslagsmálum. Sama eigi við um nemendur af braut skógar og náttúru sem læra nýrækt og umhirðu skóga til að hámarka nýtingu þeirra.

„Blómaskreytar fegra umhverfi okkar, búa til skreytingar fyrir öll stærstu tilefni lífsins og læra í leiðinni að nýta efni úr nærumhverfinu. Síðast en ekki síst eru það skrúðgarðyrkjunemendur sem fara út í lífið með fagþekkingu á umhirðu grænna svæða, landmótun og hellulögnum svo eitthvað sé nefnt,“ segir í bréfi nemenda. 

Lágmarks mannafli

Þeir segja að kennararnir á Reykjum séu fagfólk með margra áratuga reynslu og þekkingu í farteskinu. Glatist þessi þekking sé ekki hægt að mennta fyrsta flokks garðyrkjufólk sem hefur þekkingu og getu til að rækta matvæli og gróður fyrir landið okkar.

Ekki sé það sama að fara í sambærilegt nám erlendis, því þar séu allt önnur ræktunarskilyrði sem yfirfærast ekki á okkar umhleypinga- sama Ísland.

Ár eftir ár hafi skólinn verið keyrður áfram með algjörum lágmarks mannafla og það sjáist auðvitað á útisvæðum og innviðum, það sé ekki nægilega margt fólk til að ráða við þetta allt. Spurningin sé hversu lengi hægt sé að keyra svona stofnun á lágmarks mannskap og undir lágmarks rekstrarfé.

Undir bréfið skrifar Jóhanna Íris Hjaltadóttir fyrir hönd nemenda Garðyrkjuskólans á Reykjum. 

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...