Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Úðað á hrísgrjónaakur.
Úðað á hrísgrjónaakur.
Mynd / Pixabay
Utan úr heimi 2. október 2026

Nær helmingur bænda verður fyrir eitrunum

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Um helmingur bænda heimsins verður árlega fyrir eitrunaráhrifum af völdum skordýra- og illgresiseyða. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem birt var í vísindatímaritinu Frontiers in Public Health í upphafi mánaðar.

Hæsta hlutfall tilvika eitrunar er í Burkina Faso þar sem eitrunaráhrif eru skráð meðal 84% bænda og verkafólks í landbúnaði. Áætlað er að á heimsvísu megi árlega rekja um 11.000 dauðsföll til eitrunaráhrifa, flest á Indlandi. Mesti áætlaði fjöldi tilvika um eitrunaráhrif var í Suður- og Suðaustur-Asíu og AusturAfríku. Samkvæmt The Guardian er þetta áreiðanlegasta rannsóknin sem gerð hefur verið á þessu sviði.

Bráð eitrun meðal 46% bænda

Áætlað er að um 11.000 dauðsföll bænda og þeirra sem starfa í land- búnaði megi árlega rekja til eitrunar frá ákveðnum plöntuvarnarefnum. Þar af eru um 60% tilvika á Indlandi.

Í rannsókninni er áætlað að árlega komi upp 402-433 milljónir tilvika bráðrar eitrunar af þessum plöntuvarnarefnum. Ekki er um ásetning að ræða. Talið er að bændur heims telji um 934 milljónir. Tilvikum eitrunar verður því árlega vart hjá 46% bænda miðað við niðurstöðuna. Ekki var horft til áhrifa eitrunar á áætlaðar 84 milljónir barna sem vinna í landbúnaði.

Eitrunin er af völdum svokallaðra HHP efna (Highly hazardous pesticides), sem eru ýmis plöntuvarnarefni sem teljast mjög hættuleg. Könnun Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO), frá árinu 2021, leiddi í ljós að 6-10% af skráðum tegundum skordýraeiturs í löndum Afríku, Karíbahafsins og Kyrrahafsins, eru umrædd HHP efni.

Rannsóknin var unnin að beiðni Pesticide Action Network og byggir á opinberum gögnum frá árunum 20062023.

Möguleg tengsl við Parkinson

Parkinson-sjúkdómurinn verður æ algengari á heimsvísu. Frakkland, Þýskaland og Ítalía hafa viðurkennt sjúkdóminn sem atvinnusjúkdóm hjá bændum. Hélène Nicora, fram- kvæmdastjóri Parkinson’s Europe, segir „yfirgnæfandi vísbendingar“ benda til þess að Parkinson eigi rætur að rekja til umhverfisþátta, en vaxandi gögn tengja útsetningu fyrir plöntuvarnarefnum við þróun sjúkdómsins.

Hættuástand afhjúpað

Í umfjöllun The Guardian um málið segir framkvæmdastjóri Pesticide Action Network á Indlandi, Jayakumar Chelaton, rannsóknina draga fram í dagsljósið „hættuástand sem ekki er lengur hægt að horfa fram hjá“.

Höfundar skýrslunnar kalla eftir tafarlausum aðgerðum og beina sjónum sínum að tilmælum sem Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið út um að fasa út notkun mjög hættulegra plöntuvarnarefna til að vernda heilsu og umhverfi. Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin hefur gert slíkt hið sama.

Í skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir tilraunir um allan heim til að sýna fram á hættuna af notkun slíkra efna, hafi hún aukist jafnt og þétt, og tvöfaldast frá árinu 1990 til 2023. Heildarnotkun árið 2023 hafi verið 3,8 milljónir tonna.

Dr. Sheila Willis, alþjóðafulltrúi Pesticide Action Network á Bretlandi, segir um niðurstöðurnar: „Nú þegar umfang þjáningarinnar hefur verið afhjúpað, þarf að styðja við bændur til að fá aðgang að öruggari valkostum til að vernda heilsu sína og fjölskyldu sinnar.“ 

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Matarmót Austurlands á laugardaginn
Fréttir 12. nóvember 2026

Matarmót Austurlands á laugardaginn

Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum la...

Miðdalur fyrirmyndarbú
Fréttir 11. nóvember 2026

Miðdalur fyrirmyndarbú

Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar n...

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt s...

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...