Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Tilmann Disselhoff, framkvæmda- stjóri NABU Climate Fund, og Ragn- heiður Þórarinsdóttir, rektor Land- búnaðarháskóla Íslands.
Tilmann Disselhoff, framkvæmda- stjóri NABU Climate Fund, og Ragn- heiður Þórarinsdóttir, rektor Land- búnaðarháskóla Íslands.
Mynd / Aðsend
Fréttir 17. september 2026

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis

Höfundur: Þröstur Helgason

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBhÍ) og NABU Climate Fund hafa undirritað samstarfssamning um stuðning við endurheimt framræsts votlendis á Hvanneyri og í nágrenni þess. Samningurinn gildir til ársins 2031.

Með samningnum skuldbindur NABU Climate Fund sig til að leggja fram fjármagn til endurheimtar nokkurra framræstra votlendissvæða á láglendi við Hvanneyri. Auk þess munu votlendissérfræðingar NABU, sem teljast meðal fremstu sérfræðinga Evrópu á þessu sviði, veita stuðning við rannsóknir og mælingar innan Mýralífsverkefnisins (PEATLAND LIFEline) á Íslandi. Undirritun samningsins fór fram í vikunni, af Ingo Ammermann, framkvæmdastjóra NABU Climate Fund, og Ragnheiði Þórarinsdóttur, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.

Í fréttatilkynningu frá skólanum kemur fram að votlendi gegni lykilhlutverki í loftslagsmálum og vernd líffræðilegrar fjölbreytni sé mikilvæg. „Framræst votlendi losar gróðurhúsalofttegundir, en með endurheimt þess má draga úr losun, bæta vistkerfi og efla búsvæði fjölmargra tegunda. Vernd og endurheimt þessara einstöku vistkerfa er því mikilvæg aðgerð í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og hnignun náttúrunnar.“

Landbúnaðarháskóli Íslands fagnar samstarfinu og lítur á samninginn sem mikilvægt skref í áfram- haldandi uppbyggingu þekkingar, rannsókna og framkvæmdaverkefna á sviði endurheimtar votlendis á Íslandi.

Skylt efni: LbhÍ | NABU

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...