Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Á myndinni er kvenfluga til vinstri og karlfluga til hægri.
Á myndinni er kvenfluga til vinstri og karlfluga til hægri.
Mynd / Matthías S. Alfreðsson
Fréttir 6. ágúst 2026

Moskítóflugur og mítlar

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Vöktun á moskítóflugum, mítlum og lúsmýi heldur áfram í sumar. Almenningur er hvattur til að tilkynna grun um moskítóflugur til Náttúrufræðistofnunar og safna mítlum sem finnast á fólki eða dýrum. Moskítóflugur fundust í fyrsta sinn á Íslandi síðastliðið haust.

Vöktun á svokölluðum smitferjum heldur áfram í sumar. Smitferjar eru til dæmis moskítóflugur, mítlar og lúsmý. Talið er mikilvægt að fylgjast með þróun mála hvað varðar moskítóflugur eftir að þær fundust í fyrsta sinn á Íslandi síðastliðið haust. Matvælastofnun í samvinnu við Náttúrufræðistofnun og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum fylgist með þessum lítt velkomnu gestum.

Moskítóflugur af tegundinni Culiseta annulata fundust í Kjós í fyrra. Tegundin er útbreidd víða í Evrópu og er stórvaxin. Hún hefur lagað sig að fremur köldu loftslagi og lifir veturinn af á fullorðinsstigi með því að leita skjóls svo sem í útihúsum og kjöllurum. Óþekkt er hvernig hún barst til Íslands en talið líklegt að hún hafi komið með vöruflutningum. Samkvæmt vef Náttúrufræðistofnunar bendir allt til að hún geti lifað við íslenskar aðstæður. Hlýnandi loftslag og auknir flutningar eru taldir skýra þann vaxandi fjölda nýrra skordýrategunda sem hafa greinst á Íslandi á undanförnum árum.

Finnist mítill á dýri eða manneskju er almenningur og dýralæknar hvattir til að skila sýnum til Náttúrufræðistofnunar eða Tilraunastöðvar HÍ að Keldum. Upplýsingar skulu fylgja um dagsetningu fundar, fundarstað, hvort hýsill var dýr eða maður og hvar sá hinn sami hefur haldið sig undanfarna daga. Tilkynningar um grun um moskítóflugur skulu sendar til Náttúrufræðistofnunar og þeim skal fylgja staðsetning fundar og ljósmynd sé þess kostur.

Skylt efni: Skordýr

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...