Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Markmiðið er að tryggja fæðuöryggi og sjálfbærni
Fréttir 3. janúar 2020

Markmiðið er að tryggja fæðuöryggi og sjálfbærni

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Í vinnuplani Evrópuráðsins frá því í október „Horizon 2020“ varðandi lífhagfræði fyrir komandi ár, er áhersla lögð á fæðuöryggi, sjálfbæran landbúnað og skógrækt samhliða auknum sjávar- og ferskvatnsrannsóknum. Er þetta í takt við samfélagsáskorun (Societal Challenge 2) með fjárfestingu upp á 1,3 milljarða evra á árunum 2018 til 2020. 
 
Bent er á að þetta sé hluti af áskorunum sem plánetan okkar stendur frammi fyrir um ókomin ár að laga sig að og draga úr loftslagsbreytingum. Það verði gert með því að tryggja fæðuöryggi, vernda náttúruauðlindagrunninn, stuðla að sjálfbærum valkostum í stað jarðefnaeldsneytisknúins hagkerfis. Sjálfbærri nýtingu á auðlindum hafsins og verndun hafanna. Landbúnaður og matvælaframleiðslukerfin, skógrækt, útgerð sem byggja á nýtingu lífríkisins eru að mati Evrópuráðsins kjarninn í þeim áskorunum sem takast þarf á við.
 
Vinnuáætlun SC2 leggur áherslu á sjálfbæra stjórnun lands og hafs til að tryggja hollan mat sem og líffræðilegan fjölbreytileika og hreint vatn. Enn fremur á það að styðja nýstárlegan matvæla- og sjávarútveg, lífhagkerfið og kraftmikla landsbyggð.
 
Um þessar mundir stendur heimsbyggðin einmitt frammi fyrir mikilli áskorun vegna afrísku svínapestarinnar sem fór að breiðast hratt um helstu svínaræktarlönd heims á árinu 2018 og 2019. Viðskipti með tugi milljóna tonna af kjöti eru að falla út og eitthvað þarf í staðinn og það með hraði. Þetta bætist við áhyggjur sem menn telja að muni stafa af hlýnandi loftslagi. Það er því engin tilviljun að þjóðir Evrópu sem og Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt áherslu á að ríki heims leggi ríka áherslu á fæðuöryggi til handa þegnum sínum. 
 
Gert er ráð fyrir að lausnirnar sem verða til af starfsemi SC2, muni skila umtalsverðum efnahagslegum, umhverfislegum og félagslegum ávinningi. Til dæmis er fjárfestingunni ætlað að beina sjónum að eflingu fjölbreytilegs landbúnaðar og heilbrigðs og öruggs matar, auka dýravelferð, sjálfbæra stjórnun jarðvegs og þróun örverufræðilegra umsókna.  Styðja brautryðjendastarf, stafræna byltingu og nýjar verðmætakeðjur í landsbyggðinni. 
 
Gert er ráð fyrir að nýjar hugmyndir, vörur, tækni, og nýjar samfélagslegar lausnir muni vinna í takt við að skapa stuðningsramma fyrir raunverulegar endurbætur. Það varðar hvernig  við framleiðum og neytum matar. Þetta er sagt vera í takt við væntingar samfélagsins um áhrifadrifnar rannsóknir. 
Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...