Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Séð yfir Hjúkrunar- og dvalarheimilið Klausturhóla.
Séð yfir Hjúkrunar- og dvalarheimilið Klausturhóla.
Mynd / Vefsíða Skaftárhrepps
Fréttir 18. mars 2026

Leitað eftir peningaaðstoð

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Viltu rétta hjálparhönd?“ er yfirskrift auglýsingar, sem var sett nýlega inn á íbúðasíðu Skaftár- hrepps á Facebook og hefur vakið þó nokkra athygli. Verið er að vekja athygli almennings á gagngerum og löngu nauðsynlegum endurbótum á eldhúsi Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Klausturhóla á Kirkjubæjarklaustri, sem á að ráðast í.

Verkefnið hefur nú þegar fengið 20 milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra en það dugir ekki til og því hefur heimilið leitað til íbúa sveitarfélagsins eða annarra um frekari fjárframlög til verkefnisins.

„Það er verið að byggja nýtt eldhús hjá okkur, sem verður vinnslueldhús fyrir Skaftárhrepp. Hingað til hefur allur matur verið eldaður í skólanum og fluttur til okkar og í leikskólann. Með nýju eldhúsi verður allt eldað á Klausturhólum og flutt út í skóla og leikskóla,“ segir Margrét Guðmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri Klausturhóla, aðspurð um málið.

Margrét segir að Framkvæmda- sjóður aldraðra borgi aldrei meira en 60% af kostnaðaráætlun verkefna eins og þessa og því sé verið að kalla eftir aðstoð úr samfélaginu. „Okkur langar að gera matsalinn fínan líka, skipta þá út innanstokksmunum þar og fá t.d. nýja góða stóla og því kæmu peningar samfélagsins vel í það verkefni,“ segir Margrét.

Skaftárhreppur á húsnæðið en Sjúkratryggingar borga fyrir hvert rými eins og á flestum hjúkrunarheimilum en á Klausturhólum eru alls sautján hjúkrunar- rými og tvö dvalarrými. Starfsmenn eru 20.

Skylt efni: Skaftárhreppur

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...