Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Það varpar skugga á sjálfbærniáherslur sem kynntar eru í ársskýrslu fyrirtækisins að enn séu gerðir samningar um ódýra orku til fyrirtækja sem auka útstreymi gróðurhúsalofttegunda Íslands.
Það varpar skugga á sjálfbærniáherslur sem kynntar eru í ársskýrslu fyrirtækisins að enn séu gerðir samningar um ódýra orku til fyrirtækja sem auka útstreymi gróðurhúsalofttegunda Íslands.
Skoðun 26. mars 2018

Landsvirkjun og íslenskur iðnaður

Höfundur: Albert Svan Sigurðsson
Starfsmenn Landsvirkjunar kynntu á haustfundi 2017 að hlýnun Jarðar gæti haft jákvæð áhrif á raforkukerfið þar sem bráðnun jökla mun auka flæði jökuláa og möguleikann á virkjun vatnsafls. 
 
„Það hefur alltaf verið mikil framhjárennsli í íslenska kerfinu og það mun halda áfram að vera svo, og ef spár loftslagsvísindamanna rætast mun framhjárennslið aukast.“ Svo segir einn starfsmaður Landsvirkjunar. 
 
Albert Svan Sigurðsson.
 
Bætt nýting uppistöðulóna er gott og göfugt markmið hjá Landsvirkjun. Yfir sumartímann nær t.d. Búrfellvirkjun ekki að anna öllu rennslinu og um 14% rennur framhjá, þess vegna er verið að útbúa þar viðbótarvirkjun sem nýtir þetta framhjárennsli og býr til úr því rafmagn án þess að bæta við nýjum lónum eða raska gróðurlendi.
 
Einnig var gott að heyra um áform um að Landsvirkjun hyggist binda meira kolefni en hún losar og sé að undirbúa orkuskipta- og rafmagnsvæðingu bílaflota landsmanna og taki þannig virkan þátt í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum. Þetta eru sjálfbærar áherslur og lýsa ríkri samfélagsábyrgð fyrirtækisins. Allt er þetta undirstrikað í rafrænni ársskýrslu fyrirtækisins sem tilbúin var í febrúar. 
 
En betur má ef duga skal, það vantar að bæta fjárfestingasiðferðið. Það er ekki gott að að stór hluti fjárfestinga Landsvirkjunar skuli vera til komnar vegna framleiðslu á rafmagni fyrir ósjálfbær og mengandi iðnfyrirtæki. Það varpar skugga á sjálfbærniáherslur sem kynntar eru í ársskýrslu fyrirtækisins að enn séu gerðir samningar um ódýra orku til fyrirtækja sem auka útstreymi gróðurhúsalofttegunda Íslands. Slíkt er hvorki í anda heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna sem Landsvirkjun hefur tekið í fóstur né loftslagsmarkmiða sem Ísland hefur sett sér. 
 
Forstjóri Landsvirkjunar sagði í erindi sínu á haustfundinum 2017 að svokölluð stóriðja sé inni í ETS, sem er viðskiptakerfi Evrópu með loftslagsheimildir, „sem er að virka vel“ og afgreiddi með þeim orðum losun frá mest mengandi starfsemi á Íslandi. Það má túlka orð forstjórans þannig að sú mengun komi sjálfbærnimarkmiðum og viðskiptum Landsvirkjunar ekki við. 
 
Þó er verulega óljóst hvort ETS kerfið „virki vel“ eða muni á endanum gera nokkuð gagn í loftslagsmálum. Þegar fram í sækir verður meira freistandi fyrir fjárfesta og eigendur iðnfyrirtækja að flytja þau frá Evrópu (e. carbon leakage) fremur en að greiða hærra verð fyrir losunarkvóta eða fjárfesta í mengunarvörnum. Þannig hefur ETS kerfið í raun frestað því að fulltrúar stjórnvalda taki á losunarvandanum og eftir sitja Íslendingar með mengandi stóriðju og engan árangur í loftslagsmálum. 
 
Stuðningur Landsvirkjunar við sjálfbæran íslenskan smáiðnað, nýsköpun, tækni og þróun gæti orðið ein besta fjárfesting fyrirtækisins fyrir samfélagið sem það á að þjóna. 
 
Tilgangur Landsvirkjunar er að stunda starfsemi á orkusviði ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni. Það er því stjórn fyrirtækisins sem markar stefnuna og fyrirtækinu ber síðan að greiða fjárhagslegan arð til eigandans, sem er íslenska ríkið. En arðgreiðslur verða því lægri eftir því sem Landsvirkjun þarf að fjárfesta í nýjum virkjunum til að anna eftirspurn vegna nýrrar erlendrar stóriðju. Oft í ósamræmi við samfélagsáherslur og sjálfbærnimarkmið fyrirtækisins. 
Stjórn Landsvirkjunar getur gert mun betur og hlúð að áherslum sínum og markmiðum með því að stighækka orkuverð til mengandi iðnaðar og stuðla þannig beint sem óbeint að eflingu atvinnugreina sem styðja við sjálfbærnimarkmið. Líkt og Landsvirkjun býður upp á samninga við gagnaver eins og Advania, ætti að reyna að bjóða upp á gjaldskrá með ódýrari orkuverðum fyrir fyrirtæki sem tengist sjálfbærum rekstri hvers konar eða vistvænni matvælaframleiðslu. 
 
Stuðningur Landsvirkjunar við sjálfbæran íslenskan smáiðnað, nýsköpun, tækni og þróun gæti orðið ein besta fjárfesting fyrirtækisins fyrir samfélagið sem það á að þjóna. Um leið dreifist áhætta í fjárfestingum og rekstri fyrirtækisins á fleiri greinar og verður lyftistöng fyrir íslenskt hugvit sem nýtir endurnýjanlega innlendrar orku. Þannig má segja tími sé kominn til að Landsvirkjun fjárfesti í mannauði Íslendinga. 
 
Albert Svan Sigurðsson.
Höfundur er umhverfis­landfræðingur og varamaður í stjórn Landsvirkjunar.
Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...

Töfrar Tálknafjarðar
Fréttir 24. nóvember 2026

Töfrar Tálknafjarðar

Nýtt byggðaþróunarverkefni undir heitinu Töfrar Tálknafjarðar hófst formlega með...

Fjölmargir arnarungar komnir á legg
Fréttir 23. nóvember 2026

Fjölmargir arnarungar komnir á legg

58 arnarungar komust á legg í sumar. Varp fannst auk þess á þremur áður óþekktum...