Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Langflestir gestanna sem skoða  Landnáms- og Egilssýninguna eru erlendir ferðamenn. En þó koma við oft íslenskir skólahópar og fjölskyldur í heimsókn.
Langflestir gestanna sem skoða Landnáms- og Egilssýninguna eru erlendir ferðamenn. En þó koma við oft íslenskir skólahópar og fjölskyldur í heimsókn.
Fréttir 20. maí 2026

Landnámssetrið 20 ára

Höfundur: Þröstur Helgason

Miðvikudaginn 13. maí eru 20 ár liðin frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi og af því tilefni er íbúum Borgarbyggðar boðið í afmæliskaffi og köku frá kl. 15:30-17:30. Einnig gefst gestum kostur á að skoða sýningarnar um Landnámið og Egils sögu sér að kostnaðarlausu.

Aðalflaggskip Landnámssetursins eru sýningarnar um landnámið og Egilssögu en við opnunina var einnig frumsýndur einleikur Benedikts Erlingssonar, Mr. Skallagrímsson, sem átti eftir að slá rækilega í gegn. Sýningarnar urðu hátt í 300 og Benedikt fékk Grímuverðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki og fyrir besta handrit. Auk þess var sýningin tilnefnd sem besta leiksýning ársins. Leikstjóri var sænski leikstjórinn Peter Engkvist.

Allar þessar sýningar eru til húsa í gömlu pakkhúsi sem gert var sérstaklega upp af þessu tilefni. Kjallarinn var grafinn út og þar er Egilssýningin – Landnámssýningin er á miðhæðinni en leiksýningarnar sem nú skipta tugum eru á pakkhúsloftinu sem kallast Söguloft. Byggð var glæsileg tengibygging milli Pakkhússins og veitingastaðarins Búðarkletts en þetta eru elstu húsin í Borgarnesi.

Í fréttatilkynningu frá setrinu segir að langflestir gestanna sem skoða Landnáms- og Egilssýninguna séu erlendir ferðamenn. En þó komi við oft íslenskir skólahópar og fjölskyldur í heimsókn. Farið er í gegnum sýningarnar með hljóðleiðsögn sem til er á 15 tungumálum auk sérstakrar barnaleiðsagnar á íslensku.

Skylt efni: Borgarnes | Landnamssetur

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...