Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Vinstra hjól; Upphafsástand vistkerfis fyrir inngrip, metið með vistfræðilega batahjólinu. Hægra hjól: Ástand vistkerfis tíu árum eftir inngrip, metið með vistfræðilega batahjólinu.
Vinstra hjól; Upphafsástand vistkerfis fyrir inngrip, metið með vistfræðilega batahjólinu. Hægra hjól: Ástand vistkerfis tíu árum eftir inngrip, metið með vistfræðilega batahjólinu.
Mynd / Aðsend
Skoðun 20. mars 2026

Landið er orðið grænna, en hvað segir það um okkur?

Höfundur: Katrín Valsdóttir
Katrín Valsdóttir

Við friðum svæði fyrir beit, lokum skurðum, sáum eða gróðursetjum. Nokkrum árum síðar lítur landið betur út eftir aðgerðir í endurheimt: gróðurþekjan hefur aukist og jarðvegurinn virðist orðinn stöðugri. En er það nóg til að segja að vistkerfið hafi náð sér? 

Aukinn gróður er jákvætt merki, en hann segir ekki alla söguna. Land getur orðið grænna án þess að líffræðileg fjölbreytni aukist eða að vistfræðilegir ferlar nái sér að fullu á strik. Í heilbrigðu vistkerfi vinna margir þættir saman: jarðvegur byggist upp og bindur kolefni, hringrás næringarefna gengur eðlilega fyrir sig og lífverur mynda flókið samspil sín á milli og við nærliggjandi svæði. Þegar þessir ferlar komast í jafnvægi eykst stöðugleiki vistkerfisins og geta þess til að bregðast við breytingum. Endurheimt vistkerfa felst því í því að styðja við þessa ferla og skapa skilyrði fyrir að þeir komist aftur í gang. 

Til að meta hvort við séum á réttri leið þurfum við skýra sýn á það sem stefnt er að. Sú sýn kallast viðmiðunarvistkerfi. Það er lýsing á því vistkerfi sem eðlilegt væri að finna á tilteknu svæði miðað við jarðveg, loftslag og vistfræðilega sögu þess. Viðmiðunarvistkerfi er því ekki einföld tilraun til að endurskapa fortíðina, heldur þekkingargrunduð sýn á það ástand sem vistkerfið getur þróast í. Hún byggir á rannsóknum, gögnum og þekkingu á svæðinu og tekur jafnframt mið af breytingum sem geta átt sér stað í framtíðinni. Viðmiðunarvistkerfi hjálpa okkur þannig að sjá heildarmyndina og vera leiðandi vegvísir í endurheimt.  

Til að gera slíkt mat markvissara hafa alþjóðleg vistheimtarsamtök (SER), þróað verkfæri sem kallast vistfræðilegt batahjól. Hugmyndin á bakvið batahjólið er að meta framvindu hnignaðs  vistkerfis í átt að viðmiðunarvistkerfinu. Þar er ástand vistkerfis metið út frá lykileiginleikum, svo sem tegundasamsetningu, vistfræðilegri virkni og tengslum við aðliggjandi vistkerfi. Niðurstöðurnar eru settar fram á kvarða frá einni upp í fimm stjörnur. Því hærri sem einkunnin er, þeim mun nær er vistkerfið því ástandi sem stefnt er að og þeim mun meiri líklegra er að helstu vistfræðilegir ferlar starfi með eðlilegum hætti. Batahjólið veitir þeim sem koma að endurheimt skýra mynd af því hvort þróunin sé í samræmi við skilgreint viðmiðunarvistkerfi. Jafnframt gerir það okkur kleift að greina snemma í ferlinu  ef aðgerðir skila ekki tilætluðum árangri og aðlaga eftir þörfum. 

Endurheimt snýst því ekki aðeins um þær aðgerðir sem ráðist er í, heldur hvernig vistkerfið þróast eftir að þeim lýkur. Þegar náttúrulegir ferlar styrkjast og vistkerfið heldur áfram að þróast með sífellt minni stuðningi frá okkur, þá er endurheimtin farin að bera raunverulegan árangur. 

Þegar við horfum á land sem er orðið grænna er því spurningin ekki aðeins hvort það líti betur út, heldur hvort vistkerfið sé á leið í þá átt sem eðlileg er fyrir svæðið. Viðmiðunarvistkerfi og vistfræðilega batahjólið hjálpa okkur að sjá þá þróun skýrar og fylgjast með hvort landið sé ekki aðeins að grænka, heldur að ná sér. 

Höfundur er sérfræðingur hjá Landi og skógi.

Skylt efni: vistkerfi | Land og skógur

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Kolfinna Vísa
30. október 2026

Kolfinna Vísa

Dagur sauðkindarinnar
30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Uxaeldi í Reykjahlíð
30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá
27. október 2026

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá

Bruggar villiöl úr íslensku geri
30. október 2026

Bruggar villiöl úr íslensku geri

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f