Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Guðný Rósa Þorvarðardóttir framkvæmdastjóri hjá N1 og Svavar Halldórsson framkvæmdastjóri Icelandic Lamb undirrituðu samninginn á Nestisstöð N1 í Borgarnesi.
Guðný Rósa Þorvarðardóttir framkvæmdastjóri hjá N1 og Svavar Halldórsson framkvæmdastjóri Icelandic Lamb undirrituðu samninginn á Nestisstöð N1 í Borgarnesi.
Fréttir 26. janúar 2018

Kjötsúpa verði skyndibiti ferðamanna

Höfundur: Vilmundur Hansen

N1 og markaðsstofan Icelandic Lamb undirrituðu í dag samstarfssamning sem innsiglar víðtækt samstarf, vöruþróun og sameiginlegar markaðsaðgerðir til að auka sölu lambakjöts á Nestisstöðvum N1 um allt land. Undirbúningur hefur staðið frá því haustið 2017. Samningurinn var undirritaður í þjónustumiðstöð N1 við Brúartröð í Borgarnesi.

Það voru þau Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri hjá N1, og Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb, sem undirrituðu samninginn á Nestisstöð N1 í Borgarnesi.

Fjölbreytt flóra skyndirétta úr lambakjöti
Í fréttatilkynning vegna samningsins segir að í upphafi sé sérstök áhersla á að kynna íslenska kjötsúpu sem hollan og aðgengilegan íslenskan skyndibita fyrir ferðamenn. Bæði verður hægt að borða hana á staðnum eða taka með. Á næstu vikum og mánuðum bætast við fleiri skyndiréttir úr lambakjöti, m.a. steikarsamloka, lambasnitsel, lamb bearnaise og lamba-hamborgari. Þetta er afrakstur vöruþróunar undanfarinna mánaða þar sem lambakjötið er í aðalhlutverki. Með skírskotun til íslenskra hefða verður einnig boðið upp á hægeldaða lambaskanka með kartöflumús, sósu, rauðkáli og grænum baunum á sunnudögum.

Lágmarks umhverfisfótspor og afstaða með bændum
Fjölgun erlendra ferðamanna síðustu ár hefur sett svip sinn á íslenskan skyndibitamarkað. Með samstarfinu er ætlunin að bjóða ferðamönnunum að kynnast íslenska lambakjötinu eins og við Íslendingar þekkjum það best.  Um leið á að festa kjötsúpuna í sessi sem ekta íslenskan skyndibita og ómissandi hluta af því að upplifa íslenska matargerð og hefðir. Með því að setja íslenskt lambakjöt í öndvegi sem skyndibita við þjóðveginn vill N1 lágmarka umhverfisfótspor, uppfylla óskir viðskiptavina um hágæða skyndibita, kynna íslenska matarmenningu og taka afstöðu með íslenskum bændum.

Um N1 og Nesti
N1 rekur vel staðsettar þjónustustöðvar og verslanir um land allt undir merkjum N1 og Nestis. Undanfarin misseri hefur aukin áhersla verið lögð á ferskan og hollan skyndibita úr úrvals hráefni. Íslenskt lambakjöt fellur einkar vel að kröfum N1 vegna sérstöðu sinnar, gæða og hreinleika. N1 og Icelandic Lamb munu sameiginlega vinna að því að markaðssetja íslenska lambið sem hreina náttúruafurð og tilvalin skyndibita fyrir fólk á ferðinni.

Um Icelandic Lamb 
Markaðsstofan Icelandic Lamb er í eigu Markaðsráðs kindakjöts sem er samstarfsvettvangur Landssamtaka sauðfjárbænda, Landssamtaka sláturleyfishafa og Bændasamtaka íslands. Markaðsstofan rekur öfluga verðlaunaherferð gagnvart erlendum ferðamönnum undir sérstöku merki og er í samvinnu við um 150 aðila í veitingarekstri, smásölu, framleiðslu og hönnun sem setja lambakjöt og aðrar íslenskar sauðfjárafurðir í öndvegi.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...