Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 15. maí 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Gróðrarstöðin Mörk þarf að víkja af lóð sinni við Stjörnugróf í áföngum. Fyrsta hluta lóðarinnar afhendir hún á þessu ári, annan árið 2032 og stöðin þarf að vera endanlega farin af lóðinni árið 2050. Borgin mildaði sem sagt kröfur sínar gagnvart fyrirtækinu að því leyti að það þarf ekki að víkja fyrr en áratug síðar en upphaflega var farið fram á. Þetta er sorgleg niðurstaða.

Málið er klúður frá upphafi til enda. Ólafur F. Magnússon var borgarstjóri í 210 daga árið 2008. Eitt af hans embættisverkum var að mæta á hundrað ára afmæli knattspyrnufélagsins Víkings. Þar hélt hann ræðu og lofaði félaginu stærri lóð. Stuttu síðar stóð hann við orð sín og lagði þá tillögu fyrir borgarráð að Víkingur fengi lóðina sem Gróðrarstöðin Mörk stendur á þegar leigusamningur rynni út 2016. Eins og fram kemur í frétt blaðsins í dag átti Ólafur F. heima í Fossvoginum þegar þetta var. Nú átján árum síðar hefur borgarráð klárað málið með því að víkja Mörk af lóð sinni í áföngum.

Ef marka má bókun meirihlutans við afgreiðslu málsins er hann harla sáttur við niðurstöðuna. Málinu sé „lokið með besta mögulega hætti miðað við aðstæður“. Í bókuninni segir að mikill vilji sé „til þess að tryggja áframhaldandi rekstur gróðrarstöðvar í borginni og sérstaklega á þessum fallega og gróðursæla stað“. Eins sé „mikilvægt að standa við gefin loforð og tryggja viðunandi aðstöðu til íþróttaiðkunar“. Enn fremur segir: „Með þessu samkomulagi er komið til móts við Gróðrarstöðina Mörk, sem fær afnotaleyfi af hluta landsins til ársins 2050.“ Og svo: „Víkingur fær afhentan hluta lands til uppbyggingar íþróttamannvirkja í tvennu lagi, í lok árs 2026 og árið 2032.“

Í raun segja þessi orð ekki neitt um framtíðarhorfur Markar í Fossvogsdalnum. Mörk fær að vera til ársins 2050 á skertri lóð með tilheyrandi raski og kostnaði, en hvað svo? Í svokölluðu samkomulagi kemur ekkert fram um það hvort Mörk geti verið áfram á lóð sinni eftir árið 2050, annað en að „mikill vilji“ sé til þess á meðal borgarráðsfulltrúa núverandi meirihluta Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks, Flokks fólksins og Vinstri grænna. Þessi orð hafa í raun enga merkingu og fela ekki í sér neina tryggingu fyrir því að Mörk geti starfað áfram í Fossvogsdalnum eftir 2050 eins og hún hefur gert síðan árið 1967.

Minnihlutaflokkar taka í raun enga afgerandi afstöðu til málsins. Sjáfstæðisflokkurinn segist í bókun ekki leggjast gegn samkomulaginu, enda átti hann frumkvæði að því árið 2008. Þó segir einnig: „Mikilvægt er að tryggt sé að starfsemi Markar geti áfram verið á svæðinu til lengri tíma og að starfsemin hafi að minnsta kosti verið tryggð afnot af hluta svæðisins til ársins 2050.“ Og svo eru innantóm orð um að Gróðrarstöðin Mörk hafi „um áratugaskeið verið mikilvægur þáttur og hluti af sérkennum Fossvogsdals“. Framsóknarflokkurinn segir mikilvægt að tryggja „meðalhóf í ákvörðunum borgarinnar gagnvart Gróðrarstöðinni Mörk“ og hefur áhyggjur af fordæmisgildi ákvörðunarinnar.

Önnur mál af svipuðu tagi hafa sannarlega komið upp í borginni að undanförnu á Ártúnshöfðanum. Og spyrja má hvers fyrirtæki í Reykjavík mega vænta af borginni? Fátt bendir til þess að henni sé hægt að treysta.

Sömuleiðis stendur eftir sú spurning hversu miklum skaða þetta óheillamál hefur valdið Gróðrarstöðinni Mörk.

Matarmót Austurlands á laugardaginn
Fréttir 12. nóvember 2026

Matarmót Austurlands á laugardaginn

Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum la...

Miðdalur fyrirmyndarbú
Fréttir 11. nóvember 2026

Miðdalur fyrirmyndarbú

Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar n...

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt s...

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...

Nokkur hundruð kíló ruku út
Fréttir 9. nóvember 2026

Nokkur hundruð kíló ruku út

Matland brást skjótt við áhuga lesenda á að kaupa annars flokks lífrænar gulrætu...