Þátttakendur ráðstefnunnar stilltu sér upp fyrir hópmynd fyrir framan aðalbyggingu Haus Düsse-skólans.
Þátttakendur ráðstefnunnar stilltu sér upp fyrir hópmynd fyrir framan aðalbyggingu Haus Düsse-skólans.
Skoðun 3. nóvember 2026

Íslenskir frjótæknar á Evrópuráðstefnu í Þýskalandi

Höfundur: Andri Már Sigurðsson
Andri Már Sigurðsson.

Menntun frjótækna og aðbúnaður við meðhöndlun gripa voru meðal umræðuefna á ráðstefnu evrópskra frjótækna sem haldin var í Soest í Þýskalandi dagana 10. til 13. september sl. Ísland átti þar tvo fulltrúa. Ráðstefna Permanent Commission of European Insemination and Animal Breeding Technicians, samtaka fag- og stéttarfélaga frjótækna í Evrópu, var haldin í Soest í Þýskalandi. Samtökin voru stofnuð í Strassborg í Frakklandi árið 1981 og eru aðildarlöndin nú tólf talsins. Ísland bættist í hópinn árið 2022.

Ráðstefnan er haldin á tveggja ára fresti og varð Þýskaland fyrir valinu að þessu sinni. Þátttakendur voru alls 32 frá átta löndum. Fulltrúar Íslands voru Andri Már Sigurðsson, formaður Frjótæknafélags Íslands, og Guðmundur Jón Skúlason, ritari félagsins.

Þjóðverjarnir Uwe Møller (t.h.) og Hermann Josef Schmit (t.v.) fóru yfir stöðu nautgriparæktar í heimalandi sínu.

Vilja samræma menntun frjótækna

Margt bar á góma á ráðstefnunni. Meðal annars var rætt um menntun frjótækna og lögðu Þjóðverjar og Frakkar fram tillögu um að samræma menntun og menntunarkröfur frjótækna á milli Evrópulanda. 

Menntun og þær kröfur sem gerðar eru til frjótækna eru mjög mismunandi eftir löndum og er hugmyndin að stuðla að auknu samræmi á þessu sviði. Slíkar breytingar gætu hugsanlega haft áhrif á menntunarkröfur íslenskra frjótækna í framtíðinni.

Hertar kröfur um aðstöðu í Danmörku

Þá var greint frá reglugerðarbreytingu í Danmörku sem varðar aðstöðu til meðhöndlunar gripa í fjósum. Samkvæmt henni skulu allir gripir sem meðhöndla á vera í sérstíu eða fastir í læsigrind. Jafnframt skulu kýrnar standa á sama gólfi og sá sem meðhöndlar þær, en ekki uppi á legubás og ekki lausar kýr í kring. 

Nýtt tilraunafjós rís nú við Haus Düsse-skólann og fengu ráðstefnugestir að skoða bygginguna og kynnast áformum um starfsemina þar.

Aðstaða til meðhöndlunar gripa hér á landi er víðast hvar góð en engu að síður mætti bæta hana á sumum stöðum. Frjótæknar og aðrir sem sinna meðhöndlun gripa hafa lent í alvarlegum slysum við störf sín og því er mikilvægt að huga vel að öryggi og starfsaðstöðu.

Til að bæta enn frekar úr þessum málum hér á landi væri vert að skoða hvort sambærilegar reglur og þær sem teknar hafa verið upp í Danmörku gætu átt við hér á landi.

Gestir ráðstefnunnar fylgjast með erindi í salarkynnum Haus Düsse-skólans.

Heimsókn í Haus Düsse

Þátttakendur fóru einnig í skoðunarferðir um nágrenni Soest. Meðal annars var heimsótt Versuchs- und Bildungszentrum Landwirtschaft Haus Düsse, sem oftast er kallað Haus Düsse. Það er þekkt rannsóknar-, tilrauna- og menntastofnun á sviði landbúnaðar og er til húsa í sögufrægu kastalasetri frá 17. öld. Stofnunin er rekin af Landwirtschaftskammer, samtökum bænda á svæðinu, og fór ráðstefnan sjálf einnig fram þar.

Í lok ráðstefnunnar var ákveðið að sú næsta yrði haldin í Sviss eftir tvö ár.

BSE og BSSL styrktu þátttakendur til fararinnar og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir.

Höfundur er deildarstjóri hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...