Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Íslenskir bændur og ESB
Mynd / ál
Skoðun 13. ágúst 2026

Íslenskir bændur og ESB

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið er gríðarstór spurning fyrir alla landsmenn, en ekki síst fyrir okkur bændur. Það er því mikilvægt að sú spurning sé skoðuð vandlega, málið rýnt í kjölinn og að í kjölfarið fari fram upplýst og yfirveguð umræða áður en nokkur ákvörðun er tekin.

Þegar ríkisstjórnin ákvað í byrjun árs að halda kosningar um aðildarviðræður vissum við bændur að nauðsynlegt væri að gefa okkur tíma til að skoða málið vandlega. Á Búnaðarþingi í mars sl. var því skipuð sjö manna milliþinganefnd úr röðum bænda til að greina áhrif mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu á íslenskan landbúnað.

Nefndin hefur skilað af sér skýrslu sem er ítarleg, málefnaleg og inniheldur hafsjó fróðleiks um landbúnaðarkerfi ESB og möguleg áhrif inngöngu Íslands á íslenskan landbúnað. Nefndin gekk í fróðleiksbanka sérfræðinga, innlendra sem erlendra, og fundaði jafnframt með einstaklingum og samtökum sem hlynnt eru og mótfallin inngöngu í ESB.

Viðtökurnar hafa verið afar góðar og jafnvel þau sem gagnrýnt hafa efni skýrslunnar og innihald hafa nær undantekningalaust hafið skrif sín á því að hrósa skýrslunni og höfundum hennar. Að sjálfsögðu er ekki hægt að fjalla um alla enda og anga evrópsks landbúnaðar á 130 blaðsíðum, en nefndarfólk veit hvað skiptir bændur máli og hvað bændur vilja vita betur. Þessi nálgun sýnir styrk félagskerfis bænda og hverju við getum áorkað.

Formaður nefndarinnar, Sigurbjörg Ottesen á Hjarðarfelli, sagði á blaðamannafundi að skýrslunni væri ekki ætlað að einfalda umræðuna um Evrópusambandið og aðildarviðræður, heldur dýpka hana. Það hefur nefndinni tekist með afbrigðum vel og ég er sannfærður um að skýrslan muni stuðla að upplýstari umræðu um landbúnaðarmál í aðdraganda kosninganna 29. ágúst næstkomandi.

Skýrsla milliþinganefndar Bændasamtaka Íslands er afrakstur ítarlegrar heimildaöflunar, athugana og greiningar á því hvaða áhrif aðild Íslands að Evrópusambandinu, sem og aðildarviðræðurnar sjálfar, gætu haft á íslenskan landbúnað. Skýrslan er ekki áróðursrit með eða á móti aðild, heldur tilraun til að svara þeirri einföldu spurningu hvað aðild, og óvissan sem fylgdi aðildarviðræðum, getur í reynd þýtt fyrir íslenskan landbúnað.

Óvissan er nokkuð sem ekki hefur fengið þá athygli í umræðunni sem hún ætti að fá. Óvissa gerir fjárfestingu dýrari og erfiðari og á meðan óvissa ríkir um mögulega aðild að ESB hefur það áhrif á fjárfestingu bænda. Jafnvel nú eru sumir bændur að bíða með að fjárfesta í tækjabúnaði, húsnæði eða greiðslumarki, þar til eftir kosningar. Burtséð frá öllu öðru verður að taka tillit til þessarar óvissu og áhrifa hennar á fjárfestingu í greininni.

Mikilvægi landbúnaðar er fleirum en bændum hugleikið, eins og komið hefur fram í aðdraganda kosninganna, en ótalmargt fólk hefur lýst því yfir að málefni landbúnaðarins muni ráða úrslitum um það hvernig það muni ráðstafa atkvæði sínu í þessum kosningum eða í kosningum um mögulegan aðildarsamning. Þann 14. ágúst næstkomandi verða Evrópumálin til umræðu á aukabúnaðarþingi og verður skýrslan þar mikilvægt gagn.

Fyrr sama dag standa Bændasamtökin fyrir málþingi undir yfirskriftinni Landbúnaður í evrópsku samhengi, þar sem sérfræðingar frá Finnlandi, Noregi og Svíþjóð munu ræða um málefni landbúnaðar innan og utan Evrópusambandsins.

Í framhaldi af aukabúnaðarþingi munu Bændasamtökin svo halda opna fræðslufundi á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi þar sem efni skýrslunnar og niðurstaða aukabúnaðarþings verða kynnt öllum sem vilja fræðast.

Það er því nóg fram undan hjá bændum og vonast ég til að sjá sem flest ykkar á einhverjum þessara viðburða á næstu dögum og vikum. Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands.

Skylt efni: pistill formanns

Matarmót Austurlands á laugardaginn
Fréttir 12. nóvember 2026

Matarmót Austurlands á laugardaginn

Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum la...

Miðdalur fyrirmyndarbú
Fréttir 11. nóvember 2026

Miðdalur fyrirmyndarbú

Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar n...

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt s...

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...

Nokkur hundruð kíló ruku út
Fréttir 9. nóvember 2026

Nokkur hundruð kíló ruku út

Matland brást skjótt við áhuga lesenda á að kaupa annars flokks lífrænar gulrætu...