Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
„Heildar fjármögnunarkostnaður sambærilegra kúabúa innan Evrópusambandsins er því um 3 milljarðar á ári, eða um 2 milljörðum lægri en á Íslandi.“
„Heildar fjármögnunarkostnaður sambærilegra kúabúa innan Evrópusambandsins er því um 3 milljarðar á ári, eða um 2 milljörðum lægri en á Íslandi.“
Skoðun 19. júní 2026

Hvað býðst bændum?

Höfundur: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.

Ein mikilvægasta spurningin sem svara þarf í mögulegum aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið, eru áhrif aðildar á íslenskan landbúnað. Bændur á Íslandi hafa lengi kallað eftir betri starfsskilyrðum í landbúnaði. Fjölmargir ólíkir þættir skapa starfsumhverfi bænda. Dæmi um slíka þætti eru afurðaverð til bænda, kostnaður við rekstraraðföng, kröfur til starfseminnar, landfræðileg lega Íslands á norðlægum slóðum og fjarlægð frá alþjóðamörkuðum. Sumir þættir eru jákvæðir eins og nægt aðgengi að hreinu vatni, færri óværur í umhverfinu og mikið ónýtt landnæði. Aðrir þættir geta haft neikvæð áhrif á þessi starfsskilyrði, eins og hár kostnaður við fjármögnun, sem augljóslega eykur rekstrarútgjöld bænda.

Íslenskur landbúnaður er í fremstu röð, þökk sé framsýni þeirra sem starfa innan atvinnugreinarinnar. Til þess að byggja upp og viðhalda öflugum búum þarf áræðni, dugnað og útsjónarsemi bænda. Allt eru það eiginleikar sem íslenskir bændur búa yfir. Áskoranir nútímans eru hins vegar margvíslegar. Ein af þeim er samkeppnishæfni, sem byggir á því að íslenskir bændur geti framleitt afurðir með hagstæðu móti á sama tíma og þeir geti brugðist við kröfum nútímans um sérhæfð mannvirki og nýjustu tækni til að ná fram hagræðingu í rekstri.

Forsenda þessa er að starfsumhverfi íslenskra bænda geri þeim kleift að nálgast fjármagn á eðlilegum lánskjörum svo þeir geti fjárfest í mannvirkjum og tækjabúnaði. Aðeins þannig geta bændur framleitt sínar vörur við fyrsta flokks aðstæður og boðið vörur sínar á hagstæðu verði til neytenda. Einnig er þetta lykilþáttur í eðlilegri nýliðun í stéttinni sem er forsenda þess að atvinnugreinin geti viðhaldið sér og stækkað til framtíðar.

Lánakjör íslenskra bænda geta seint talist frábær. Lengi hefur legið fyrir að kostnaður við fjármögnun býlis er ein af stærstu áskorununum í íslenskum búrekstri. Þannig er til dæmis heildar vaxtakostnaður íslenskra kúabúa um 5 milljarðar á ári, sé miðað við vaxtakjör landbúnaðarlána Byggðastofnunar, sem er í kringum 10%. Meðal kúabúið á Íslandi skuldar um 75 milljónir króna og greiðir því um 7,5 milljónir á ári í vexti, eða um 625.000 krónur á mánuði.

Til samanburðar er meðal vaxtakostnaður bænda í löndum Evrópusambandsins 6% eða um 40% lægri en á Íslandi. Heildar fjármögnunarkostnaður sambærilegra kúabúa innan Evrópusambandsins er því um 3 milljarðar á ári, eða um 2 milljörðum lægri en á Íslandi. Kúabú innan Evrópusambandsins, sambærilegt íslenska meðalbúinu, væri því að greiða um 4,5 milljónir á ári í vexti, eða um 375.000 krónur á mánuði. Sé meðal fjármögnunarkostnaður kúabúa á Íslandi og í Evrópusambandinu borinn saman, er munurinn í grófum dráttum um 250.000 krónur á mánuði í lægri vaxtagreiðslur, sem kúabændur í Evrópusambandinu þurfa að greiða. Það munar um minna.

Í tengslum við atkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, er mikilvægt að íslenskir bændur hafi í huga þær afleiðingar sem slíkar grundvallarbreytingar á lánakjörum til íslenskra bænda, með aðild að Evrópusambandinu, gætu haft á starfsskilyrði íslenskra bænda að þessu leyti.

Íslenskur landbúnaður þrífst aðeins með eðlilegri fjárfestingagetu og nýliðun í stétt bænda. Þetta tvennt getur tekið stakkaskiptum til hins betra með aðild að Evrópusambandinu. Það er því mikilvægt að skýr samningur liggi á borðinu um aðild að Evrópusambandinu sem kveður á um starfsskilyrði íslensks landbúnaðar innan sambandsins, sem íslenskir bændur og neytendur geta tekið upplýsta afstöðu til. Þess vegna snýst atkvæðagreiðslan í ágúst um að vita meira og fá upplýsingar á borðið sem geta varðað hag bænda og fleiri tækifæri þeirra á komandi árum

Höfundur er utanríkisráðherra.

Skylt efni: esb | Skoðun

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...

Apríl Emma
8. júlí 2026

Apríl Emma

Ást á tímum Bænder
9. júlí 2026

Ást á tímum Bænder

Með hendur í vösum
8. júlí 2026

Með hendur í vösum

Mótið 2026 fer vel af stað!
9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Vísnahornið
7. júlí 2026

Vísnahornið