Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Hvað blasir við bændum?
Leiðari 27. ágúst 2026

Hvað blasir við bændum?

Höfundur: Þröstur Helgason

Ein af ástæðunum fyrir því að megnið af bændum ætla að segja nei á laugardaginn er sú að aðildarumsókn myndi fylgja mikil óvissa fyrir rekstur þeirra. Í skýrslu Bændasamtakanna um íslenskan landbúnað og ESB segir að óvissan sem fylgir mögulegum aðildarviðræðum geti sjálf haft áhrif á landbúnaðinn áður en nokkur niðurstaða liggur fyrir. Bændur myndu standa frammi fyrir verulegri óvissu um framtíðarstuðningskerfi, markaðsvernd og rekstrargrundvöll ef aðildarviðræður hæfust. Slík óvissa gæti torveldað ákvarðanir um fjárfestingar í búrekstri, nýliðun og að öllum líkindum myndi hún hafa kælandi áhrif. Óvissa skapaðist sömuleiðis um afkomu bænda á meðan á viðræðum stæði. Stjórnvöld hafa ekki skýrt með afgerandi hætti hvernig yrði komið til móts við bændur ef af aðildarviðræðum yrði. Það er bagalegt og lýsir raunar litlum skilningi á aðstöðu bænda og mikilvægi þess að hér á landi sé haldið úti óslitinni matvælaframleiðslu hér eftir sem hingað til. Fæðuöryggi landsins er að veði.

Bændur óttast einnig um afkomu sína ef til aðildar kæmi. Í skýrslu Bændasamtakanna segir að íslenskur landbúnaður njóti almennt meiri stuðnings en landbúnaður innan ESB. Og í nýrri skýrslu ráðuneytisins, sem Torfi Jóhannesson skrifar, kemur fram að óvíst sé um það hversu mikinn stuðning íslenskur landbúnaður fengi við inngöngu. Allt veltur það á niðurstöðu samningaviðræðnanna sem færu fram, eins og atvinnuvegaráðherra benti á í Útvarpi Bændablaðsins í vikunni. Upptaka evru gæti skapað ákveðinn ávinning en hann myndi líklega ekki vega upp á móti tekjutapinu sem yrði af niðurfellingu markaðsverndarinnar sem nemur um sextán milljörðum samkvæmt skýrslu ráðuneytisins. Inn í þessa mynd yrði svo að taka lækkun afurðaverðs til bænda ef af inngöngu yrði en í Finnlandi féll það um fjörutíu prósent. Að auki má gera ráð fyrir að markaðshlutdeild íslenskra búvara hér á landi myndi minnka er tollvernd félli niður við inngöngu. Þar með myndi framleiðsla á íslenskum búvörum dragast saman. Séu tölurnar skoðaðar verður varla komist að annarri niðurstöðu en að íslenskur landbúnaður kæmi fremur illa út úr inngöngu í Evrópusambandið.

Í þriðja lagi má nefna að bændum myndi að öllum líkindum fækka við inngöngu. Í Finnlandi hefur bændum fækkað um tvo þriðju á þeim þrjátíu árum sem liðin eru frá inngöngu í ESB árið 1995, úr 120.000 í 40.000. Hér á landi hefur bændum fækkað líka, eða um fimmtíu prósent frá aldamótum, úr 5.200 í 2.600. Á þessu tímabili hefur orðið gríðarlega hröð þróun í íslenskum landbúnaði með aukinni samþjöppun og stærri býlum. Innganga í ESB myndi hraða þeirri þróun enn frekar. Í blaðinu í dag er birt mynd úr skýrslu Daða Más Kristóferssonar og Ernu Bjarnadóttur frá síðasta áratug sem spáir fyrir um fækkun kúabúa á landinu um fjörutíu prósent við inngöngu. Kúabúin myndu þjappast saman á þeim svæðum þar sem mjólkurvinnsla fer fram á Suðurlandi og Norðurlandi en leggjast af í öðrum landshlutum. Skilja má að bændur óttist þessa þróun. Margir þeirra myndu enda missa lífsviðurværi sitt. Fjölskyldureknum búum myndi líklega fækka nokkuð. Aðrir myndu líklega benda á að þessi þróun sé óhjákvæmileg og hagkvæm, hún myndi skila ódýrari mjólk í verslanir og auka samkeppnishæfni kúabænda á Íslandi. Á móti vega rök um þróun búsetu í landinu, samsetningu og eðli byggðar.

Ýmislegt fleira mætti nefna sem stendur í bændum þegar þeir ganga til kosninga á laugardaginn. Þeir myndu standa frammi fyrir erfiðu verkefni ef niðurstaðan yrði já og margir þeirra óttast um afdrif sín, búa sinna og heimila. Svörin sem borist hafa frá stjórnvöldum um það sem tæki við hafa ekki verið nægjanlega skýr og sannfærandi. Og raunar hafa ekki falist í þeim neinar tryggingar um að niðurstaðan yrði bændum almennt hagfelld. Fyrst og fremst er vísað í samningaviðræðurnar sjálfar sem einhvers konar allsherjar lausn en um niðurstöður þeirra er eðlilega lítil sem engin vissa. Samningsmarkmið hefðu að minnsta kosti þurft að liggja á borðinu frá byrjun umræðunnar og skýr loforð um aðgerðir sem styddu við bændur sem kæmu illa út úr samningunum.

Þröstur Helgason

Skylt efni: Leiðari | esb

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...

Töfrar Tálknafjarðar
Fréttir 24. nóvember 2026

Töfrar Tálknafjarðar

Nýtt byggðaþróunarverkefni undir heitinu Töfrar Tálknafjarðar hófst formlega með...

Fjölmargir arnarungar komnir á legg
Fréttir 23. nóvember 2026

Fjölmargir arnarungar komnir á legg

58 arnarungar komust á legg í sumar. Varp fannst auk þess á þremur áður óþekktum...