Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 mánaða.
Gamli bærinn í Ytri-Hlíð í Vopnafirði og fyrsti garður Oddnýjar A. Methúsalemsdóttur.
Gamli bærinn í Ytri-Hlíð í Vopnafirði og fyrsti garður Oddnýjar A. Methúsalemsdóttur.
Líf og starf 28. desember 2025

Húsfreyjan í Ytri-Hlíð lyfti grettistaki

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Vopnfirðingurinn Oddný Aðalbjörg Methúsalemsdóttir vann á sinni tíð ötullega að bættum lífsgæðum sveitunga sinna með ræktun, menntun, náttúruvernd og félagsstörfum.

Oddný Aðalbjörg Methúsalemsdóttir með fálkaorðuna sem hún hlaut árið 1964.

Oddný Aðalbjörg Methúsalemsdóttir fæddist á Bustarfelli í Vopnafirði 28. febrúar 1891 og ólst upp í stórri og samheldinni fjölskyldu. Hún var yngst níu systkina og er sögð hafa verið augasteinn foreldra sinna. Frá unga aldri sýndi hún dugnað og skapandi hugarfar sem átti eftir að móta líf hennar. Þótt skólaganga væri stutt, var hún alla ævi að læra og bæta við sig þekkingu.

Áhugi hennar á garð- og skógrækt kviknaði í Húsmæðraskólanum í Reykjavík veturinn 1912–1913, þar sem hún kynntist fræðslu um ræktun. Heimkomin hóf hún að rækta blómagarð við Bustarfell, sem varð upphaf ævilangrar ástríðu fyrir gróðri og fegrun umhverfis.

Ræktun, fjölskyldulíf og samfélag

Oddný dvaldi um tíma í Danmörku, en einkum þó í Noregi þar sem hún lærði heimilisiðnað og vefnað og eignaðist son árið 1919. Heimkomin giftist hún Friðriki Sigurjónssyni árið 1924 og flutti í Ytri-Hlíð í Vopnafirði. Þau eignuðust þrjú börn og tóku að sér eitt fósturbarn. Að Ytri-Hlíð hóf hún stórt verkefni: að breyta umhverfinu í blómlegan garð. Fyrsti garðurinn var girtur 1925, en árið 1946 reis hinn stóri garður við nýja íbúðarhúsið, 3.300 m2 að stærð. Hann varð einn fegursti sveitagarður landsins, með skjólbeltum, skógarlundum, blómabeðum og matjurtarækt.

Hún var ekki aðeins garðyrkjukona heldur líka forsprakki í samfélaginu. Hún stofnaði skógræktarfélag í Vopnafirði, stóð fyrir fegrun kirkjugarðsins á Hofi og var lykilkona í kvenfélaginu Lindinni frá 1921 til 1959. Hún var söngelsk, glaðvær og hrókur alls fagnaðar, skipulagði samverustundir fyrir börn og ungmenni og var ávallt á undan sinni samtíð í framfaramálum.

Garðurinn í Ytri-Hlíð haustið 2025.

Sómi sinnar sveitar

Emil Sigurjónsson, barnabarn Oddnýjar og fyrrum bóndi í YtriHlíð, skrifaði bækling um ævi og störf Oddnýjar ömmu sinnar fyrir Minjasafnið á Bustarfelli og er stuðst við hann í textanum að framan.

Segir m.a. í bæklingnum að „Oddný lét til sín taka í fjölmörgum málum og í kringum hana var aldrei ládeyða. Það fór ekki hjá því að hún þætti stjórnsöm en þegar upp er staðið viðurkenna flestir að hún vildi vel og átti sinn þátt í þeirri reisn sem var yfir Vopnafirði á hennar tíma. Metnaður hennar var mikill og ekki aðeins fyrir eigin hönd, heldur vildi hún að aðrir sýndu sama metnað.“

Þá kemur fram að hún sótti marga fundi Skógræktarfélags Austurlands og hafi nokkrum sinnum verið fulltrúi þess á aðalfundum Skógræktarfélags Íslands. Einnig hafi hún farið í skógræktarferðir til Noregs.

Minjasafnið setti upp sýningu á verkum Oddnýjar og lífshlaupi í Kaupvangi á Vopnafirði sl. sumar. Emil flutti þar opnunarávarp og segir ömmu sína hafa verið konu sem „skildi mikla arfleifð eftir sig sem frumkvöðull mestan part tuttugustu aldar með verkum sínum og framsýni“.

Oddný saumaði glæsilega íslenska búninga og fleiri flíkur fyrir sig og börnin. Ljósi kjóllinn var fermingarkjóll yngstu dóttur hennar, Valgerðar.

Heiður og arfleifð

Oddný hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu árið 1964 fyrir frumkvöðlastarf í garð- og skógrækt. Friðrik, eiginmaður hennar, fékk sömu viðurkenningu 1982 fyrir störf sem hreppstjóri. Hún andaðist 20. apríl 1983, 92 ára gömul. Líf hennar einkenndist alla tíð af eldmóði, útsjónarsemi og samfélagslegri ábyrgð. Hún skildi eftir sig ekki aðeins afkomendur heldur einnig gildi, garða og góðverk sem lifa áfram í landslagi og minningu.

Saga Oddnýjar er vitnisburður um það hve miklu ein kona með metnað og gott hjartalag getur áorkað. Hún braut blað í íslensku sveitasamfélagi, sameinaði hefðir og nýsköpun og varð fyrirmynd fjölmargra.

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...