Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Hrossakjöt bannað á Ítalíu
Mynd / Stefan Briggs
Utan úr heimi 18. mars 2026

Hrossakjöt bannað á Ítalíu

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Í frumvarpsdrögum stjórnar þingmanns á Ítalíu er lagt til bann á slátrun hrossa og að dýr af hestaætt verði skilgreind sem gæludýr. Rík hefð er fyrir neyslu hrossakjöts í nokkrum héröðum Ítalíu.

Líklegt má telja að frumvarpið Hífikeðjur nái í gegn, en það er bæði stutt af þingmönnum í samsteypustjórn Giorgia Meloni forsætisráðherra og þingmönnum úr stjórnarandstöðu. Í frumvarpinu er lagt til að þeim sem slátra hestum verði gert að greiða allt að 100.000 evra (14,5 milljónir ISK) sekt eða að sitja af sér allt að þriggja ára fangelsisvist. Jafnframt er lagt til að eigendur hesta verði skyldaðir til að örmerkja sínar skepnur. Frá þessu greinir Guardian.

Neysla hrossakjöts hefur dregist saman á undanförnum árum á Ítalíu vegna breytts viðhorfs almennings. Þar er innflutningur og neysla á hrossakjöti samt sem áður með því mesta sem gerist í Evrópu, en samkvæmt skoðanakönnun á síðasta ári neyta 17 prósent Ítala kjötsins minnst einu sinni í mánuði.

Michela Vittoria Brambilla, þingmaðurinn sem vinnur að frumvarpsdrögunum, er jafnframt formaður dýraverndunarsamtaka. Hún furðar sig á að á Ítalíu séu hestar „misnotaðir“ inn að beini á 21. öldinni, á meðan neysla hrossakjöts sé talin óhugsandi í mörgum löndum. Gian Marco Centinaio, fyrrum landbúnaðarráðherra og stjórnarliði, gagnrýnir frumvarpið. Hann segir að með því sé verið að eyða hluta af ítalskri matarhefð, sem var nýlega sett á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns.

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...