Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Hrafnhildur Inga með viðurkenninguna sína en með henni á myndinni er Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir, sem á sæti í sveitarstjórn Rangárþings eystra.
Hrafnhildur Inga með viðurkenninguna sína en með henni á myndinni er Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir, sem á sæti í sveitarstjórn Rangárþings eystra.
Mynd / mhh
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Einn af dagskrárliðunum á laugardeginum var fjölskylduhátíð þar sem ýmis verðlaun voru veitt á vegum Rangárþings eystra.

Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir á Sámsstaðabakka í Fljótshlíð var til dæmis útnefnd Sveitalistamaður Rangárþings eystra en hún er Fljóthlíðingur, fædd og uppalin á Vestri-Sámsstöðum. Með útnefningunni er Hrafnhildi Ingu þakkað fyrir hennar framlag til lista og menningar en hún hefur meðal annars gert náttúru og landslagi heimahaganna skil í verkum sínum þar sem landslag, birta og veður skipa stóran sess.

Fjölmargar aðrar viðurkenningar voru veittar á hátíðinni. Hans Þór Hilmarsson var til dæmis kjörinn íþróttamaður ársins 2026 en hann náði góðum árangri á stærstu mótum ársins í hestamennskunni. Gistiheimilið Fagrahlíð í Fljótshlíð var valið snyrtilegasta fyrirtæki sveitarfélagsins en nýlega tóku nýir aðilar við rekstri heimilisins, en það eru þau Hlynur Snær Theodórsson og Guðlaug Jónsdóttir, og Uppsalir í Fljótshlíð var valið snyrtilegasta býlið en þar er mikill metnaður lagður í það að halda umhverfi svæðisins snyrtilegu og fínu, auk þess sem öflug skógrækt er stunduð á bænum. Snyrtilegasti garður sveitarfélagsins er við Króktún 11 á Hvolsvelli hjá Önnu Kristínu Helgadóttur og fjölskyldu. Þá fékk Ólafur Elí Magnússon, íþróttakennari á Hvolsvelli, samfélagsverðlaun Rangárþings eystra en hann hefur um áratugaskeið lagt ómetanlegt starf af mörkum fyrir samfélagið, ekki síst í þágu barna, ungmenna og íþróttastarfs. Loks má geta þess að systurnar frá Mið-Mörk undir Eyjafjöllum voru sérstaklega heiðraðar, en þær hafa verið að gera það gott á alls konar kraftamótum eins og á Special Olympics.

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...