Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Hér er dæmi um læsigrind við framhlið sem einnig er með innri milligrind sem getur lagst upp að kúnni t.d. til að auðvelda mjaltir.
Hér er dæmi um læsigrind við framhlið sem einnig er með innri milligrind sem getur lagst upp að kúnni t.d. til að auðvelda mjaltir.
Á faglegum nótum 4. ágúst 2026

Hönnun á burðarstíum

Höfundur: Snorri Sigurðsson

Í öllum fjósum ætti að vera góð burðarstía, nú eða burðarstíur séu kýrnar margar, svo kýrnar geti fengið ró og næði til þess að bera og án þess að verða fyrir truflunum. Kýr hafa nefnilega ríka náttúrulega þörf til þess að geta dregið sig í hlé frá hjörðinni, þegar þær eru að bera, og því veita burðarstíur þeim það næði sem þær þurfa við burðinn. Þá eru burðarstíur, sé rétt staðið að hönnun þeirra og meðferð, afar heppilegar einnig fyrir kálfinn enda geta þær varið hann mögulegu smiti. Enn fremur henta burðarstíur vel til að hægt sé að veita kúm aðstoð við burð ef þörf krefur, án þess að sá sem aðstoðina veitir verði fyrir ónæði eða hættu af forvitnum eða afskiptasömum kúm.

Reglugerðarákvæði ekki hönnunarforsenda

Þegar horft er til hönnunar á burðarstíum er of algengt að reglugerð um aðbúnað sé notuð sem einhvers konar leiðbeiningarrit en samkvæmt aðbúnaðarreglugerð á að vera burðarstía í öllum lausagöngufjósum byggðum eftir 2014, og þau fjós sem eru byggð fyrir þann tíma skulu hafa slíka aðstöðu einnig innan fárra ára. Þá stendur í reglugerðinni einnig hver eigi að vera lágmarksmál á burðarstíum á Íslandi, 9 m2 í heildina og með 3ja metra hlið hið minnsta. Það er af og frá að líta eigi á þessar málsetningar reglugerðarinnar sem einhvers konar hönnunarforsendur enda er um lágmarksmál að ræða en ekki ráðlögð mál. Það á í raun enginn að nota lágmarks málsetningar úr reglugerðum sem forsendur hönnunar og gildir það fyrir hönnun á aðstöðu fyrir allt búfé, en það hefur verið lenska hjá of mörgum að teikna búfjárbyggingar út frá reglugerðarlágmörkum. Þannig eru t.d. ótal hesthús í dag einungis með stíustærðir sem eingöngu uppfylla reglugerðarkröfuna. Þessari hugsun við hönnun þarf að breyta og ættu allir sem byggja fyrir búfé að leita til þar til bærra sérfræðinga við hönnun, svo hjá því verði komist að byggingin uppfylli einungis reglugerðarkröfuna.

Margs konar kröfur

Þegar burðarstíur eru hannaðar þarf að huga að ýmsum þáttum svo sem góðu aðgengi gripa, þ.e. að stutt sé úr geldkúastíu eða aðlögunarstíu yfir í burðarstíu, en ekki síður gott aðgengi manna. Þá þarf að huga að framangreindri þörf fyrir rými í stíunni, öryggi fólks við t.d. burðaraðstoð, smitvörnum og vinnuhagræðingu. Með því að velta sem flestum þáttum upp sem varða burð og mögulega burðaraðstoð, áður en farið er út í framkvæmdirnar, minnka líkurnar á því að vandamál komi upp síðar meir.

Rýmisþörf

Eins og áður segir kveður reglugerðin á um að burðarstíur séu a.m.k. 9 m2 en flestir bændur eru á því að það sé algjört lágmark sem bendir þá til þess að reglugerðin sé í raun rétt! En hver á stærðin þá að vera? Eigi að vera hægt að veita góða burðaraðstoð og t.d. í einhverjum tilfellum að nota burðartjakk, eða hafa pláss fyrir tvo til þess að aðstoða kúna við burðinn,  þá þarf stían að vera með a.m.k. 4 metra langhlið og líklega best að hún sé a.m.k. 4,5 metrar.

Það þekkist einnig að vera með hópstíur, svo fleiri kýr geti verið saman. Það hefur bæði kosti og galla en dönsk rannsókn á því, sem gerð var í tilraunafjósinu á Foulum, benti til þess að betra væri að vera með hópstíur fyrir kýr og kvígur fyrir burð, en þegar að burðinum sjálfum kæmi ætti að gefa þeim færi á að vera einar. Þessa þörf kúa má raunar uppfylla í hópstíu með því að geta sett upp milligrind í stíuna þannig að kýr sem er að bera geti verið í friði.

Innréttingarnar

Innréttingarnar í burðarstíunni þurfa að vera þannig gerðar að hægt sé að opna sem flestar hliðar, enda getur farið svo að kýrin leggist alveg upp við eina hlið og vilji sig hvergi hræra. Þá er gott að geta opnað og stækkað rýmið. Þá þarf að huga að hönnun innréttinganna. Hér eru mannop mikilvæg, þ.e. að vera með góðar og hindrunarlausar leiðir inn og út úr stíunni fyrir fólk. Bæði er þetta kostur til þess að geta brugðist skjótt við, sé þörf á aðstoð eða lífsbjörg ef viðkomandi þarf að geta flýtt sér út úr stíu t.d. ef á kúna rennur bræði eins og gerist stöku sinnum, með öðrum orðum að vera með góða flóttaleið út úr burðarstíunni. Til viðbótar er afar gott að vera með læsigrind að framan, þannig að t.d. sé hægt að ná broddinum úr kúnni með fyrstu mjöltum. Enn betra er að geta lagt upp að kúnni hliðgrind, sjá mynd, svo meira næði fáist.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...