Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Holdétandi maðkar í bandarískum búpeningi
Utan úr heimi 29. júní 2026

Holdétandi maðkar í bandarískum búpeningi

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Sníkjudýr sem hefur ekki fundist í Bandaríkjunum í um 60 ár er komið aftur.

Þar er á ferð fluga sem ber latneska heitið Cochliomyia hominivorax, og hefur á íslensku verið nefnd skrúfufluga (e. New World Screwworm). Hún verpir eingöngu í lifandi hold, oftast nær í opin sár, bæði dýra og manna. Þegar lirfur flugunnar klekjast út éta þær holdið í kringum sárið sem leiðir til frekari sára og sýkinga. Hún getur reynst búfénaði banvæn. Tilfelli hafa greinst í dýrum í bæði Texas og Nýju-Mexíkó.

Tólf tilfelli á tveimur vikum

Samkvæmt Landbúnaðar- ráðuneyti Bandaríkjanna (USDA) hafa greinst 12 tilfelli skrúfuflugu í húsdýrum í tveimur ríkjum síðan 3. júní síðastliðinn. 11 tilfelli hafa greinst í Texas og eitt í NýjuMexíkó. Flugan hefur aðallega fundist í kúm og nautgripum en einnig í hundi, geit og kind. Engin tilfelli hafa greinst í villtum dýrum.

Að sögn USDA þarf ekki að óttast um matvöru þar sem flugan leggst aðeins á lifandi dýr, ekki kjöt eða ávexti. Bændur og dýraeigendur í Bandaríkjunum eru beðnir um að fylgjast vel með sárum dýra og láta strax vita ef einkenni koma upp, líkt og vond lykt, útferð eða greinileg hreyfing maðka í holdi.

Skrúfufluga.

Ófrjóar flugur sem vörn

Skrúfuflugan er þekkt í Mexíkó og Suður- og Mið-Ameríku. Í lok sjötta áratugar síðustu aldar stóðu Bandaríkjamenn í stórtækum aðgerðum gegn flugunni sem herjaði þá á landbúnað víða í Suðurríkjum og Miðvesturríkjum landsins. Herferðin gekk út á að rækta ófrjóar karlkyns skrúfuflugur og sleppa þeim lausum í stórum hópum. Vegna þess að kvenkyns skrúfuflugan hefur mök við karlflugu aðeins einu sinni á ævinni og það reynist ómögulegt fyrir hana að greina á milli frjórra og ófrjórra einstaklinga stundar hún þessi einu mök án þess að fjölga sér. Aðferðin bar árangur og var fluguna ekki að finna norðan Panamaskurðarins frá árinu 2004. 

Viðbrögð og varnir

Þar sem tilfelli greinast er sett upp 20 kílómetra radíussvæði þar sem gildir sóttkví, eftirlit er hert og takmarkanir gilda á tilflutningi dýra, ófrjóum flugum er sleppt og þar til gerðar flugnagildrur eru settar upp. Síðustu ár hefur flugan verið í sókn og hefur ófrjóum flugum verið sleppt þar sem stök tilfelli hafa greinst bæði í MiðAmeríku og Mexíkó. Milljónum flugna hefur nú þegar verið sleppt í Zavala-héraðinu í Texas þar sem tvö tilfelli greindust nýlega með átta kílómetra millibili. Bandaríkin og Mexíkó hafa lokað á allan innflutning dýra á milli sinna landamæra og hefur Kanada sett tímabundið bann á flutning búfénaðar frá Texas. Hestar og kýr sem hafa verið í Texas innan við 21 dag fá ekki að koma inn í landið.

Flugurnar geta valdið miklu tjóni á landbúnaði og leitt til fjárhagstjóns bænda bæði ef dauðsföll verða á dýrum og vegna mikils sjúkrakostnaðar. Samkvæmt fréttamiðli Guardian er vöntun á mannskap og sérfræðingum vegna uppsagna ríkisstjórnar Trumps á starfsfólki innan Landbúnaðareftirlits Bandaríkjanna. Þetta hefur hægt mjög á viðbúnaði og eykur líkurnar á frekari útbreiðslu sníkjudýrsins, sérstaklega í sumar þar sem flugan sæmir sér vel í hita.

Skylt efni: bandaríkin | snikjudyr

Aukabúnaðarþing ályktar gegn ESB-aðild
Fréttir 14. ágúst 2026

Aukabúnaðarþing ályktar gegn ESB-aðild

Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands, haldið í Reykjavík þann 14. ágúst 2026, telur ...

Norskir bændur sterklega á móti inngöngu í ESB
Fréttir 14. ágúst 2026

Norskir bændur sterklega á móti inngöngu í ESB

Bjørn Gimming hélt erindi um norskan landbúnað utan Evrópusambandsins á málþingi...

Vel sótt málþing um landbúnað í evrópsku samhengi
Fréttir 14. ágúst 2026

Vel sótt málþing um landbúnað í evrópsku samhengi

Húsfyllir var á málþingi Bændasamtakanna um landbúnað í evrópsku samhengi sem ha...

Færri og stærri býli
Fréttir 14. ágúst 2026

Færri og stærri býli

Ingrid Rydberg, sérfræðingur hjá sænsku bændasamtökunum LRF, hélt erindi á málþi...

Sérlausnin kom síðasta kvöld viðræðnanna
Fréttir 14. ágúst 2026

Sérlausnin kom síðasta kvöld viðræðnanna

Esa Härmälä fór fyrir samninganefnd finnska utanríkisráðuneytisins um landbúnaða...

Réttalistinn í smíðum
Fréttir 14. ágúst 2026

Réttalistinn í smíðum

Síðustu ár hefur Bændablaðið tekið saman lista yfir tíma- og staðsetningar rétta...

Barkarbjalla hefur numið land
Fréttir 14. ágúst 2026

Barkarbjalla hefur numið land

Barkarbjalla hefur fjölgað sér með góðum árangri í íslenskri náttúru. Hún er í h...

Áhættu- og viðkvæmnismat
Fréttir 14. ágúst 2026

Áhættu- og viðkvæmnismat

Árlegur viðbótarkostnaður getur numið allt að 4-5% af framleiðslu- verðmæti mjól...