Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
215 blóðsýni voru rannsökuð // PFAS efni berast í uppskeru sem er úðuð og þaðan í matvæli.
215 blóðsýni voru rannsökuð // PFAS efni berast í uppskeru sem er úðuð og þaðan í matvæli.
Mynd / Pixabay
Fréttir 18. júní 2026

Hátt hlutfall eilífðarefna í blóði Norðmanna

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Sjö eilífðarefni (PFAS efni) fundust í öllum blóðsýnum og mikill þéttleiki PFAS efnisins TFA veldur áhyggjum. Rannsakendum við Örebro háskóla í Svíþjóð kom á óvart hátt hlutfall óþekktra flúorefnasambanda í blóðsýnum í nýútgefinni rannsókn. Þeir segja niðurstöður benda til að núverandi nálgun í lífvöktun nái aðeins til helmings heildarútsetningar mannfólks á eilífðarefnum. Ökologisk Norge greindi frá. Evrópusambandið skoðar takmörkun á notkun allra PFAS efna.

Sjö PFAS efni fundust í öllum blóðsýnum

Ný rannsókn norsku Lýðheilsustofnunarinnar (FHI) og Örebro háskóla sýnir fram á að miklu meira er af PFAS efnum í blóði Norðmanna en hægt er að útskýra. Rannsóknin var hluti af stærra verkefni fjármögnuðu af Norrænu ráðherranefndinni.

Niðurstöðurnar valda áhyggjum segja rannsakendur sem árétta þörf fyrir að minnka útsetningu fólks fyrir slíkum efnum. Í grein um rannsóknina sem birt er á vef Science Direct, segir að hátt hlutfall óþekktra flúorefnasambanda (UOF) og TFA gefi ríkulegt tilefni til að rannsaka nánar hvaðan þau berast í mannslíkamann.

64 ólík PFAS efni voru rannsökuð í 215 blóðsýnum fólks í Osló. Sýnin voru tekin á árunum 2016 – 2017 og hefur því tekið 10 ár að fá niðurstöður. Sjö efnanna fundust í öllum blóðsýnunum.

Víðtæk heilsuspillandi áhrif

PFAS efni hafa verið kölluð eilífðarefni sökum uppsöfnunar þeirra í náttúrunni og í mannslíkamanum vegna þess hve hægt og illa þau brotna niður. Mörg þessara eilífðarefna hafa verið tengd við alvarlegan heilsuvanda svo sem hormónatruflanir, skerta starfsemi ónæmiskerfisins, lifrarskemmdir, áhrif á æxlun og frjósemi, hækkað kólesterol, auknar líkur á skjaldkirtilssjúkdómum, sykursýki, offitu og krabbameini í nýrum og eistum. Efnin eru notuð í ótalmargt svo sem í iðnaðarframleiðslu, slökkvitæki, fatnað, snyrtivörur, matarumbúðir, lyf og skordýraeitur.

Samkvæmt vef Umhverfis- og orkustofnunar eru PFAS efni efnahópur sem samanstendur af tugþúsundum manngerðra efna sem hafa sterkt efnatengi milli kolefnis og flúoratóma sem gerir þau sérstaklega óhvarfgjörn. Sum þeirra brotna ekkert niður á meðan önnur brotna mjög hægt niður en mynda þá önnur PFAS efni.

Gátu ekki útskýrt helming flúorefnasambanda

Mesta athygli rannsakenda vakti efnið TFA, sem var eitt þeirra sextíu og fjögurra PFAS efna sem var rannsakað og hafði hvað mestan þéttleika í sýnunum. Efnið er illniðurbrjótanlegt en myndast þegar önnur PFAS efni brotna niður í umhverfinu.

Í frétt Ökologisk Norge um rannsóknina segir að þýska umhverfisstofnunin hafi nýlega lagt fram tillögu um að flokka TFA sem skaðlegt fyrir fósturþroska í kjölfar rannsókna á dýrum sem sýndu fram á alvarlega fósturskaða.

Á grundvelli takmarkaðrar vöktunar yfirvalda á PFAS efnum telja rannsakendurnir að fólk sé útsett fyrir mun meira af slíkum efnum en nú er fylgst með. Þeir segja niðurstöður benda til þess að núverandi vöktunaraðferðir nái aðeins til um helmings heildarútsetningar manna fyrir eilífðarefnum.

Matur er stór uppspretta útsetningar

TFA hefur meðal annars mælst í drykkjarvatni, víni, bjór, ávöxtum og korni í Evrópu.

Rannsakendur benda á að neytendur séu útsettir fyrir efninu í gegnum mat og drykk. Í rannsókninni er bent á að PFAS efni og önnur flúorefnasambönd séu í mörgum algengum neysluvörum. Matur sé mikil uppspretta útsetningar fyrir þessi efni og mikilvægt sé að minnka magn þeirra í matvælaframleiðslu.

Bent er á að í lífrænni ræktun og framleiðslu séu slík efni bönnuð en ekki sé hægt að tryggja að lífrænar vörur séu með öllu án slíkra efna þar sem þau finnast þegar í jarðvegi, vatni og andrúmslofti. Með því að velja lífrænt sé þó hægt að forðast nýjar viðbætur sem berast í mat í formi plöntuvarnarefna sem innihalda slík efni.

Í grein Ökologisk Norge er vísað í eldri rannsóknir á börnum sem sýna að sé skipt yfir í lífrænt mataræði minnki magn ákveðinna tegunda skordýraeiturs í líkamanum eftir fáa daga.

Fyrirtækjum ber ekki skylda til að taka fram að PFAS efni séu til staðar í vörum þeirra. Leiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar segja að „góð leið til að forðast efnin er að velja vörur sem eru umhverfismerktar eða sérstaklega merktar sem PFAS-fríar.“

Tillaga um algert bann

Í félagi við fjögur önnur Evrópulönd, Þýskaland, Holland, Danmörku og Svíþjóð, átti Noregur frumkvæði að því að leggja fram tillögu til Efnastofnunar Evrópu (ECHA) um bann við öllum PFAS efnum á heimsvísu. Tillagan var lögð fram í janúar 2023. Vísindanefndir Efnastofnunarinnar luku fyrsta áhættumati sín í byrjun árs 2026 og í mars tók við samráðsferli um félags- og efnahagsleg áhrif.

Í samantekt nýju rannsóknarinnar kemur fram að niðurstöður geti verið nýttar sem grundvallarviðmið fyrir þéttleika EOF efna í blóði manna áður en almennar takmarkanir á PFAS verði innleiddar í framtíðinni.

 

Skylt efni: pfas

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...