Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 mánaða.
Hættuleg efni í jurtaolíu
Utan úr heimi 23. febrúar 2026

Hættuleg efni í jurtaolíu

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Hexan í jurtaolíuiðnaði reynist mun útbreiddara og hættulegra en áður var talið, að mati franskrar þingnefndar sem krefst þegar í stað skýrari merkinga og nýrra úrræða.

Frönsk þingnefnd hefur eftir fjögurra mánaða rannsókn og um þrjátíu yfirheyrslur komist að þeirri niðurstöðu að banna verði hexan, leysiefni unnið úr jarðolíu, í jurtaolíuframleiðslu hið fyrsta. Efnið hefur lengi verið notað til að hámarka olíunýtingu úr fræjum og er talið menga fjölda matvæla. Það er flokkað sem taugaeitur af Evrópsku efnaöryggisstofnuninni ECHA (e. The European Chemicals Agency). Franski þingmaðurinn og veitingahúsarýnirinn Richard Ramos hyggst nú leggja fram sérstakt lagafrumvarp sem skyldar framleiðendur til að upplýsa neytendur. Franska vikublaðið Le Canard enchaîné greindi frá.

Málið komst í sviðsljósið eftir útgáfu bókar blaðamannsins Guillaume Coudray, „De l’essence dans nos assiettes“, (Bensín á diskum okkar), sem sýndi fram á óhóflega notkun hexans í matvælaiðnaði þrátt fyrir heilsufarsáhættu sem hafi verið þekkt frá árinu 2014. Greenpeace staðfesti síðar víðtæka notkun efnisins; samtökin fundu hexan í tveimur þriðju af 56 matvælum sem voru rannsökuð.

Iðnaðurinn heldur að sér höndum

Framleiðendur jurtaolíu hafa hins vegar brugðist seint við og telja notkun hexans vera innan öruggra marka. Samtök iðnaðarins fullyrða að efnaleifar séu „afar litlar“ og innan reglna sem heimila eitt milligramm á hvert kíló. Þingnefndin segir reglurnar hins vegar gamaldags og ófullnægjandi – sérstaklega þar sem engin mörk eru skilgreind í afleiddum dýraafurðum, svo sem mjólk og kjöti.

Svo dæmi sé tekið notar franska stórfyrirtækið Avril um fjórar milljónir lítra af hexani árlega við framleiðslu á um einni milljón tonna jurtaolíu og tveimur milljónum tonna af próteinkökum, skv. Le Canard enchaîné. Arnaud Rousseau, stjórnarformaður Avril Gestion og bóndi og forseti landssambands franska landbúnaðarins, hafnaði boði um að koma fyrir rannsóknarnefndina. Ramos gagnrýnir afstöðu Avril og annarra iðnaðarrisa og bendir á að til séu öruggari valkostir, meðal annars efnið 2-methýloxólan. Þingnefndin leggur til að innleidd verði skýr merkingarskylda, auk þess sem stjórnvöld styðji rannsóknir og fjárfestingu í lausnum sem gætu leyst hexan af hólmi.

Áhyggjur af fleiri efnum

Hexan er litlaust, rokgjarnt og mjög eldfimt lífrænt leysiefni (C₆H₁₄) sem unnið er úr hráolíu. Efnið er mikið notað í olíuiðnaði til að draga sem mest magn út úr jurtafræjum og getur náð allt að 97% af olíunni úr hráefninu. Þetta gerir efnið ódýrt og skilvirkt í framleiðslu en hefur sem fyrr segir verulega heilsufarsáhættu.

Evrópa glímir almennt við auknar áhyggjur af eiturefnum í matarolíu þar sem gögn sýna að mengun frá steinefnaolíum (e. Mineral Oil Hydrocarbons, MOH) og skyldum efnum sé bæði útbreidd og vanmetin. MOH eru lífræn kolvetnissambönd sem verða til við vinnslu hráolíu, en geta einnig átt uppruna í kolum, gasi eða lífmassa. Greining á evrópskum matvælum sýnir að steinefnaolíur geta borist í olíur við uppskeru, vinnslu, gegnum vélar, eða úr umbúðum.

Evrópskar eftirlitsstofnanir og neytendasamtök hafa undanfarna mánuði varað við hættu af MOH, sérstaklega MOAH (e. Mineral Oil Aromatic Hydrocarbons), sem geta innihaldið krabbameinsvaldandi sameindir og valdið DNAskemmdum. Samkvæmt Foodwatch leiddu ný gögn í ljós að spænsk ólífuolía fór 26 sinnum yfir mörk fyrir mengun, sem jók þrýsting á að herða reglur.

Viðamikil yfirferð í Bretlandi um gerviefnamengun í matarolíu sýndi einnig að umtalsverðar rangfærslur og fölsun eigi sér stað á mörkuðum, þar á meðal tilfelli þar sem steinefnaolía fannst í fjölmörgum olíum frá ólíkum upprunalöndum. Þrátt fyrir þetta er mikil andstaða meðal margra stærri framleiðenda, einkum í ólífuolíugeiranum á Ítalíu og Spáni, sem krefjast undanþága frá strangara regluverki og lengri aðlögunartíma.

Vinnsluaðferðir jurtaolía

Tvær aðferðir eru notaðar til að vinna olíur úr fræjum, hnetum eða baunum: þ.e. háþrýstipressun og að leysa olíuna upp í uppleysara, sem síðan er fjarlægður við eimingu (solvent extraction). Háþrýstipressunin (sem stundum er nefnd kaldpressun) er vélræn aðferð þar sem olían er pressuð úr fræinu við gífurlegan þrýsting (allt að 3 tonn á fersentimetra eða 3.000 loftþ.) Nokkurs konar snigill er látinn snúast og pressa hráefnið saman þannig að olían pressist úr. Uppleysaraaðferðin er mjög mikið notuð, aðallega vegna þess að upplausnarefnin sem notuð eru gera mögulegt að ná mestri olíu úr sama magni hráefnis. Aðferðin byggir á því að blanda saman við hráefnið uppleysara t.d. hexan (efni skylt bensíni). Olían í hráefninu leysist upp í uppleysaranum og olíunni er síðan náð úr upplausninni með suðu á henni (uppleysarinn sýður við mikið lægra suðumark en olían). Gufan af uppleysaranum er síðan þétt og hann endurnotaður. (heilsuhringurinn.is)

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...

Töfrar Tálknafjarðar
Fréttir 24. nóvember 2026

Töfrar Tálknafjarðar

Nýtt byggðaþróunarverkefni undir heitinu Töfrar Tálknafjarðar hófst formlega með...

Fjölmargir arnarungar komnir á legg
Fréttir 23. nóvember 2026

Fjölmargir arnarungar komnir á legg

58 arnarungar komust á legg í sumar. Varp fannst auk þess á þremur áður óþekktum...