Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Vandræði eru með vatnsgæði Grábrókarveitu.
Vandræði eru með vatnsgæði Grábrókarveitu.
Fréttir 5. febrúar 2026

Grábrókarveita til vandræða

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Grugg í vatni svonefndrar Grábrókarveitu í Borgarfirði hefur verið viðvarandi vandamál í hátt í tvo áratugi. Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur skorað á Veitur að taka málið föstum tökum.

„Iðulega myndast grugg í vatni úr Grábrókarveitu. Það ástand hefur varað í áraraðir sem kemur niður á íbúum, gestum og atvinnurekstri,“ segir í fundargerð sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá 15. janúar sl. Frá því að Grábrókarveita var tekin í notkun fyrir 18 árum, hafi ítrekað komið upp vandamál vegna óhreininda í vatninu, sem hafi leitt til þess að dregið hefur verið úr notkun veitunnar m.a. með því að hefja aftur vatnstöku á Seleyri fyrir Borgarnes.

„Veitum hefur á þessum 18 árum ekki tekist að gera lagfæringar á vatnstöku veitunnar sem tryggja ásættanleg gæði vatns úr tengipunktum á leið veitunnar. Borgarbyggð sem einn notandi Grábrókarveitu hefur verið í reglulegu sambandi við Veitur um gæði vatns á Varmalandi án árangurs og hefur samþykkt að hefja skoðun á möguleikum á nýjum vatnstökustöðum í nágrenni Varmalands, vegna getuleysis Veitna við að útvega ásættanlegt vatn,“ segir enn fremur.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar skorar á Veitur að leysa úr vandamálum sem tengjast vatnssöfnun Grábrókarveitunnar þannig að Borgarbyggð og aðrir notendur geti nýtt vatn úr Grábrókarveitu til framtíðar, í stað þess að hefja vatnstöku sjálf. „Staðan í dag er því miður þannig að ekki verður lengur unað við hana,“ segir í bókun sveitarstjórnar sem samþykkt var samhljóða.

Leggja til eflingu strandsiglinga
Fréttir 20. mars 2026

Leggja til eflingu strandsiglinga

Starfshópur um strandsiglingar skilaði nýverið af sér skýrslu þar sem skoðað var...

Rjómaís okkar sannarlega rjómaís, segir framkvæmdastjóri Emmessís
Fréttir 19. mars 2026

Rjómaís okkar sannarlega rjómaís, segir framkvæmdastjóri Emmessís

Í síðasta Bændablaði var fjallað um hertar fitur í ís, þar á meðal frá Emmessís.

MR-ingar mótmæla
Fréttir 19. mars 2026

MR-ingar mótmæla

Stytta á kennslu í latínu í Mennta- skólanum í Reykjavík um ár og þessu mótmæla ...

Halla Sif og Stefán Bragi í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 19. mars 2026

Halla Sif og Stefán Bragi í Útvarpi Bændablaðsins

Fjórtándi þáttur Útvarps Bændablaðsins er kominn í loftið.

Hús byggð úr íslenskum nytjavið
Fréttir 19. mars 2026

Hús byggð úr íslenskum nytjavið

Nú stendur til að byggja tvö einbýlishús úr íslenskum nytjaviði í nýjum byggðakj...

Sextíu nýjar lóðir
Fréttir 18. mars 2026

Sextíu nýjar lóðir

Fyrsta skóflustungan að nýrri íbúðabyggð við Þingborg í Flóahreppi var tekin nú ...

Leitað eftir peningaaðstoð
Fréttir 18. mars 2026

Leitað eftir peningaaðstoð

„Viltu rétta hjálparhönd?“ er yfirskrift auglýsingar, sem var sett nýlega inn á ...

Nýr framkvæmdastjóri ráðinn
Fréttir 18. mars 2026

Nýr framkvæmdastjóri ráðinn

Hestamannafélagið Sprettur á höfuðborgarsvæðinu hefur ráðið Berglindi Guðmundsdó...