Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
Hér sést Eyjafjallajökull vel og heim að Þorvaldseyri. Stígurinn liggur svo samhliða þjóðveginum og þar er líka bakaríið og kaffihúsið, ásamt stóru bílastæði.
Hér sést Eyjafjallajökull vel og heim að Þorvaldseyri. Stígurinn liggur svo samhliða þjóðveginum og þar er líka bakaríið og kaffihúsið, ásamt stóru bílastæði.
Mynd / aðsend
Fréttir 6. febrúar 2026

Göngustígur hefur slegið í gegn

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Fræðslustígur við Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum nýtur vinsælda en hann var hannaður af Basalt arkitektum fyrir styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

Í framhaldi af eldgosinu í Eyjafjallajökli 2010 opnaði fjölskyldan á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum vinsæla gestastofu í verkstæðishúsi sunnan þjóðvegarins vorið 2011. Fljótlega fór að bera á því að ferðamenn stoppuðu við heimreiðina að Þorvaldseyri og við gestastofuna, löbbuðu á þjóðveginum til að ná myndum af sér með jökulinn í baksýn, og af þessu var mikil slysahætta. Katla jarðvangur tók að sér rekstur gestastofunnar 2019 en á undanförnum árum hefur verið rekið þar kaffihús og bakarí. Þegar þessi mikli áhugi ferðamanna kom í ljós var ákveðið af stjórn Kötlujarðvangsins að sækja um styrk hjá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til þess að búa til fræðslustíg.

16 fræðsluskilti

„Útfærsla verkefnisins var svo unnin í þéttu samstarfi jarðvangsins, landeiganda og sveitarfélagsins en þegar kom að framkvæmdum varð það að ráði hjá Jóhannesi M. Jóhannessyni, núverandi forstöðumanni jarðvangsins, í samvinnu við Ólaf Eggertsson á Þorvaldseyri, að leita að bergsýnishornum í nágrenninu og koma þeim fyrir við hliðina á hverju fræðsluskilti. Fræðsluskiltin eru 16, auk eins almenns skiltis og er þeim komið fyrir við hvern og einn bókstaf orðsins Eyjafjallajökull, en stafirnir eru mótaðir í stíginn með mismunandi lit á hellusteinunum. Textinn er gagnorður, bæði á ensku og íslensku, og lýsir ólíkum stigum í ferli gossins 2010. QR kóði er á hverju skilti, sem leiðir lesendur á ítarlegri umfjöllun um efnið,“ segir Sigurður Sigursveinsson, sem á sæti í stjórn Kötlujarðvangsins.

Gjaldfrjálst bílastæði við stíginn

Sigurður segir ferðamenn mjög ánægða með stíginn. „Já, og stígurinn er í þjóðbraut en í öruggu umhverfi og öllum aðgengilegur. Það spillir ekki að stórt og gjaldfrjálst bílastæði er við enda stígsins en mjög gott samstarf hefur verið við Vegagerðina um þetta fyrirkomulag. Rúsínan í pylsuendanum er svo þetta frábæra bakarí og kaffihús sem er í húsinu á staðnum,“ segir Sigurður.

Verðlaun fyrir gott framtak

Þá má geta þess að stígurinn fékk fyrr í vetur umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs og það má því ljóst vera að um ákaflega vel heppnað framtak er að ræða en í umsögn Ferðamálaráðs kom fram að hann væri einkar gott dæmi um vel heppnað samstarf sveitarfélags, landeiganda og sérfræðinga. „Sveitarfélögin þrjú, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur, sem standa að jarðvanginum, eru fámenn og því eru sérfræðistörf, sem fylgja stofnun eins og jarðvanginum, einkar mikilvæg byggðinni. Jarðvangurinn er þannig farvegur til að sameina krafta staðarþekkingar og sérfræðiþekkingar,“ segir Sigurður enn fremur.

Skylt efni: Þorvaldseyri

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...