Pattaralegar norskar kindur í makindum sínum.
Pattaralegar norskar kindur í makindum sínum.
Mynd / Madara Lielpetere
Á faglegum nótum 29. september 2026

Getum við lært af Norðmönnum?

Höfundur: Harpa Ólafsdóttir
Harpa Ólafsdóttir.

Í aðdraganda endurskoðunar búvörusamninga er áhugavert að rýna í fyrirkomulag stuðningskerfa landbúnaðar í nágrannalöndum okkar. Þannig má sjá að beinar stuðningsgreiðslur í Noregi hafa aukist talsvert á undanförnum árum. En líkt og á Íslandi hafa Norðmenn lagt áherslu á að stuðningskerfi landbúnaðar styðji við fæðuöryggi, byggðafestu, sjálfbærni og starfsumhverfi bænda.

Samkvæmt gögnum OECD, Efnahags- og framfarastofnunar- innar, hafa stuðningsgreiðslur til landbúnaðar þróast með ólíkum hætti í Noregi og á Íslandi. Ef horft er á þróun beinna stuðningsgreiðslna, þ.e. stuðningsgreiðslna án tollverndar, má sjá að frá árinu 2016 til ársins 2024 hafa þær hækkað um 73% í Noregi í norskum krónum á meðan þær hafa hækkað um 29% á sama tíma á Íslandi í íslenskum krónum.

Heimild: OECD Agricultural Policy Monitoring and Evaluation

Mesta aukningin hefur orðið í beinum greiðslum sem t.d. eru skilyrtar við búfjárstofn eða landnýtingu. Þar jukust stuðningsgreiðslur um 81% frá 2016 til 2024. Um er að ræða greiðslur í formi gripagreiðslna, framleiðslustyrkur á fóðri, afleysinga- og áfallagreiðslur, svæðisbundinn umhverfisstyrkur o.fl. 

Þá hafa aðrar beinar greiðslur svo sem gæðastýring í mjólk og menningarlandslagsgreiðslur aukist um 71% fyrir sama tímabil. 

Ýmsir beinir styrkir eða þróunarsjóður (input use) jukust um 45%. Hér má nefna fjárfestingastyrki sem stuðla t.d. að aukinni matvælaframleiðslu eða bættri dýravelferð. Einnig stuðningur til loftslagsaðgerða, skógræktar og ýmissa umhverfis- verkefna.

Framleiðslutengdur stuðningur jókst um 70% frá 2016 til 2024 en það eru t.d. svæðisbundnar álagsgreiðslur í grænmetis- framleiðslu, mjólkurframleiðslu, nautakjötsframleiðslu, svínakjöts- framleiðslu og eggjaframleiðslu. En einnig flutningskostnaður til framleiðslu á kjöti, korni og eggjum. 

Heimild: OECD Agricultural Policy Monitoring and Evaluation

Ef litið er til samsetningar á heildarstuðningi til landbúnaðar samkvæmt upplýsingum frá OECD fyrir árið 2024 í Noregi, þá nam markaðsverndarstuðningur 22%, beinar greiðslur sem skilyrtar eru t.d. við búfjárstofn, landnýtingu eða tekjur voru 43%. Aðrar beinar greiðslur, svo sem gæðastýring í mjólk námu 16% en þá voru beinar greiðslur sem skilgreindar eru út frá inntaki (input use) eða þróunarsjóður 7% og framleiðslutengdar greiðslur 12%.

Heimild: OECD Agricultural Policy Monitoring and Evaluation

Bent hefur verið á að markaðsverndarstuðningur á Íslandi og þar með talið tollvernd sé mun hærri á Íslandi en í nágrannalöndum okkar. Þannig nam sá stuðningur um 53% árið 2024 af heildarstuðningi til landbúnaðarmála á Íslandi samkvæmt gögnum OECD á meðan hlutfallið var 22% í Noregi. Hér þarf þó að hafa fyrirvara á ákveðnum sveiflum milli ára, ekki síst vegna gengisáhrifa og sveiflum í heimsmarkaðsverðum landbúnaðarafurða. Sem dæmi þá hafði markaðsverndarstuðningur á Íslandi farið úr 39% árið 2023 þegar hann fór í 53% 2024. En frá árinu 2016 hafði markaðsverndarstuðningur á Íslandi farið stöðugt lækkandi allt til ársins 2024 samkvæmt gögnum OECD.

Ljóst er að Norðmenn hafa á undanförnum árum lagt áherslu á að styðja við landbúnað með auknum greiðslum í beinan stuðning af ýmsu tagi. Vafalítið eru þetta leiðir sem eiga jafn vel við íslenskar aðstæður til að styðja við þær áherslur í landbúnaðarmálum sem almennt hefur verið sátt um sem tryggir sjálfbæra landbúnaðarframleiðslu um allt land og ásættanlegt starfsumhverfi bænda.

Skylt efni: hagtölur

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

Tilraunir með ullarafganga
Fréttir 29. september 2026

Tilraunir með ullarafganga

Prjónaverksmiðjan Kidka á Hvammstanga var í tilraunaverkefni þar sem þróað var n...

Ullarmiklir sauðir og eftirsótt kjöt
Fréttir 29. september 2026

Ullarmiklir sauðir og eftirsótt kjöt

Sauðakjötið frá Hvammshlíð í Austur-Húnavatnssýslu er svo eftirsótt að afurðaver...

Sóknargjöld hækkuð um 200 milljónir króna
Fréttir 29. september 2026

Sóknargjöld hækkuð um 200 milljónir króna

Ein af þeim tillögum sem lögð er fram í tengslum við fjárlagafrumvarp næsta árs ...

Ullarvika í fjórða sinn
Fréttir 28. september 2026

Ullarvika í fjórða sinn

Ullarvikan á Suðurlandi verður haldin hátíðleg dagana 27. september–3. október n...

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða
Fréttir 28. september 2026

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs verða skert um 3,2 milljarða króna á næsta á...

Bændur hljóta viðurkenningu
Fréttir 28. september 2026

Bændur hljóta viðurkenningu

Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir, sem standa að baki Móður jörð í V...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f