Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Heiðursverðlaun garðyrkjunnar hlutu þau hjónin Sveinn A. Sæland og Áslaug Sveinbjarnardóttir, Espiflöt í Reykholti, Biskupstungum. Þau eru hér til vinstri ásamt Guðríði Helgadóttur staðarhaldara á Reykjum.
Heiðursverðlaun garðyrkjunnar hlutu þau hjónin Sveinn A. Sæland og Áslaug Sveinbjarnardóttir, Espiflöt í Reykholti, Biskupstungum. Þau eru hér til vinstri ásamt Guðríði Helgadóttur staðarhaldara á Reykjum.
Mynd / Helena Stefánsdóttir
Fréttir 6. maí 2026

Garðyrkju- og umhverfisverðlaun veitt

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Á opnu húsi Garðyrkjuskólans á Reykjum sumardaginn fyrsta var hátíðardagskrá þar sem Garðyrkjuverðlaun ársins 2026 og umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar voru afhent.

Garðyrkjuverðlaunin eru veitt í þremur flokkum, hvatningarverðlaun garðyrkjunnar, verknámsstaður ársins og heiðurverðlaun garðyrkjunnar. Hvatningarverðlaunin hlaut Tinna Bjarnadóttir, eigandi 1905 Blómahúss á Selfossi, verknámsstaður ársins var Gróðrarstöðin Mörk en eigendur hennar eru garðyrkjufræðingarnir Sigríður Helga Sigurðardóttir og Guðmundur Vernharðsson. Heiðursverðlaun garðyrkjunnar hlutu þau hjónin Sveinn A. Sæland og Áslaug Sveinbjarnardóttir, Espiflöt í Reykholti, Biskupstungum.

Garðyrkjuverðlaunin eru veitt af atvinnulífi garðyrkjunnar, Félagi skrúðgarðyrkjumeistara, SAMGUS, samtökum garðyrkju- og umhverfisstjóra sveitarfélaga, FIT, félagi iðn- og tæknigreina, Félagi garð- og skógarplöntuframleiðenda og Bændasamtökum Íslands. Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar hlaut Kristmundur Hannesson, garðyrkjubóndi í Hveragerði.

Guðmundur Vernharðsson, Sigríður Helga Sigurðardóttir og Guðríður Helgadóttir staðarhaldari á Reykjum. Guðmundur og Sigríður eiga gróðrarstöðina Mörk sem útnefndur var verknámsstaður ársins.

Fjöldi garðyrkjunema verið í Mörk

Tinna Bjarnadóttir á og rekur 1905 Blómahús á Selfossi og hefur um langt árabil starfað með einum eða öðrum hætti við hönnun og framkvæmd blómalistaverka, eins og hún kýs að kalla það. Hún hefur sérhæft sig í skreytingum fyrir ýmsa viðburði og lagt sérstaka áherslu á brúðkaup.

Árið 2000 keyptu Guðmundur Vernharðsson og Sigríður Helga Sigurðardóttir gróðrarstöðina Mörk af stofnendum hennar og hafa rekið gróðrarstöðina fram á þennan dag. Guðmundur hóf fyrst störf árið 1978, hefur starfað þar nær samfellt síðan þá.

Heilsársstarfsmenn í stöðinni eru fjórir en yfir sumartímann verður heildarfjöldi starfsmanna alls 20 talsins. Fjöldi garðyrkjunema hefur verið í verknámi í Gróðrarstöðinni Mörk frá því Guðmundur og Sigríður tóku við stöðinni og hafa þau leitast við að nemendurnir fái sem besta innsýn í öll þau verk sem framkvæma þarf í garðyrkju. Vel hefur verið haldið utan um verknámsnemana og hafa þeir komið mjög vel undirbúnir undir starf garðyrkjufræðings eftir verknám í Mörk.

Hófu búskap fyrir 50 árum

Sveinn Sæland og Áslaug Sveinbjarnardóttir eru bæði menntaðir garðyrkjufræðingar frá Garðyrkjuskólanum á Reykjum, Sveinn útskrifaðist árið 1974 og Áslaug tveimur árum síðar.

Áslaug er fædd og uppalin á Hofstöðum í Garðahreppi og Sveinn er fæddur og uppalinn á Espiflöt í Biskupstungum. Þau kynntust við nám á Garðyrkjuskólanum og hófu svo sambúð og rekstur í félagsbúi með foreldrum Sveins, bróður hans og mágkonu, árið 1977. Árið 2013 hófust svo kynslóðaskipti yfir til þriðju kynslóðar, þegar Axel sonur þeirra og Heiða kona hans gengu inn í reksturinn og tóku síðan alfarið við honum nokkrum árum seinna.

Um næstu áramót eru liðin 50 ár síðan þau hófu búskap á Espiflöt. Þau hjónin vinna enn við reksturinn sem hefur haldið áfram að vaxa og dafna fram á síðustu ár.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...