Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Fyrirtæki kaupa upp akra til að byggja á þeim gagnaver. Þegar beiti- eða ræktunar- land hefur verið tekið undir iðnað er ekki auðið að breyta því til baka seinna meir.
Fyrirtæki kaupa upp akra til að byggja á þeim gagnaver. Þegar beiti- eða ræktunar- land hefur verið tekið undir iðnað er ekki auðið að breyta því til baka seinna meir.
Mynd / Unsplash
Utan úr heimi 18. ágúst 2026

Gagnaver ganga á landbúnað

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Í Bandaríkjunum eru áhyggjur af því að aukin uppbygging gagnavera gangi til muna á landbúnað og stofni þannig svæðisbundnum fæðukerfum í hættu.

Uppbygging gagnavera og gervigreindargagnavera eykst sífellt í Bandaríkjunum og landsvæði sem áður hafa tilheyrt bændum til beitar eða ræktunar eru keypt undir starfsemina. Auk þess að landið sé ekki lengur nothæft hafa verin, sem þurfa bæði mikið rafmagn og mikið vatn, ýmis neikvæð áhrif á nærsamfélög sín.

Áætlað er að um 3.000 gagnaver séu nú þegar í Bandaríkjunum og verið sé að reisa um 1.500 til viðbótar. Verin eru þyrst þar sem kælikerfi þeirra krefjast mikillar vatnsnotkunar og hefur það reynst erfitt á stöðum þar sem ríkja miklir þurrkar og vatn er af skornum skammti. Mikil orkunotkun gagnaveranna hefur auk þess reynt á rafveitunet svæðanna sem þau eru reist á sem hefur leitt til frekari notkunar óumhverfisvænna orkugjafa sem og raforkuverð hefur hækkað. Þrátt fyrir að þessi vandamál séu þekkt eiga tveir þriðju þeirra gervigreindargagnavera sem stefnt er á að byggja að rísa á miklum þurrkasvæðum. Samkvæmt fréttamiðli Guardian eiga 517 gervigreindargagnaver af 809 skipulögðum að vera staðsett á svæðum sem þjást af langvarandi þurrviðri eða ofþurrkun.

Stór gagnaver geta þurft allt að fimm milljón gallon af vatni á dag sem nemur vatnsnotkun um 50 þúsund manns. Samkvæmt bandarískri rannsókn kemur fram að allt að 85% þess vatns sem gagnaver nota gufar upp og endar því ekki aftur í vatnsveitum. Þurrkar hafa áhrif á ræktun og skepnuhald jafnt og daglegt líf íbúa. Auk þess er hætta á því að stórfelld vatnsnotkun ofreyni grunnvatnsgeyma, vatnsleiðandi jarðlög (e. aquifer), ár og vatnakerfi og hafi þannig langvarandi áhrif samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna um kostnað gervigreindar á umhverfið.

Auk þess að hafa áhrif á ræktun vegna vatnsnotkunar og mögulegrar mengunar eru dæmi um að ljós og hljóðmengun frá gagnaverum hafi áhrif á líðan skepna sem búa í nágrenni við þau. Vegna niðurskurðar í náttúruverndar- og umhverfismálum hjá alríkisstjórn Bandaríkjanna er skortur á eftirliti og yfirsýn. Bændasamtök í landbúnaðarríkjum á borð við Illinois hafa vakið athygli á því að tæknirisar ásælist í auknum mæli land í dreifbýli og hafa kallað eftir frekari reglugerðum.

Þar sem landbúnaður styðst við gervigreindartól í auknum mæli eru bændasamtök ekki einróma á móti gagnaverum heldur kalla þau eftir jafnvægi og skýrri umgjörð í framkvæmdum. The American Farm Bureau Federation (AFBF), stærstu heildarsamtök bandarískra bænda, hafa talað fyrir ábyrgri uppbyggingu gagnavera í dreifbýli sem þurfi að virða staðbundnar auðlindir og vernda afkastamikil ræktunar- og landbúnaðarsvæði gegn óþarfa breytingum með því að byggja frekar á áður menguðum eða þróuðum svæðum til að tryggja að gervigreind gangi ekki á matvælaframleiðslu heldur styðji fremur við hana.

Skylt efni: bandaríkin

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Matarmót Austurlands á laugardaginn
Fréttir 12. nóvember 2026

Matarmót Austurlands á laugardaginn

Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum la...

Miðdalur fyrirmyndarbú
Fréttir 11. nóvember 2026

Miðdalur fyrirmyndarbú

Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar n...

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt s...

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...