Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar hlaut að þessu sinni Tinna Bjarnadóttir, eigandi 1905 Blómahúss á Selfossi, og er hún hér á mynd með Guðríði Helgadóttur, staðarhaldara á Reykjum.
Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar hlaut að þessu sinni Tinna Bjarnadóttir, eigandi 1905 Blómahúss á Selfossi, og er hún hér á mynd með Guðríði Helgadóttur, staðarhaldara á Reykjum.
Mynd / Aðsend
Fréttir 5. maí 2026

Fjölmenni á opnu húsi

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

− Heimaræktað kaffi og grænmeti á boðstólum

Opið hús var hjá Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi sumardaginn fyrsta, venju samkvæmt.

Talið er að þúsundir gesta hafi sótt Reyki heim enda einmuna veðurblíða, þar sem sól skein í heiði fyrri hluta dags. Að sögn Guðríðar Helgadóttur, staðarhaldara á Reykjum, var margt um að vera í aðalbyggingu skólans. „Í anddyri hússins var markaðstorg þar sem gestir og gangandi gátu keypt íslenskt grænmeti, jarðarberjaplöntur og nýupptekið heimaræktað hnúðkál. Í ár var einnig á boðstólum íslenskt kaffi sem ræktað var í bananahúsinu og kaffimeistarinn Stefán Ulrich Wernersson hjá Te og kaffi sá um að rista baunirnar. Kaffiræktun hefur verið stunduð á Reykjum í yfir 70 ár og eru plönturnar merkilegar,“ segir Guðríður. 

Garðyrkjunám kynnt

Að sögn Guðríðar var garðyrkjunám kynnt í kennslustofum skólans og nóg hafi verið að gera á kynningarbásnum. „Garðyrkjufélag Íslands kynnti sína starfsemi og fjöldi einstaklinga sýndi og seldi afurðir sínar. Í matsalnum var búið að setja á laggirnar kaffihús þar sem gestir gæddu sér á kaffi og ilmandi vöfflum með rjóma. Í garðskála aðalbyggingarinnar var svo glæsileg túlípanasýning frá Dalsgarði í Mosfellsdal en þar var um að ræða 85 mismunandi yrki af túlípönum.

Öll gróðurhús skólans voru opin og voru gestir áhugasamir um þá fjölbreyttu ræktun sem þar gat að líta. Í tilraunahúsinu var hægt að skoða ræktunarverkefni nemenda og í bananahúsinu leituðu gestir að apanum en hann er vandfundinn og frekar feiminn við fjölmennið. Verknámshús skrúðgarðyrkjunnar var vinsæll áningarstaður enda hafa nemendur og kennari unnið að því að búa þar til innigarð þar sem hægt er að sitja og njóta sumarsins.“

Hátíðardagskrá hápunkturinn

Hápunktur dagsins var svo hátíðardagskrá þar sem Garðyrkjuverðlaun ársins 2026 og umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar voru afhent.

Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar hlaut að þessu sinni Tinna Bjarnadóttir, eigandi 1905 Blómahúss á Selfossi. Sjá nánari umfjöllun um verðlaunin á síðu 12. 

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...