Þórarinn Ingi Pétursson.
Þórarinn Ingi Pétursson.
Skoðun 2. nóvember 2026

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu

Höfundur: Þórarinn Ingi Pétursson

Fjárlög eru gjarnan rædd í milljörðum. Tekjur ríkissjóðs, útgjaldarammar, fjárheimildir, halli og afgangur skipta vissulega máli. En fyrir heimilin er spurningin einfaldari: Hver er reikningurinn? Fá mál sem Alþingi afgreiðir snerta daglegt líf fólks jafn víða og fjárlög hvers árs. Þeim mun mikilvægara er að venjulegt fólk geti lesið úr þeim.

En hver er reikningurinn?

Það er spurningin sem við höfum lagt til grundvallar Heimilissátt Framsóknar og reiknivélinni á vefslóðinni utreikningur.is. Þar geta heimili sett inn eigin forsendur og séð samanlögð áhrif þeirra helstu breytinga í fjárlagafrumvarpinu sem reiknivélin tekur til.

Tilgangurinn er ofureinfaldur: að gera fjárlögin skiljanleg. Umræða um fjármál ríkisins festist of oft í prósentum eða hlutföllum, hækkunum eða lækkunum, sem fæst heimili ná að tengja við eigið líf. Um leið verða til eins konar skotgrafir þar sem tölur verða vopn frekar en upplýsingar. Við viljum lyfta umræðunni á annað plan og láta hana hefjast á sameiginlegum grunni staðreynda, t.a.m. um á hvaða hópum lenda hækkanir og eru auknar byrðar sanngjarnar? Um svörin má deila, sem er eðlilegt í lýðræðisríki, en grunnur og forsendur ákvarðana eiga að liggja fyrir.

Þess vegna sýnir vefurinn utreikningur.is hvert skref í útreikningnum og telur mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar að fullu í hverju einasta dæmi. Vefurinn felur í sér þjónustu við fólk, ekki vopn til að beita í kappræðum. Skiljanleg ríkisfjármál eru ekki flokkspólitískt markmið heldur lýðræðismál og betri umræða skilar á endanum betri ákvörðunum um fjármál ríkisins.

Gjaldið sem ratar á endanum heim í hlað

Þetta skiptir sérstaklega miklu máli fyrir heimili og fyrirtæki á landsbyggðinni. Í fjárlagafrumvarpinu er lagt til að kílómetragjald á bíla undir 3.500 kg hækki úr 6,95 krónum í 8,05 krónur á ekinn kílómetra, um 15,8%. Ekki að ósekju hefur sú hækkun verið kölluð sérstakur landsbyggðarskattur, enda er bíllinn víða um land nauðsyn en ekki valkostur. Fólk ekur langar leiðir til vinnu, skóla og heilbrigðisþjónustu og fyrirtæki flytja aðföng og vörur um langan veg.

Og hækkunin kemur tvisvar fram. Hún fer nefnilega einnig inn í vísitölu neysluverðs og hækkar þar með höfuðstól verðtryggðra lána. Sá sem ekur mest borgar því bæði fyrir aksturinn sjálfan og í formi hærri verðbóta á lánið sitt.

Ríkisstjórnin hafnar því að um sérstakan landsbyggðarskatt sé að ræða. Það breytir þó ekki grundvallarspurningunni: er 15,8% hækkun á gjaldi sem leggst beint á akstur skynsamleg þegar fólk á landsbyggðinni hefur takmarkaða möguleika á að draga úr akstri?

Þyngst á þá sem aka mest

Fjárlög þarf að skoða út frá raunverulegu lífi fólks en ekki aðeins einstökum línum eða yfirlitum frumvarpsins um tekjur og gjöld, sjóðsstreymi eða handbært fé. Þess vegna setjum við upp tilbúin dæmi. Þannig birtum við dæmi um ungt par með tvö börn með 45 milljóna króna húsnæðislán. Áætluð viðbótarbyrði frumvarpsins á þetta par er um 342 þúsund krónur árið 2027. Þar leggjast saman hærri gjöld, rýrnun barnabóta, niðurfelling vaxtabóta, bankaskattur, seinkuð vaxtalækkun og verðbætur á verðtryggða lánið.

Sama krónutala leggst heldur ekki jafnt á alla. Í tveimur dæmum okkar er heildarbyrðin svipuð í krónum, en nemur um 28% af einum mánaðarlaunum fyrir skatt hjá tekjulægra heimilinu og um 12% hjá því tekjuhærra. Og hjón á landsbyggðinni bera um tólf þúsund krónum meira á ári en sams konar hjón í Reykjavík, að meginstofni til vegna aksturs.

2,5% hækkun í stað 15,8%

Heimilissáttin leggur því áherslu á hóflegri og fyrirsjáanlegri gjaldtöku. Við viljum að kílómetragjaldið hækki aðeins um 2,5% eins og önnur gjöld, að allar krónutöluhækkanir verði takmarkaðar við 2,5%, að barnabætur haldi verðgildi sínu og að vaxtabætur verði áfram greiddar á meðan vaxtabyrði heimilanna er jafn þung og raun ber vitni.

Þetta snýst líka um atvinnulífið og byggðirnar. Hærri flutningskostnaður hefur áhrif á verð, fjárfestingu og samkeppnishæfni fyrirtækja utan höfuðborgarsvæðisins, þ.m.t. ferðaþjónustu, ekki síst þegar hagkerfið hægir á sér.

Fjárlögin þurfa að vera í samræmi við stöðu ríkissjóðs hverju sinni. En þau þurfa líka að ganga upp fyrir heimilin í landinu.

Vonandi verða Heimilissáttin og reiknivélin á utreikningur.is til þess að bæta umræðuna um fjárlög, áhrif þeirra og sanngirni, og færa hana nær fólkinu sem fjárlögin snúast um. Það væri ávinningur fyrir okkur öll, hvar í flokki sem við stöndum.

Höfundur er þingmaður Framsóknar

Skylt efni: fjárlög

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...