Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
ESB-umræðan kallar á svör en ekki slagorð
Skoðun 5. ágúst 2026

ESB-umræðan kallar á svör en ekki slagorð

Höfundur: Margrét Gísladóttir

Um þessar mundir virðist varla hægt að koma á tjaldvæði, sundstað, fjölskylduboð, fund eða kaffistofu án þess að umræðan berist að ESB. Fólk er að reyna að átta sig á hvað möguleg endurvakning aðildarumsóknar Íslands að ESB myndi þýða. Hverjir eru kostirnir? Hverjir eru gallarnir? Og hvað myndi þetta kosta?

Það er eðlilegt að fólk spyrji. ESB-aðild er ekki einfalt mál og snýst því ekki um einfalt já eða nei. Aðildarviðræður eru mjög flókið ferli, enda hefði aðild umfangsmikil og afdrifarík áhrif á efnahagslíf, fullveldi, atvinnulíf, byggðir landsins og einnig íslenskan landbúnað. Aðild fæli í sér djúpstæðar breytingar á lagaumhverfi landbúnaðarins, stjórnsýslu, stuðningskerfi, tollvernd – og ákvörðunarvald.

Skortur á pólitískri umræðu

Þess vegna er bagalegt að á sama tíma og almenningur er að reyna að átta sig á þessu stóra máli eru þeir 63 þingmenn sem þjóðin kaus til að setja sig inn í nákvæmlega svona mál og miðla upplýsingum til kjósenda, í sumarhléi. Alþingi er ekki virkur vettvangur umræðu um málið á þeim tímapunkti þegar þörfin fyrir skýringar og pólitíska ábyrgð hefur líklega aldrei verið meiri.

Nú er búið að setja þjóðina í þá stöðu að þurfa sjálf að kortleggja jafn tæknilega flókið ferli og endurvakning umsóknaraðildar er. Það er áþreifanleg eftirspurn frá fólki eftir meiri upplýsingum og skýrum svörum frá þeim sem bera pólitíska ábyrgð. Slagorð og loforðaflaumur á TikTok er ekki það sem fólk þarf á að halda núna heldur fagleg umfjöllun.

Ísland yrði nettógreiðandi til ESB

Ein af fyrstu spurningunum sem þarf að svara er hvað aðild myndi kosta Ísland. Miðað við stærð íslensks hagkerfis og stöðu Íslands sem hátekjuland er næsta öruggt að Ísland yrði nettógreiðandi til ESB. Með öðrum orðum myndi Ísland greiða meira inn í sameiginlega sjóði ESB en við fengjum til baka í formi styrkja og verkefna. Gróflega má ætla að nettóframlag Íslands gæti numið um 20–30 milljörðum króna miðað við núverandi stærð hagkerfisins og stöðu sambærilegra ríkja ESB.

Sú tala segir þó ekki alla söguna. Til viðbótar við þessa upphæð, sem er það fjármagn sem við greiðum umfram það sem við fáum til baka, kæmi t.d. framlag frá íslenska ríkinu til íslensks landbúnaðar sem þyrfti sem mótvægisaðgerð við niðurfellingu tollverndar, þ.e. ef ætlunin er að tryggja áframhaldandi innlenda matvælaframleiðslu. Það mótframlag gæti numið tæpum 20 milljörðum króna til viðbótar á ársgrundvelli, sé miðað við virði markaðsverndar samkvæmt útreikningum OECD.

Íslenski landbúnaðurinn

Íslenskur landbúnaður býr við nokkuð sérstakar aðstæður sem ber að taka alvarlega. Og tollverndin er mikilvægur hluti af þeirri umgjörð sem gerir innlendri framleiðslu kleift að starfa við íslenskar aðstæður. Ef tollvernd félli niður við ESB-aðild, án þess að sambærilegar mótvægisaðgerðir kæmu í staðinn, yrðu afleiðingarnar alvarlegar og myndu líklega ríða mörgum greinum landbúnaðarins að fullu.

Fyrir íslenskan landbúnað skiptir mestu að umræðan um ESB-aðild fari ekki fram á forsendum óskhyggju. Það þarf að liggja fyrir hvaða kröfur íslenska ríkið mun setja í aðildarviðræðum við ESB hvað varðar tollvernd, dýraheilbrigði, stuðningskerfi o.fl. Áður en þjóðinni er gert að taka afstöðu þarf að svara þessum spurningum af fullri alvöru.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.

Skylt efni: esb | Vinkill

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis
Fréttir 17. september 2026

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBhÍ) og NABU Climate Fund hafa undirritað samstarfs...

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð
Fréttir 17. september 2026

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar heimsótti nýlega tvær konur í ...

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi
Fréttir 17. september 2026

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi

Skógræktarfélag Íslands útnefnir tré ársins 2026 við formlega og hátíðlega athöf...

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir
Fréttir 16. september 2026

Metfjöldi nemenda og nýjar námsleiðir

Metfjöldi nemenda er skráður í Háskólann á Bifröst í haust. Þetta er annað árið ...

Bændur mótmæla hertum reglum
Fréttir 16. september 2026

Bændur mótmæla hertum reglum

Hundruð danskra bænda mótmæltu fyrir utan þinghúsið í Kaupmannahöfn á þriðjudag ...

Fullorðnum refum fjölgar í Hornafirði
Fréttir 16. september 2026

Fullorðnum refum fjölgar í Hornafirði

Atvinnu- og menningarmálanefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar áréttaði á síðasta ...