Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Eru ESB-reglur að gera vínflöskuna ólöglega?
Utan úr heimi 16. september 2026

Eru ESB-reglur að gera vínflöskuna ólöglega?

Höfundur: Þröstur Helgason

Nýjar reglur Evrópusambandsins um að draga úr umbúðaúrgangi hafa vakið áhyggjur meðal evrópskra glerframleiðenda og framleiðenda áfengis. Samkvæmt reglunum, sem taka gildi árið 2030, verða fyrirtæki skylduð til að lágmarka efnisnotkun í umbúðum sínum. Gleriðnaðurinn óttast að reglurnar geti dregið úr sérstöðu þekktra vörumerkja og takmarkað möguleika framleiðenda til að nota sérhannaðar flöskur sem hluta af markaðssetningu sinni.

Framleiðendur vína og sterkra drykkja í Evrópu hafa um árabil lagt mikla áherslu á útlit og hönnun flaskna sem hluta af ímynd vörumerkja sinna. Samkvæmt glerframleiðendum eru flöskurnar ekki aðeins umbúðir heldur hluti af sögu og sjálfsmynd vörunnar. POLITICO Europe segir frá.

Emmanuel Ladent, forstjóri franska glerfyrirtækisins Saverglass, bendir á að fyrirtækið hafi framleitt einkennandi flöskur fyrir Grey Goose-vodka í tvo áratugi. Að hans sögn þekki neytendur vöruna meðal annars á tæru gleri, lögun flöskunnar og skreytingum hennar. Hann óttast að slík sérkenni verði í hættu ef reglurnar verði túlkaðar mjög þröngt.

Markaðssjónarmið duga ekki lengur

Markmið Evrópusambandsins er að draga úr því mikla magni umbúða- úrgangs sem fellur til ár hvert. Árið 2023 mynduðu Evrópubúar tæplega 80 milljónir tonna af umbúðaúrgangi, sem samsvarar um 177 kílóum á mann. Samkvæmt reglunum verður markaðssetning ein og sér ekki talin næg ástæða fyrir notkun umframumbúða eða meira efnis en nauðsynlegt er.

Glerframleiðendur segja hins vegar að hætta sé á að reglurnar leiði til einsleitni í framsetningu vara, meðal annars í vín-, áfengis- og ilmvatns- iðnaði. Þeir benda á að greinin standi þegar frammi fyrir miklum kostnaði vegna orkuskipta og kolefnislosunar- markmiða og telja að viðbótarregluverk geti dregið úr samkeppnishæfni evrópskra fyrirtækja.

Áhyggjurnar ná einnig til smærri framleiðenda. Í Bretagne-héraði í Frakklandi hefur handverksbrugghúsum og eimingarhúsum fjölgað á undanförnum árum. Etienne Jacques hjá Moby Dick-eimingarhúsinu í Plogoff segir að framsetning vörunnar skipti máli samhliða gæðum innihaldsins. Fyrirtækið noti þykkar glerflöskur með sérstökum merkimiðum og trétappa en jafnframt hafi verið komið upp kerfi þar sem viðskiptavinir geti skilað flöskum til endurnýtingar gegn endurgjaldi.

Ímyndin byggir á útlitinu

Samkvæmt upplýsingum frá Evrópusamtökum glerumbúða- framleiðenda (FEVE) starfa um 50 þúsund manns við framleiðslu glerumbúða í Evrópu og greinin lagði um 6,5 milljarða evra til hagkerfis Evrópusambandsins árið 2022. Samtökin segja mikilvægt að framleiðendur geti áfram þróað sérkenni vara sinna og haldið samkeppnisstöðu sinni á markaði.

Talsmenn iðnaðarins benda á að margar þekktar vörur byggi ímynd sína að stórum hluta á útliti umbúðanna. Þeir nefna meðal annars Amaretto Disaronno, Aperol, Corona-bjór og ilmvatnið Chanel N°5 sem dæmi um vörur þar sem glerumbúðirnar séu órjúfanlegur hluti af vörumerkinu sjálfu.

Deilan snýst því um hvar jafnvægið eigi að liggja milli markmiða um minni úrgang og umhverfisáhrifa annars vegar og frelsis framleiðenda til að skapa sérstöðu og verðmæti í gegnum hönnun umbúða hins vegar. 

Skylt efni: esb | vínframleiðsla

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...