Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Erlendir starfsmenn ráðnir sérstaklega
Fréttir 5. ágúst 2026

Erlendir starfsmenn ráðnir sérstaklega

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sauðfjárslátrun hjá SS á Selfossi hefst formlega 8. september í haust og stendur til 4. nóvember. Reiknað er með að slátra um hundrað þúsund fjár.

„Það verða um hundrað og fimmtíu manns að vinna í sláturtíðinni og hundrað af þeim koma sérstaklega til landsins til að vinna hjá okkur þetta tímabil,“ segir Benedikt Benediktsson, framleiðslustjóri hjá SS.

Benedikt Benediktsson.

Á heimasíðu fyrirtækisins kemur meðal annars fram að 4% hækkun verði á verðskrá kindakjöts og ofan á það greiðir SS svo bændum 8% í viðbót ofan á verðskrá sauðfjárinnleggs eins og fyrri ár. Þá kemur líka fram að bændum standi til boða að kaupa frosið dilkakjöt með afslætti í sláturtíð en ekki er um að ræða heimtöku á innleggi viðkomandi bónda.

En hvað segir formaður Félags sauðfjárbænda um verðið sem bændur fá fyrir sitt fé í haust? „SS er eina afurðastöðin sem hefur gefið út verðskrá fyrir haustið og afurðaverð fylgir þróun verðlags síðan í síðustu sláturtíð, eða um 4%. Sauðfjárbændur hefðu viljað sjá frekari hækkun á afurðaverði til sín en eins og í tilviki SS þá vita bændur að sú afurðastöð greiðir uppbót í lok árs ef rekstur félagsins gengur vel. Sauðfjárbændur sýna þessari hóflegu hækkun þó skilning í því verkefni að reyna að halda aftur af miklum verðlagshækkunum. Aftur á móti bendum við líka á að aðföng til framleiðslunnar hafa hækkað frá síðasta ári, olía hefur hækkað umtalsvert milli ára, áburður hækkaði milli ára svo dæmi séu tekin,“ segir Eyjólfur Ingvi Bjarnason, formaður sauðfjárbænda. 

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...