Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Erfðagallinn birtist eingöngu í nautum, ekki kvígum.
Erfðagallinn birtist eingöngu í nautum, ekki kvígum.
Mynd / Yulia Gadalina
Fréttir 4. ágúst 2026

Erfðagalli í Angus-nautum

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Erfðagalli fannst í Angusnautgripastofninum sem veldur ófrjósemi í arfhreinum nautum. Fyrir utan það að vera ófrjó eru nautin sem bera genið heilbrigð að öðru leyti. Vísindamenn í Noregi uppgötvuðu genið. Höskuldur Jensson dýralæknir hélt erindi um málið á opnum fundi sem deild nautgripabænda stóð fyrir.

Höskuldur Jensson.

„Norðmenn létu okkur vita af erfðagallanum þegar þeir voru búnir að staðfesta niðurstöður rannsóknanna,“ segir Höskuldur. „Allir gripirnir sem við erum með eru innfluttir, það er erfðaefnið er innflutt frá Noregi, og vitað var að einhverjir af forfeðrum þeirra gripa sem við erum með hér á landi bæru genið. Þá var boðið upp á bráðabirgðagreiningar og við fengum að senda sýni úr öllum gripum úr stöðinni á Stóra-Ármóti og nokkrum nautum sem eru búin að vera í dreifingu svo við vitum stöðuna á þessum gripum í dag.“ Búið er að greina 43 gripi hérlendis og um helmingur þeirra var laus við genið, helmingur voru arfblendnir gripir með genið og tveir voru arfhreinir með genið. Í Noregi er búið að greina 700 gripi samkvæmt Höskuldi en þar af voru 25% arfblendnir og 3% arfhreinir með genagallann.

Að sögn Höskuldar er raunhæft að losna alfarið við genið en forsendan fyrir því sé að hafa aðgang að greiningum. Óvissa ríkir í þeim málum sem stendur þar sem allar greiningarnar fara fram í Noregi og hafa nú verið stöðvaðar tímabundið. Unnið er að þróun framtíðarlausnar við greiningu á geninu. „Við reiknum með að þetta sé aðeins tímabundið stopp og að okkur bjóðist hagstæð lausn til greininga á okkar gripum innan skamms,“ segir Höskuldur en hann býst við að þessi stöðvun vari aðeins í nokkra mánuði.

„Þau naut sem við höfum verið að nota undanfarið af þessum Angus-ættum eru öll berar. Þau eru öll arfhrein og bera genið, þau eru alveg frjó en bera þó þetta gen. En sem betur fer erum við að koma inn með nýjan árgang nauta sem fæddust Höskuldur Jensson. í fyrra. Við vorum einmitt nýlega að taka sæði úr nokkrum svoleiðis nautum sem fara fljótlega í dreifingu en þau naut eru öll laus við þetta gen,“ segir Höskuldur. Engu sæði verður dreift úr nautum sem ekki er búið að greina. „Það er spurning hvernig maður sér fyrir sé að losna alfarið við þetta í öllum gripum á landinu, það getur tekið einhver ár en það mikilvægasta er að við förum ekki að dreifa neinu sæði úr nautum héðan í frá nema þau séu laus við þetta,“ segir Höskuldur. „Það er ekki ástæða til að hafa svakalegar áhyggjur af þessu. Þetta er búið að vera til í Noregi og víðar í langan tíma, áratugi jafnvel, án þess að menn hafi tekið eftir því. Ef þetta væri búið að valda einhverju stórtjóni hefði þetta uppgötvast fyrr.“

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...