Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Enn vantar upplýsingar
Leiðari 13. ágúst 2026

Enn vantar upplýsingar

Höfundur: Þröstur Helgason

Allt frá því að ríkisstjórnin boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið hafa bændur nálgast umræðuna af ábyrgð og yfirvegun. Bændur hafa ekki sett sig upp á móti atkvæðagreiðslunni og sagst myndu una niðurstöðunni og leggja sitt á vogarskálarnar til að ná sem bestum samningum ef meirihluti segði já. Þeir hafa hins vegar líka haldið uppi upplýsandi og gagnrýnni umræðu um mögulega aðild að ESB. Og í síðustu viku lögðu Bændasamtökin fram 130 síðna skýrslu þar sem ítarlega er farið yfir kosti og galla þess að ganga í ESB fyrir íslenskan landbúnað. Meginniðurstaða skýrslunnar er alveg skýr. Það yrðu grundvallarbreytingar á íslenskum landbúnaði við inngöngu sem gætu haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir svo að segja allar meginstoðir þess kerfis sem hefur verið byggt upp hérlendis í kringum þennan grunnatvinnuveg.

Fjallað er um helstu niðurstöður skýrslunnar aftar í blaðinu. Það sem slær mann við lesturinn er að þar koma fram svör við mörgum þeirra spurninga sem ætla mætti að ríkisstjórninni hefði verið í lófa lagið að leggja fram um leið og hún boðaði til kosninganna. Skýrslan auðveldar því fólki að taka upplýsta ákvörðun í kosningunum. Í henni kemur til dæmis fram að ákvörðunarvald um framtíð íslensks landbúnaðar myndi að verulegu leyti færast til Evrópusambandsins og að varanlegar undanþágur frá sameiginlegri landbúnaðarstefnu sambandsins hafi hingað til verið litlar sem engar. Breytingarnar gætu jafnframt haft áhrif á fæðuöryggi landsins, byggðafestu og nýtingu innlendra auðlinda. Markaðsvernd myndi leggjast af og óljóst er hvernig bústofnar og plöntuheilbrigði yrði varið í landinu. Bændum myndi að öllum líkindum fækka og einhverjar búgreinar leggjast af. Og þannig mætti áfram telja.

Þetta eru upplýsingar sem mikilvægt er að hafa þegar gengið verður til kosninga. Stjórnvöld hafa gert því skóna að Íslendingar myndu fá varanlegar undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnunni í einhverjum tilvikum og sérlausnir í öðrum. Þau hafa jafnframt bent á að ekki komi í ljós hvaða undanþágur og sérlausnir fást fyrr en samningar liggja á borðinu. Það er auðvitað rétt en sé tekið mið af sögunni þá eru dæmi um undanþágur fá ef nokkur og sérlausnir ekki auðfengnar. Góðir eða jafnvel bara ásættanlegir samningar fyrir íslenska bændur verða því augljóslega ekki auðsóttir.

Ein af þeim undanþágum sem hefur verið rædd fjallar um auðlindir landsins. Ísland er ríkt af góðu ræktunarlandi, vatni, orku, fiski, hreinu lofti og ósnertum víðernum. Ríkisstjórnin hefur tekið skýrt fram að ekki verði samþykktir samningar við Evrópusambandið nema auðlindir sjávar verði undir yfirráðum Íslendinga. Minna hefur verið rætt um yfirráð okkar yfir öðrum auðlindum. Ríkisstjórnin þyrfti að taka alveg skýrt fram hver samningsmarkmið hennar yrðu hvað þetta atriði varðar. Á meðan hún gerir það ekki þá brennur sú spurning sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir varpaði fram í Silfri vikunnar á þjóðinni. Af hverju ættum við að fara í samningaviðræður þar sem yfirráð okkar yfir auðlindum landsins væru undir? Auðlindir sem við höfum sjálf ráðið yfir en ætlum nú að nota sem skiptimynt í samningum við yfirþjóðlegt vald. Hvers vegna ætlum við að leita samninga um það að fá að halda auðlindum að öllu eða einhverju leyti sem við hingað til höfum átt og stjórnað að fullu?

Svörin þurfa að vera algerlega skýr og hefðu auðvitað átt að koma fram fyrir löngu.

Þröstur Helgason

Skylt efni: Leiðari

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

Tilraunir með ullarafganga
Fréttir 29. september 2026

Tilraunir með ullarafganga

Prjónaverksmiðjan Kidka á Hvammstanga var í tilraunaverkefni þar sem þróað var n...

Ullarmiklir sauðir og eftirsótt kjöt
Fréttir 29. september 2026

Ullarmiklir sauðir og eftirsótt kjöt

Sauðakjötið frá Hvammshlíð í Austur-Húnavatnssýslu er svo eftirsótt að afurðaver...

Sóknargjöld hækkuð um 200 milljónir króna
Fréttir 29. september 2026

Sóknargjöld hækkuð um 200 milljónir króna

Ein af þeim tillögum sem lögð er fram í tengslum við fjárlagafrumvarp næsta árs ...

Ullarvika í fjórða sinn
Fréttir 28. september 2026

Ullarvika í fjórða sinn

Ullarvikan á Suðurlandi verður haldin hátíðleg dagana 27. september–3. október n...

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða
Fréttir 28. september 2026

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs verða skert um 3,2 milljarða króna á næsta á...

Bændur hljóta viðurkenningu
Fréttir 28. september 2026

Bændur hljóta viðurkenningu

Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir, sem standa að baki Móður jörð í V...