Endurheimt Landsvirkjunar og Lands og skógar á Norður- og Austurlandi
Á faglegum nótum 2. nóvember 2026

Endurheimt Landsvirkjunar og Lands og skógar á Norður- og Austurlandi

Höfundur: Salbjörg Matthíasdóttir, Sigríður Þorvaldsdóttir og Ingunn Sandra Arnþórsdóttir
Salbjörg Matthíasdóttir.

Land og skógur hefur síðastliðin ár komið að ýmsum endurheimtarverkefnum í samstarfi við Landsvirkjun þar sem Land og skógur kemur að ráðgjöf, áætlanagerð, eftirliti með framkvæmd og árangursmati. Hér að neðan verður farið stuttlega yfir hluta af þeim verkefnum sem Land og skógur hefur unnið að fyrir Landsvirkjun undanfarið.

Við Hálslón á Snæfellsöræfum hefur viðamikið endurheimtarverkefni verið í gangi síðan árið 2009. Aðalmarkmið þess er að styrkja gróður næst lóninu í þeim tilgangi að grípa áfoksefni sem óhjákvæmilega fýkur upp úr botni lónsins eftir því sem vatnsstaðan lækkar. Einnig er stunduð almenn endurheimt á lítt- eða ógrónum svæðum í nágrenni lónsins, auk uppgræðslu á blettum sem röskuðust á framkvæmdatíma. Í dag eru endurheimtarsvæði við Hálslón orðin yfir 1.000 ha að stærð samanlagt. Á þessu ári var um 50 tonnum af tilbúnum áburði dreift á um 230 ha, en árlegt umfang hefur minnkað nokkuð undanfarin ár eftir því sem svæðin nálgast sjálfbærni.

Sigríður Þorvaldsdóttir.

Á Eyvindarstaðaheiði, sem liggur norðan Hofsjökuls, hefur Landsvirkjun einnig unnið að stóru endurheimtarverkefni frá árinu 1982, þar sem upphaflegt markmið var að græða upp beitarland í stað þess gróðurlendis sem fór undir vatn við virkjun Blöndu. Á síðustu árum hafa áherslurnar þó breyst og snýst markmiðið nú um að græða upp örfoka land og styrkja staðagróður á svæðinu. Verklag í tengslum við verkefnið hefur þróast á milli þeirra þriggja aðila sem koma að verkefninu, en þeir eru; Landsvirkjun, Land og skógur og fulltrúar beggja sveitarfélaga sem eiga upprekstur á Eyvindarstaðaheiði, Húnabyggðar og Skagafjarðar.

Ingunn Sandra Arnþórsdóttir.

Samkvæmt kortlagningu Lands og skógar frá árinu 2020 var búið að ljúka uppgræðslu á alls 1.108 hekturum á Eyvindarstaðaheiðinni og ætla má að frá þeim tíma hafi aðgerðir klárast á öðrum 350 hekturum. Einnig stendur til að klára aðra 650 ha á næstu árum samkvæmt nýútgefinni aðgerðaáætlun til 2030.

Á Þeistareykjum hefur Landsvirkjun unnið að uppgræðslu lands í samvinnu við Þingeyjarsveit og Land og skóg til mótvægis við það land sem fór undir mannvirki tengd Þeistareykjastöð. Uppgræðslur vegna þessara framkvæmda hófust árið 2010 á vegum Þeistareykja ehf., en Landsvirkjun tók síðan við í framhaldinu og hefur unnið markvisst að uppgræðslum frá árinu 2013. Fyrirkomulagið er þannig að fulltrúar frá Landsvirkjun, Landi og skógi og Þingeyjarsveit mynda uppgræðslunefnd sem sér um útfærslu á markmiðum og uppgræðsluaðgerðum hvers árs.

Árið 2015 hóf Landsvirkjun vinnu með Landi og skógi við að græða upp land á norðurhluta Hólasands í grennd við Þeistareyki. Verkefnið þar er umfangsmikið og er liður í umhverfis- og samfélagsáherslum fyrirtækisins. Alls hefur verið unnið að uppgræðslum á u.þ.b. 350 ha svæði, fyrst og fremst með tilbúnum áburði enda mjög erfitt yfirferðar. Samningur um þetta verkefni milli Landsvirkjunar og Lands og skógar er runninn út og eru viðræður hafnar um framhald verkefna.

Framangreind verkefni eru aðeins hluti þess sem Landsvirkjun og Land og skógur hafa unnið að í áralöngu samstarfi.

Vinna við þessi endurheimtarverkefni hefur bætt mjög í reynslubanka stofnananna og áframhaldandi samstarf mun aðstoða starfsfólk okkar að betrumbæta aðferðafræði og verklag þegar kemur að endurheimt.

Höfundar eru sérfræðingar hjá Landi og skógi.

Skylt efni: Land og skógur

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...