Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Dýralæknanám í fyrsta skipti á Íslandi
Fréttir 6. maí 2026

Dýralæknanám í fyrsta skipti á Íslandi

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) ætlar í haust að bjóða upp á nám í dýralækningum með áherslu á dýraheilbrigði í samvinnu við hinn virta SGGW háskóla í Varsjá.

Um er að ræða tveggja ára diplómanám, sem hefur það meginmarkmið að undirbúa nemendur til starfa og áframhaldandi náms á sviði búvísinda og dýraheilbrigðisvísinda. Námið er sniðið að því að nemendur geti sótt um inngöngu beint á þriðja ár dýralæknanáms í skólanum í Varsjá en nýlega var undirritaður samningur milli LbhÍ og SGGW um að nemendur sem lokið hafa diplómanámi í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði frá LbhÍ geti sótt um að fara beint inn á þriðja ár á námsbraut í dýralækningum við SGGW. Heildarlengd dýralæknanámsins við SGGW eru fimm og hálft ár.

„Það er erfitt að áætla hversu margir munu sækja um að fara þessa leið að dýralæknanámi en ekki verður hægt að taka við fleiri en 18 nemendum. Ef umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði verða færri en 10 verður ekki fjárhags- grundvöllur til að bjóða upp á þessa leið. En það er margvíslegur ávinningur af því að velja þennan valkost. Í fyrsta lagi má nefna að nemendur munu öðlast góða þekkingu á íslenskum landbúnaði á fyrstu tveimur árunum og munu búa að því að námi loknu. Í öðru lagi fá nemendur tækifæri til að stunda nám í góðum skóla í Póllandi með áhugaverðu og öflugu fagumhverfi. Í þriðja lagi er þetta góður kostur fyrir þau sem ekki treysta sér til eða hafa ekki tök á að fara beint til útlanda í langt nám,“ segir Auður Lilja Arnþórsdóttir hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.

Skylt efni: Hvanneyri | dýralæknar | LbhÍ

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...