Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Ungur viðskiptavinur rýnir í innkaupakörfuna.
Ungur viðskiptavinur rýnir í innkaupakörfuna.
Mynd / Edda Kristín Sigurjónsdóttir
Utan úr heimi 20. mars 2026

Danir og Svíar bregðast við háu verði á matvöru

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Danir og Svíar bregðast við lang- varandi efnahagslægð og háu vöru- verði með tímabundnum aðgerðum og áætlunum um langtímaaðgerðir til að styðja við heimilin.

Aðgerðir þjóðþinganna eru til þess gerðar að ná strax til neytenda með tímabundinni lækkun á virðisaukaskatti og fleiri matarávísunum. Stefnt er að breytingum á virðisaukaskattskerfinu á matvöru í Danmörku.

Virðisaukaskattur á matvöru lækkaður

Svíar hafa þegar samþykkt lækkun á virðisaukaskatti úr 12% í 6% frá 1. apríl til 31. desember 2027. Ástæða lækkunarinnar er að styðja við fjárhag heimilanna sem viðbragð við langvarandi efnahagslægð sem leitt hefur af sér hátt vöruverð á matvælum. Gert er ráð fyrir að aðgerðin skili sér til neytenda um leið og hún tekur gildi en að hún sé tímabundin þar sem standa þurfi vörð um að virðisaukaskattur sé mikilvægur tekjuliður í ríkiskassann.

Árið 2017 skrifuðu Svíar þjóðar- áætlun um matvæli sem var uppfærð í lok árs 2025. Í henni er áhersla á að styrkja innlenda framleiðslu svo matvælakerfið sé viðnámsþolið þegar hætta steðjar að. Gott rekstrarumhverfi innlendra matvælaframleiðenda er talið lykilatriði og að matvælaframleiðsla sé arðbær. Skólar, sjúkrahús og opinberar stofnanir eru hvött til að bjóða upp á mat frá innlendum framleiðendum, gjarnan úr nærumhverfi, í mötu- neytum sínum til að styðja við innlenda framleiðslu og aðgerðir í loftslagsmálum.

Rúm 30% Dana eiga rétt á matarávísun

Nemar á samningi í iðngreinum í Danmörku bætast nú í hóp þeirra sem eiga rétt á árlegri matarávísun. Rúm 30% landsmanna, yfir 2 milljónir Dana, eiga nú rétt á ávísuninni sem greidd er út í maí og júní en í þeim hópi eru námsmenn sem fá námsstyrk (SU) nú þegar. Ákvörðunin var tekin á síðustu stundu fyrir afgreiðslu í danska þinginu eftir harðorðar athugasemdir í umsagnarferli málsins.

Matarávísunin er skattfrjáls árleg greiðsla sem nemur um 20-100.000 íslenskum krónum á mann og kemur til sem mótframlag ríkisins vegna hás vöruverðs á matvælum. Ávísunin er þegar greidd út til ellilífeyrisþega, einstaklinga með lága innkomu, námsmanna og nú nema á samningi.

Danska þingið samþykkti í janúar síðastliðnum að ráðast í aðgerðir til að lækka virðisaukaskatt á matvöru frá 2028 en hann er nú 25%, sem er með því hæsta sem gerist í Evrópu. Eining er í þinginu um að gera breytingar á virðisaukaskattskerfi á mat og lagt upp með tvo möguleika, að lækka virðisaukaskatt á allri matvöru eða að fella niður virðisaukaskatt á grænmeti og ávöxtum.

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...