Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Viljayfirlýsing var undirrituð í Ráðhúsi Hafnarfjarðar. Rannveig Rist, Rósa Guðbjartsdóttir, Grettir Haraldsson og Edda Aradóttir.
Viljayfirlýsing var undirrituð í Ráðhúsi Hafnarfjarðar. Rannveig Rist, Rósa Guðbjartsdóttir, Grettir Haraldsson og Edda Aradóttir.
Mynd / Aðsend
Fréttir 18. janúar 2023

Byggja kolefnismóttöku- og förgunarstöð í Straumsvík

Höfundur: Vilmundur Hansen

Carbfix, Coda Terminal, Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto á Íslandi undirrituðu fyrir skömmu viljayfirlýsingu um uppbyggingu kolefnismóttöku- og förgunarstöðvar í Straumsvík undir heitinu Coda Terminal.

Edda Aradóttir, framkvæmdastjóri Carbfix, segir að með verkefninu sé lagður grunnur að nýrri atvinnugrein hérlendis, sem byggir á íslensku hugviti sem geti með tímanum orðið að útflutningsgrein.

„Ráðgert er að fyrsti áfangi stöðvarinnar taki til starfa 2026 og að hún nái fullum afköstum árið 2031. Fullbyggð mun stöðin geta tekið á móti og bundið um þremur milljónir tonna af CO2 árlega, sem samsvarar meira en helmingi af árlegri losun Íslands,“ segir Edda.

Eitt vænlegasta stóra loftslagsverkefni Evrópu

Edda segir að markmiðið um að hemja hlýnun jarðar við 1,5 gráður munu vart nást án umfangsmikillar föngunar og förgunar á CO2. „Carbfix hefur þróað tækni sem hermir eftir og flýtir náttúrulegum ferlum til bindingar á CO2 í jarðlögum, sem felur í sér að því er blandað í vatn og kolsýrðu vatninu dælt niður í basaltberglög, þar sem CO2 gengur í efnasamband við málma í berginu og breytist varanlega í steindir.

Aðferðinni hefur verið beitt með góðum árangri á Hellisheiði allt frá árinu 2012 og hefur hún vakið heimsathygli.“

16 milljarða styrkur

Coda Terminal stöðin verður sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum og verkefnið hlaut fyrr á árinu viðurkenningu sem eitt vænlegasta stóra loftslagsverkefni í Evrópu með úthlutun á um 16 milljarða króna styrk úr Nýsköpunarsjóði Evrópu, eftir ítarlega rýni á vegum sjóðsins.

Það er tæplega þriðjungur af áætluðum heildarkostnaði við verkefnið.

„Í verkefninu felst að þróa skilvirkar flutningsleiðir fyrir CO2 allt frá föngun í Evrópu til niðurdælingar í Straumsvík. Á Íslandi eru kjöraðstæður til varanlegrar, umhverfisvænnar, hagkvæmrar og öruggrar kolefnisförgunar með aðferðinni, en helstu forsendur hennar eru að til staðar séu CO2, vatn og hentug jarðlög.“

Hagkvæm leið til að minnka kolefnisfótspor

Að sögn Eddu verður stöðin hagkvæm leið fyrir íslenska aðila til að minnka kolefnisfótspor sitt. Rio Tinto á Íslandi er í þessum hópi og mun vinna að því að fanga CO2 frá álverinu til förgunar á staðnum.

„Yrði það í fyrsta skipti sem tækist að farga varanlega CO2 frá álveri og yrði það mikilvægt skref í átt að kolefnishlutleysi 2040.

Carbfix hóf í nóvember rann­ sóknarboranir á lóð álversins við Straumsvík með það fyrir augum að auka þekkingu á jarðlögum á svæðinu og fá nákvæmari upplýsingar um aðstæður til varanlegrar bindingar á CO2 í jarðlögum. Matsáætlun vegna umhverfismats framkvæmdarinnar var nýlega skilað inn til Skipulags­ stofnunar.“

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...