Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Tilkynnt um friðunina á Bifröst, talið frá vinstri:  Vilhjálmur Egilsson, fyrrverandi rektor á Bifröst, Margrét Jónsdóttir Njarðvík, nýr rektor á Bifröst, sem tók við 1. júní, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Reynir Ingibjartsson, f
Tilkynnt um friðunina á Bifröst, talið frá vinstri: Vilhjálmur Egilsson, fyrrverandi rektor á Bifröst, Margrét Jónsdóttir Njarðvík, nýr rektor á Bifröst, sem tók við 1. júní, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Reynir Ingibjartsson, f
Mynd / Mennta- og menningamálaráðuneytið
Fréttir 22. júní 2020

Byggingar Samvinnuskólans á Bifröst friðlýstar

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur, að fenginni tillögu Minja­stofnunar Íslands, ákveðið að friðlýsa elsta hluta skólabygginga Samvinnuskólans á Bifröst í Borgarfirði. 
 
Friðlýsingin tekur til ytra borðs samkomuhúss frá 1950, veggfastra innréttinga í samkomusal og setustofu samkomuhúss, ytra borðs tengigangs milli samkomuhúss og gistiálmu og veggmyndar á tengigangi eftir Hörð Ágústsson listmálara.
 
„Samkomuhúsið á Bifröst er mikilvægt og vel varðveitt dæmi um höfundarverk Sigvalda Thordarson og samstarfsmanna hans, Gísla Halldórssonar og Kjartans Sigurðarsonar, frá upphafsárum þeirra starfsferils. Ekki síst á það við innréttingar og búnað í samkomusal og setustofu, sem varðveist hefur í nær upprunalegri mynd allt til dagsins í dag,“ segir Lilja. 
 
Samkomuhúsið var elsta bygg­ing­in á Bifröst, þá samkomu- og veitinga­staður í eigu Sambands íslenskra samvinnufélaga, þegar Samvinnu­skólinn flutti þangað í land Hreðavatns í Norðurárdal árið 1955. Skólinn hafði þá áður verið til húsa á Sölvhólsgötu í Reykjavík þar sem nú eru skrifstofur mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Þegar Samvinnuskólinn tók við samkomuhúsinu var svo reist við það viðbygging með tengigangi, þrílyft heimavistarálma, teiknuð af Skúla H. Norðdahl. Saman mynda húsin tvö fallega og samræmda heild sem hefur einkennt ásýnd Bifrastar og verið táknmynd þeirra skólastofnana sem þar hafa starfað.
Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...